Hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit
Miðvikudaginn 14. febrúar 1990


     Frsm. heilbr.- og trn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Herra forseti. Aðeins örstutta athugasemd út af því sem hér hefur farið fram. Þessi umræða hefur virkilega farið út um víðan völl. Þar hafa komið við sögu Gorbatsjov, Efnahagsbandalag Evrópu, Brussel, persónunjósnir og ég veit ekki hvað. Það sem hér er um að ræða er örlítil breyting á starfsháttum Hollustuverndar ríkisins. Það er nákvæmlega lagt niður í lögum hvert er starfssvið heilbrigðisnefnda og hvert er starfssvið Hollustuverndar ríkisins. Þar verður engin breyting á. Það eina sem við erum að gera hér er að skapa Hollustuvernd ríkisina þann möguleika að fylgja eftir eftirlitshlutverki sínu líkt og heilbrigðisnefndir gera. Það er ekkert því til fyrirstöðu að Hollustuvernd ríkisins geti falið viðkomandi heilbrigðisnefndum það hlutverk á þess vegum þannig að um aukna miðstýringu er hér ekki að ræða ( ÓÞÞ: Þetta er rangur málflutningur og til skammar.) heldur einungis það að gefa Hollustuverndinni sömu möguleika og heilbrigðisnefndir hafa. ( Forseti: Forseta er illa við að stöðva þessi fróðlegu orðaskipti en ég vil biðja þm. um að hafa ekki samtöl í salnum.) Og mér er óskiljanlegt hversu viðskotaillur hv. 2. þm. Vestf. getur orðið út af ekki meira máli en hér er um að ræða.