Stjórnarráð Íslands
Þriðjudaginn 13. febrúar 1990


     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Þetta frv. sem hæstv. forsrh. hefur mælt hér fyrir lætur ekki mikið yfir sér og er ekki fyrirferðarmikið. Í raun má segja að það fjalli um eitt orð, umhverfisráðuneyti. En oft veldur lítil þúfa þungu hlassi. Þetta mál hefur orðið tilefni til mikilla umræðna í meðferð Nd. og þarf engan að undra það.
    Málið ber að með afar sérstæðum hætti og óneitanlega þykir mér vera farið að hlutunum í öfugri röð. Það virðist vera sáluhjálparatriði fyrir hæstv. ríkisstjórn að koma þessu frv. í gegnum þingið, helst án mikilla umræðna eða umfjöllunar. Það virðist ekki skipta máli hvert verksviðið eigi að vera í þessu væntanlega umhverfisráðuneyti, hvaða verkefni verði á endanum færð yfir í umhverfisráðuneytið. Þannig hefur málið þróast í meðförum Nd. að þau tvö frumvörp sem hæstv. ríkisstjórn lagði fram, þ.e. þetta frv. sem hér er fjallað um og svo fylgifrumvarp þess. Ég tek fram sérstaklega, fylgifrv. þess sem er 128. mál þingsins og fjallar einmitt um breytingar á einstökum lögum um verkefnasvið sem færa á til umhverfisráðuneytis. Þessi tvö frumvörp hafa nú verið aðskilin. Þetta frv. um Stjórnarráðið er komið til þessarar hv. deildar, en eftir situr fylgifrv. í Nd. og á þar greinilega eftir að fá mikla umfjöllun. En það er einmitt ástæða til að ítreka þessi orð því að það kemur fram í athugasemdum um það frv. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Frumvarp þetta er flutt sem fylgifrumvarp með frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 73 28. maí 1969, um Stjórnarráð Íslands, vegna stofnunar umhverfisráðuneytis hinn 1. janúar 1990.``
    En einmitt þessu frv., 128. máli þingsins, er ætlað að ákvarða hvaða verkefni eigi að flytjast í væntanlegt umhverfisráðuneyti og þetta frv. situr eftir og er enn til umfjöllunar í allshn. Nd. Síðan eigum við hér í hv. Ed. að taka fyrri hluta þessa máls og afgreiða það án þess að bandormurinn sem
því fylgir sé kominn í hv. deild. Því hefur reyndar verið haldið fram að stjórnarandstaðan sé að tefja þetta mál hér í þinginu. Slíkar fullyrðingar eru auðvitað alger misskilningur og rangar. Hér er um að ræða eitt stærsta og viðamesta mál sem hefur komið fram á þessu þingi, þ.e. hvernig skuli í framtíðinni staðið að því að samræma yfirstjórn umhverfismála og hvaða mál skuli falla undir þá yfirstjórn.
    Snemma í haust lögðu þm. Sjálfstfl. fram frv. í hv. Nd. sem er 4. mál þingsins. Það fjallar einmitt um samræmda stjórn umhverfismála. Það frv. er enn til umfjöllunar í allshn. Nd. og fær þá væntanlega afgreiðslu samhliða því frv. sem þar situr eftir og ég nefndi áðan, þ.e. fylgifrv. þessa máls sem hér er á dagskrá.
    Það kemur fram í því frv. að við sjálfstæðismenn erum með aðrar hugmyndir um skipan þessara mála en að nú skuli sett á laggirnar sérstakt umhverfisráðuneyti. Við teljum hagkvæmara og skynsamlegra að samræma stjórn þessara mála og koma þannig til móts við þau mismunandi sjónarmið

sem endurspeglast í umsögnum þeim sem hafa verið sendar inn um þessi mál. En það vitum við að hagsmunir eru afar mismunandi og það eru skiptar skoðanir á því hvað eigi að færa í umhverfismálaráðuneyti og hvernig menn vilja standa að þeim málum. Enda má einnig benda á fylgifrv. sem hefur að geyma, ef ég man rétt, einar 22 greinar þar sem gert er ráð fyrir að breyta hinum ýmsu lögum til þess að hægt sé að færa þessa málaflokka yfir.
