Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Það er kannski ekki brýnt að bæta svo miklu við þessa umræðu sem hér hefur farið fram, en þó fannst mér ástæða til að gera nokkrar athugasemdir við ræðu hv. 5. þm. Reykv. Ætli hann sé hér einhvers staðar í nágrenninu? Það er kannski leiðinlegt fyrir hann að missa af ræðu minni af því að hún snýr að honum, a.m.k. að einhverju leyti.
Ég þakka hins vegar hæstv. forsrh. fyrir að hann svaraði hér nokkru af því sem ég spurði um en þó virtist hann hafa misskilið spurningu mína. Ég var ekki að spyrja hann hvort þetta hefði verið sagt á þessum fundi Verkfræðingafélagsins. Ég var að upplýsa hann um að þetta hefði komið fram á fundinum, að hæstv. hagstofuráðherra hefði upplýst að þetta frv. yrði að lögum ,,miðvikudag í næstu viku`` sem þýðir á morgun, miðað við daginn í dag, á morgun er þessi umtalaði miðvikudagur, og samdægurs yrðu gefnar út reglugerðir sem færðu væntanlegu ráðuneyti hans verkefni. Ég var eiginlega svona að spyrja hæstv. forsrh. um hvaða verkefni þetta væri sem hann fengi þarna samdægurs og eftir hvaða reglugerðum. Hann svaraði því nú --- ég bið hæstv. forsrh. velvirðingar á því að ég get ekki á mér setið að segja: eiginlega með já, já og nei, nei. Mér fundust það ekki vera beint skýr svör, en það kom fram í hans máli að það væri ýmislegt hægt að gera til þess að væntanlegur hæstv. umhverfisráðherra yrði ekki alveg verkefnalaus fyrstu dagana eða vikurnar eftir að hann tæki við.
Ég vil ítreka það sem kom fram í máli hv. 2. þm. Norðurl. e. um það hvort forsrh. sé ekki sammála hæstv. hagstofuráðherra um það að þessi frv. verði bæði afgreidd um leið héðan úr þessari hv. deild. Eins og ég upplýsti sagði hann, og væntanlega hefur hæstv. forsrh. líka séð og hlustað á sjónvarpið þegar hann lýsti þessari skoðun sinni í umræddum sjónvarpsþætti, að að sjálfsögðu mundu þessi mál verða samferða út úr þessari deild. Og nú væri
gaman að heyra hvort hæstv. forsrh. tekur ekki undir þá skoðun og vill stuðla að því.
Hv. 5. þm. Reykv. er nú kominn hér aftur inn og vegna þess að hans ræða var ástæðan fyrir því að ég fór hér aftur í ræðustól fannst mér rétt að hann væri hérna viðstaddur því kannski er ekki gustuk að vera að svara mikið þessari ræðu hans. Hún endurspeglar kannski nýliðastarfið hans hér á hv. Alþingi vegna þess að hann var svo óskaplega hneykslaður og hissa á því að ég skyldi voga mér að tala um að við sjálfstæðismenn hefðum haft frumkvæði um þessi umhverfismál hér á hv. Alþingi og þá var hann náttúrlega um leið að hneykslast á hæstv. forsrh. því hann var búinn að rekja þessa sögu á undan mér, en við vorum bara að rekja staðreyndirnar, hv. 5. þm. Reykv., sem tala sínu máli. Þetta er allt skjalfest hér í þingtíðindum, bæði þessi frv. og eins umræður sem hafa farið fram, og hv. þm. gæti auðveldlega kynnt sér þau mál og séð að þetta var ekki nein della sem ég var að segja, að það er ekki núna fyrst sem verið
er að byrja að tala um umhverfismál, góðu heilli verð ég að leyfa mér að segja.
