Evrópusamningur um varnir gegn pyndingum
Þriðjudaginn 13. febrúar 1990


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég þakka hv. 13. þm. Reykv. þessar athugasemdir sem hún bar hér fram og af því tilefni er það ætlan mín að leita til réttarfarsnefndar sem er nefnd sem starfar nánast óslitið til þess að fá svör við þeim fyrirspurnum sem þm. lagði hér fram og viðbrögð í því efni sem hún gerði hér að umtalsefni.