    Forsrh. rakti hér nokkuð ítarlega framgang umhverfismála á hv. Alþingi frá því að frv. kom fyrst fram um þessi mál. Það kom fram í hans máli sem rétt er að sjálfstæðismenn á Alþingi hafa haft frumkvæði í þessum málum frá fyrstu tíð. Hann gat þess réttilega að fyrsta frv. sem flutt var um þessi mál var samið að tilhlutan þáv. forsrh. Geirs Hallgrímssonar og það var þáv. hæstv. félmrh. Gunnar Thoroddsen sem lagði það frv. fram. Hann sagði að vísu vorið 1977, ég held að það hafi ekki verið alveg rétt. Ég held að það sé vorið 1978 en það skiptir kannski ekki meginmáli.
    Hann gat þess einnig að hliðstætt frv. hefði verið flutt sem þmfrv. hér á þingi 1980--1981. Það var ég sem var 1. flm. þess frv. og aðrir þm. Sjálfstfl. í þessari hv. deild voru einnig flm. Það frv. fékk ekki afgreiðslu, fór aðeins til nefndar. Þá endurflutti Gunnar Schram ásamt fimm öðrum þm. í Nd. þetta mál 1983. Ég held að hæstv. forsrh. hafi gleymt að geta þess, og ég geri það nú svona til gamans af því að hæstv. forseti Sþ. var að ávíta þm. í gær í umræðum í Sþ. fyrir það að þeir segðu ekki söguna um gang mála þegar verið væri að flytja mál sem hefði áður verið flutt, að nálægt vori 1987 lögðu Sjálfstfl. og Framsfl. fram till. til þál. um skipan umhverfismála. ( Forsrh.: Það var frv.) Já, ég vildi bæta þessu við. Þetta er þá svona smá rósaknúppur í hnappagat framsóknarmanna af því að það eru sjálfstæðismenn sem hafa frumkvæði í þessum málum.
    Að lokum, þá var þetta á stefnuskrá ríkisstjórnar þáv. forsrh., Þorsteins Pálssonar. Hann skipaði nefnd til að semja drög að frv. um samræmda stjórn umhverfismála, eins og hæstv. forsrh. gat hér réttilega um. Segja má að það
frv. sem nú liggur fyrir og sjálfstæðismenn hafa flutt í neðri deild og er 4. mál þingsins, sé byggt á því frv. eða endurflutt. Ég held að óhætt sé að segja að nefndin sem samdi það frv. hafi með því reynt að ná sem víðtækastri samstöðu um málið meðal hagsmunaaðila, að frv. sé skref í þá átt að samræma yfirstjórn þessara mála í eitt ráðuneyti.
    Hæstv. forsrh. talaði áðan um að við sjálfstæðismenn hefðum fallið frá okkar fyrri viðhorfum til þessa máls þar sem við hefðum lýst því yfir að endalokin hlytu að verða eitt umhverfisráðuneyti. Það er náttúrlega alls ekki rétt. Hins vegar gerist það stundum þegar menn geta gefið sér góðan tíma og skoðað málin frá öllum hliðum, og þeir eru sammála um að þetta sé mikilvægt og viðkvæmt mál, þá reyna þeir að ná sem víðtækastri samstöðu. Á því má segja að viðhorfin séu byggð og

svo jafnframt því hvað er hagkvæmt fjárhagslega séð. Þetta þykir mér rétt að láta koma hér fram vegna orða hæstv. forsrh.
    Ég vildi ítreka þessa söguskoðun hæstv. forsrh. af því að mér finnst rétt að það komi hér fram og það staðfestir að mínu viti hversu viðamikill og þýðingarmikill málaflokkur hér er á ferðinni, hann spannar yfir svo vítt svið, við getum sagt í öllum þáttum umhverfis okkar og mannlífs, að það er ekki auðvelt og einfalt úrlausnar. Og það felst engin lausn í því að bæta einu orði í lög um Stjórnarráð Íslands, að stofna umhverfisráðuneyti, án þess að búið sé að ákveða hvert verksvið þess á að vera.
