Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Herra forseti. Aðeins örstutt og reyndar lítið um efnisatriðin annað en það að ég varð fyrir vonbrigðum með ræðu hv. síðasta ræðumanns, að hann skuli leggjast gegn þessum sjálfsögðu lagfæringum sem hér er lagt til að gerðar verði á lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit.
Það var aðeins hitt atriðið, að auðvitað veit ég hver er höfundur greinargerðar frv. Frammíkall mitt varðaði það að ég vissi ekki hvaðan orðatiltækið ,,að kippa á klakk`` væri komið, hvort það væri komið úr Njálu eða annars staðar frá. Ég ætla ekki að deila um það við hv. þm. Ég er alveg viss um að hann er betur heima í því en ég. ( Gripið fram í: Hefurðu ekki lesið Njálu?) Ég hef lesið Njálu jú, en ég man orðatiltæki þaðan ekki svo gjörla og ég efast ekki um að það sé rétt hjá honum að þetta orðatiltæki sé ekki úr Njálu.