Hv. þm. kom inn á það og var að fræða okkur um að umhverfismálin væru orðin mál málanna úti í heimi og ég held að við höfum nú sjálf sem hér erum inni haft grun um þetta og orðið aðeins vör við það líka. Hann minntist á austantjaldslöndin eða Sovétríkin og hvaða áhyggjur þeir hefðu þar og ég held að það hafi kannski komið mörgum á óvart, þegar dyrnar opnuðust þarna austur fyrir og gat kom á múrinn, hversu óskaplega slæmt ástand er í umhverfismálum í austantjaldslöndunum og hversu óskaplega illa hefur verið staðið að þeim málum á þeim hluta jarðarkringlunnar, ef við getum orðað það svo. Og ég tek undir það með honum að vissulega er ástæða til að hafa áhyggjur af því. En góðu heilli er þessi málaflokkur orðinn mál málanna, eins og hann var að upplýsa okkur um, og meira að segja hér á landi. Þó að ekki yrði stofnað umhverfisráðuneyti á morgun, eða í gær, er alltaf verið að sinna þessum málum. Bara nafnið eitt, umhverfisráðuneyti, breytir engu í þeim efnum. Nafnið eitt segir ekki neitt. Það eru verkefnin sem eru þungamiðjan í þessu. Það eru verkefnin sem skipta máli og þess vegna hefur þessi, eins og hv. þm. orðaði það, ,,kjaftavaðall um einskis verða hluti`` farið fram hér á fundinum hjá okkur sem töluðum á undan honum. Þessir einskis verðu hlutir í hans huga eru einmitt þessir þýðingarmestu hlutir í okkar huga, og þeir eru: Hvað er það sem á að gera í umhverfisráðuneytinu? Hvaða verkefni á að færa því, hvernig á að sinna þeim og hvaða lögum á að breyta til þess að færa þeim hvaða verkefni? Þetta er það sem hann kallar ,,kjaftavaðal um einskis verða hluti`` en við köllum ,,mál málanna.`` Þar skilur á milli okkar og hv. þm. Við höfum aðra skoðun á þessu. Ég heyrði það á hans málflutningi og það er ekkert við því að gera.
Mér finnst að ég þurfi aðeins að leiðrétta hv. þm. Hann taldi að ég hefði sagt að allir væru á móti því að stofna umhverfisráðuneyti samkvæmt umsögnunum. Það voru hreint ekki mín orð. Ég var aðeins að benda á allar þessar umsagnir. Það væru ýmsar athugasemdir í þeim þar sem menn væru ekki allir sammála um hvernig skuli staðið að þessum málum. Það eru margir sammála
því og vilja fá sérstakt umhverfisráðuneyti, en svo eru ýmsir aðrir sem gera athugasemdir við það. Jafnvel þeir sem vilja ráðuneyti telja það ekki tímabært á meðan ekki er vitað hvað það á að gera, hvaða verkefni það fær o.s.frv. Það fer hins vegar fjarri því, hv. 5. þm. Reykv., að ég hafi haldið því fram að umsagnirnar væru allar neikvæðar um stofnun umhverfisráðuneytis. Þó að ég sé ekki búin að lesa þær frá orði til orðs er ég búin að lesa þær það vel að ég gæti rætt um það héðan úr ræðustóli, en af því að ég var búin að lýsa því yfir að við ætluðum ekki að vera að tefja þetta mál ætla ég ekkert að fara að eyða tímanum í að lesa þetta upp fyrir hann. Ég veit að hann getur gert það sjálfur. Við erum bæði í nefndinni svo að ég þarf þess ekki. (Gripið fram í.)
Ég sný ekkert aftur með það að þetta er öfug röð á afgreiðslu málsins. Það er í okkar huga, þessara sem eru með ,,kjaftavaðalinn um einskis verða hluti``, að hans áliti, og það er okkar skoðun að þetta þurfi hvort tveggja að fylgjast að. Og það er dálítið merkilegt, af því að hann upplýsti okkur nú um að hann hefði samið bæði þessi frv. eða tekið þátt í því: Hvers vegna í ósköpunum var verið að semja hitt frv. úr því að þess þarf ekki? Ég næ því nú ekki alveg, að vera að eyða tímanum í slíkt. Ég hélt að það hefðu allir nóg að gera og væru ekki að semja frv. um ,,einskis verða hluti`` ef ekki væri þörf á því.
Ég ætla ekki, hæstv. forseti, að hafa þessi orð mín öllu fleiri. Ég er búin að gera athugasemdir við svör hæstv. forsrh. en ég vil ítreka þá ósk mína og beina henni til hæstv. forseta, sem er jafnframt formaður allshn., að við fáum inn í nefndina þessar reglugerðir sem hann er búinn að láta semja svo að við getum fengið að fylgjast með þeim. Ég ítreka það svo aftur að úr því að það er engin þörf á lagabreytingum til þess að umhverfisráðuneyti fái næg verkefni, þá næ ég því ekki alveg hvers vegna þetta frv. hefur verið lagt fram, hvort það var bara einhver málamyndasýndarmennska eða hvað. Það er full ástæða til að velta því fyrir sér.
Ég ætla þá að ljúka máli mínu, hæstv. forseti, en ég vek jafnframt athygli á því að hæstv. hagstofuráðherra hefur ekki tekið til máls í þessu máli sem fjallar um umhverfisráðuneyti.