    Mér dettur í hug hvort mönnum fyndist það t.d. skynsamleg ráðstöfun að stofna skóla, ráða skólastjóra og kennara og auglýsa eftir nemendum án þess að fyrir liggi hvað eigi að kenna í skólanum, hvert námsefnið ætti að vera. Ætli mönnum þætti ekki þar vera farið öfugt að hlutunum? ( KP: Eða hvort eigi að kenna.) Og yfirleitt kannski hvort eigi að kenna já, það má kannski líka bæta því við eins og hv. 3. þm. Vestf. skaut hér inn í ræðu mína. Ég þakka honum fyrir það. ( GuðmÁ: Það ætti kannski að byggja skólahúsið fyrst áður en hafin er starfsemi.) Ég held, hv. 5. þm. Reykv., að það sé skynsamlegast að fullvissa sig fyrst um að þörf sé á að stofna skóla og að fyrir liggi hvað eigi að kenna í skólanum áður en húsið verður byggt og einnig hvert námsefnið eigi að vera. Ég held að það sé mjög brýnt áður en farið er að ráða starfsfólk og auglýsa eftir nemendum.
    Ég hefði, hæstv. forseti, viljað sjá hér á dagskránni, til viðbótar við þau tvö mál sem þar eru, 128. mál, sem er frv. til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd og Siglingamálastofnun og á ýmsum öðrum lögum er varða yfirstjórn umhverfismála. Því, eins og ég sagði áðan, í athugasemdum með því frv. segir að það sé fylgifrv. þessa frv. sem hér er verið að fjalla um.
    En því er ekki að heilsa, því er nú verr og miður. En eins og ég nefndi áðan er þar um viðamikið mál að ræða, 22 greinar, þar sem lagt er til hvaða breytingar þurfi að gera á ýmsum lögum með því að færa verkefni í umhverfisráðuneytið. Það er nefnilega þannig að þó að þeim stjórnarliðum hér á hv. Alþingi takist að koma þessu máli í gegn og það verði að lögum, er ekki séð fyrir hvernig hæstv. umhverfisráðherra fer að starfa að hinum ýmsu málum á meðan ekki er búið að breyta þeim lögum sem nauðsynlegt er til þess að færa honum verkefni sem eru við hæfi á vettvangi umhverfismála. Umhverfismálin heyra undir átta ráðuneyti eins og þeim er skipað í dag. Og þar stendur hnífurinn í kúnni. Þar sýnist sitt hverjum sem hafa með þessi mál að gera og það er alls ekki séð fyrir endann á lausn þeirra.
    Við höfum fengið allar þessar umsagnir sem hv. neðri deild hefur kallað eftir. Þær varða þessi þrjú frv. sem ég hef hér minnst á, það frv. sem hér er verið að fjalla um, fylgifrv., sem er meginmálið, og frv. sjálfstæðismanna, 4. mál þingsins. Við eigum

auðvitað mikið verk að vinna í hv. allshn. og munum að sjálfsögðu taka til hendi. Nú þegar hefur verið boðaður fundur í nefndinni kl. 9 í fyrramálið, svo það stendur ekkert á því að nefndin taki til starfa.
    Af því að við vorum á fundi í allshn. í morgun þá leit ég aðeins á þennan bunka í möppunni minni. Þar rakst ég t.d. á umsögn frá einum hagsmunaaðila sem skiptir sjálfsagt miklu máli hvar hann lendir. Það er Hollustuvernd ríkisins. Í bréfi sem stjórnarformaðurinn, Hermann Sveinbjörnsson, ritar allshn. neðri deildar er fjallað um hvort það eigi að kljúfa þessa stofnun eða ekki. En þar segir, með leyfi forseta: ,,Stjórnin er sem áður sammála um að ekki komi til álita að kljúfa stofnunina og að varhugavert sé`` --- nú bið ég hv. þm. að taka eftir --- ,,að hraða stofnun umhverfisráðuneytis það mikið að ekki vinnist tími til að svara grundvallarspurningum um starfsemi ráðuneytisins og stofnana þess.`` Þetta er einmitt það sem við erum hér að tala um, okkur finnst vera farið öfugt að hlutunum. Fyrst þarf að gefa sér góðan tíma og svara þeim grundvallarspurningum hver starfsemi ráðuneytisins og stofnana þess eigi að vera. Þær felast í afgreiðslu á fylgifrv., barninu sem var skilið frá móður sinni og enn þá situr í neðri deild og er ekki búið að ljúka afgreiðslu á.
