Réttur til fiskveiða í landhelgi Íslands
Miðvikudaginn 14. febrúar 1990


     Hjörleifur Guttormsson:
    Virðulegur forseti. Ég hef ekki tekið þátt í umræðum um þetta mál á yfirstandandi þingi en tjáði mig um það síðast þegar það var flutt og mælti þá gegn frv. Afstaða mín er óbreytt nú. Ég tel að mál þetta hafi ekki fengið nægilega athugun. Hér er um að ræða samskiptamál við önnur ríki, nágrannaríki vissulega sem eru alls góðs makleg af Íslendinga hálfu, en ég tel nauðsynlegt að mál af þessum toga fái ítarlegri athugun m.a. á vettvangi utanrmn. þingsins áður en lögfest er og segi því nei.