Eiður Guðnason (um þingsköp):
Herra forseti. Ég veit að vísu að forseti þessarar deildar er maður mildi og umburðarlyndis, en ég verð samt að lýsa furðu á því hversu þolinmóður hann er þegar hv. 2. þm. Norðurl. e., Halldór Blöndal, þverbrýtur hér allar þingskapareglur og heldur uppi langri efnisumræðu um mál undir því yfirskini að hann sé að tala um þingsköp. Þingsköp eru ákveðnar leikreglur sem þingmenn hafa samþykkt og eiga að gilda um ræðuhöld hér. Hv. þm. Halldór Blöndal telur greinilega að þau eigi að gilda um aðra þingmenn en ekki um hann.
Honum vil ég aðeins segja það að lokum að mér kemur það mikið á óvart hvernig hann þrástagast hér á rangfærslum um afstöðu Alþfl. í þessu máli, sérstaklega eftir að ég hef gefið honum ljósrit af bréfi sem ég skrifaði fyrir hönd þingflokks Alþfl. til fjmrh. 13. des. á síðasta ári, þar sem fram kemur, skýrt og glöggt, afstaða Alþfl. Þrátt fyrir það heldur hann áfram að koma hér í ræðustól og endurtaka sömu rangfærslurnar aftur og aftur.