    Við höfum lofað því að setja ekki hér á langar ræður og þetta mál er auðvitað sjálfsagt að afgreiða til nefndar. Því ætla ég ekki að fara að setja hér á langa ræðu þó það væri að sjálfsögðu mjög freistandi að fjalla hér ítarlega um þessi mál eins og þau hafa verið á dagskrá hjá hinum ýmsu
hagsmunasamtökum, áhugafólki um allt land á undanförnum árum. Eins og ég gat um áðan eru 12 ár síðan við sjálfstæðismenn vildum fara að koma þessum málum í gott horf hér á hv. Alþingi. En það hefur ekki tekist og af hverju er það? Það er einfaldlega af því að það er svo erfitt að koma sér saman.
    Ég ætla að skjóta hér inn, hæstv. forsrh., ég gleymdi að geta þess að meira að segja í ráðherratíð Svavars Gestssonar voru samin tvö frv., ég man ekki hvort það kom fram hjá hæstv. ráðherra, ég held ekki, það var á tímabilinu 1980--1983. Hvorugt þessara frv. var lagt fyrir Alþingi. Af hverju? Eru menn ekki sammála um að taka þurfi á þessum málum? Af hverju er verið að semja öll þessi frv.? Það er af því að allir vita að það þarf að taka á þessum málum. En af hverju eru frv. ekki lögð fram? Það er af því að ekki er samkomulag um endanlega niðurstöðu. Menn geta ekki komið sér saman um hvernig eigi að standa að málinu. Þess vegna er það engin lausn að breyta hér einu orði í lögum um Stjórnarráð Íslands á meðan ekki er búið að afgreiða fylgifrv. sem þarf að fylgja með þessu frv.
    Mig langar að lokum, af gefnu tilefni, að beina einni fsp. til hæstv. forsrh. ef hann vildi vera svo vinsamlegur að hlýða á mál mitt. ( Gripið fram í: Forsrh. er að mæla fyrir frv. og verður örskotsstund.) Já, en hér erum við í miðri umræðu um þetta mikilvæga mál sem mér hefur reyndar skilist að lægi

svo feiknarlega mikið á að afgreiða. En ég hef nógan tíma. ( Gripið fram í: Hagstofuráðherra er hérna.) Það er ekki nóg. Ég hef nógan tíma, mér liggur ekkert á. Ég er alveg sammála því að það þarf að vinna þannig í þessu máli að við eigum að flýta okkur hægt, gefa okkur góðan tíma. ( Gripið fram í: Bara að bíða.) Og þess vegna bíð ég bara eftir hæstv. forsrh., það er allt í lagi frá minni hendi. ( Gripið fram í: Við höfum nú fordæmi um það svo sem.) Og já já, það hefur gerst. Ég veit ekki hvort ég gæti fundið mér eitthvað að lesa fyrir hv. þingdeild á meðan, það er sjálfsagt margt skemmtilegt aflestrar í öllum þessum umsögnum sem ég gat um áðan. ( JúlS: Slá met Hreggviðs, slá met Hreggviðs.) Að slá met hv. 11. þm. Reykn.? Ég verð nú að viðurkenna það, hæstv. hagstofuráðherra, að ég er afskaplega lítið fyrir að keppa að því að slá met, hvort sem það er í íþróttum eða öðru. Svo ég held að ég hirði nú ekki um það. En ég bíð bara róleg, þetta er allt í lagi, liggur ekkert á.
    Ég get náttúrlega á meðan bætt því við að í umsögn Hollustuverndar ríkisins segir í lokaorðum, með leyfi hæstv. forseta: ,,Eins og málum er nú komið er besti kosturinn að fresta ákvarðanatöku um yfirstjórn umhverfismála og vinna að stofnun heilbr.- og umhverfisráðuneytis. Verði þessi leið ekki valin er samræmd yfirstjórn umhverfismála í einu af núv. ráðuneytum vænlegri kostur en stofnun umhverfisráðuneytis. Verði slík leið valin verður þó að meta hvert skuli verða starfssvið stjórnarnefndar umhverfismála og umhverfisráðs þar sem sérþekking er til staðar í stofnunum sem sinna störfum á þessu sviði.`` Þetta var svona smáinnlegg í þessa umræðu á meðan beðið var eftir hæstv. forsrh. sem nú er kominn.
    Nú langar mig, hæstv. forsrh., að leggja hér fram, af gefnu tilefni, eina fsp. Í síðustu viku var haldinn hádegisverðarfundur í Verkfræðingafélagi Íslands. Þar mun hæstv. hagstofuráðherra hafa verið og rætt um þetta frv. en hann hafði upplýst á fundinum að gert væri ráð fyrir því að þetta frv., sem við erum hér að fjalla um, yrði að lögum og afgreitt út úr þingi á morgun, miðvikudag. ( KP: Nei.) Ja, hv. 3. þm. Vestf. virðist vera hissa en það er eins og ég sagði, af gefnu tilefni sem ég er að spyrja. Og því var einnig bætt við af hæstv. hagstofuráðherra að samdægurs yrðu gefnar út reglugerðir, sem væru nú þegar tilbúnar og kveða á um verkefni sem færa á úr hinum ýmsu ráðuneytum til umhverfisráðuneytis.
    Ég verð því að spyrja hæstv. forsrh.: Hvaða reglugerðir eru þetta sem búið er að semja og eiga að birtast samdægurs? Og af því að manni verður spurn, innan hvaða lagaramma eru þær þá settar? Að sjálfsögðu hljótum við að óska eftir því að fá þessar reglugerðir því ég dreg ekki í efa að hæstv. hagstofuráðherra hafi farið þarna með rétt mál. Við munum óska eftir að fá að skoða þær í nefndinni.
    Ég get ekki annað en lýst vonbrigðum mínum með hvernig að þessu máli hefur verið staðið hér á hv. Alþingi því ég hefði talið að það skipti meira máli að lögð væri ríkari áhersla á að vinna þetta mál

þannig að það væri gert í sem breiðastri samstöðu hér á hv. Alþingi þegar verið er að breyta stjórnskipunarlögum eða lögum um Stjórnarráð Íslands.
    Ég vil svo að endingu lýsa ánægju minni með hæstv. hagstofuráðherra í umræðuþætti, ég held í Þingsjá sl. mánudag, þar sem hann og hv. 12. þm. Reykv. Kristín Einarsdóttir voru að spjalla um þessi mál. Ég verð að lýsa ánægju minni með ummæli hæstv. hagstofuráðherra og þakka honum fyrir hans skilning á þýðingu þessa máls, þar sem hann lýsti því yfir að að sjálfsögðu mundu þessi mál tvö, þ.e. þetta frv. og fylgifrv., fylgjast að héðan út úr þinginu og fá samtímis umfjöllun í hv. efri deild. Ég sé því fram á að það líður ekki á löngu þar til við sjáum hitt frv. og við getum þá fjallað um þessi tvö frv., sem skipta svo gríðarlega miklu máli eins og ég hef reynt að koma að hér í
mínum orðum, og að þau verði afgreidd samtímis.
    Hæstv. forseti. Eins og ég sagði áðan sé ég ekki ástæðu til þess að setja hér á langa ræðu. Ég á sæti í allshn. og fæ tækifæri til að fjalla nánar um þetta frv. þar. Því læt ég nú máli mínu lokið.