Kristín Einarsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta frv., svo mikið sem við höfum rætt um meginþátt þessa máls. Skoðun kvennalistakvenna er að ekki skuli hækka vexti af þegar teknum lánum. Það samkomulag sem Kvennalistinn gerði við ríkisstjórnina í tengslum við húsbréfafrumvarpið, þ.e. einn liður þess samkomulags, þriðji liðurinn, hljómar svo, með leyfi forseta:
,,Vextir af lánum sem úthlutað hefur verið úr Byggingarsjóði ríkisins verði ekki hækkaðir þegar húsbréfakerfið kemst í framkvæmd.``
Við höfum margsagt það að við teljum ekki rétt að hækka vexti af þegar teknum lánum, ekki síst vegna þess að fólk hefur gert ráð fyrir því að það borgi ákveðna vexti og ákveðnar afborganir af lánum og þykir það þess vegna ekki fært að annar aðilinn, sá sem lánið veitir, geti einhliða hækkað vexti. Í gildandi lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins er gert ráð fyrir því að fólk þurfi að gera ákveðnar áætlanir um afborganir af lánum og meira að segja er heimild fyrir því í lögunum að hafna umsóknum m.a. vegna þess að fólk geti ekki ráðið við afborganir af lánum. Við óttumst það að ef vextir verða nú skyndilega hækkaðir af teknum lánum muni enn fleiri lenda í þeim hópi sem ræður ekki við afborganirnar. Það er þess vegna sem ég er ekki sátt við þetta frv. Að vísu er talað um það í grg. og hv. 17. þm. Reykv. Geir H. Haarde talaði um það hér í sinni framsögu að hann teldi, að því er mér skildist, nánast óþarfa að flytja frv. Þetta væri meira og minna túlkunaratriði og það væri bara verið að taka af allan vafa um að óheimilt sé að lán innan ákveðins lánaflokks sé með breytilega eða mismunandi vexti. Ég er ekki sátt við þessa túlkun og þar af leiðandi er ég ósátt við þetta frv. og mun ekki styðja það.
Ég vildi aðeins koma þessu á framfæri, auk þess sem ég vil upplýsa hv. 17. þm. Reykv. um það að samkomulagið sem gert var milli ríkisstjórnarinnar og Kvennalistans á síðasta þingi í tengslum við húsbréfafrv. var eingöngu um þætti er vörðuðu húsnæðismál. Það mátti skilja það á hv. 17. þm. Reykv. hér áðan að það væru einhver atriði í því samkomulagi sem ekki tengdust húsnæðismálum. Ég veit ekki við hvað hann átti þar en ég vildi bara upplýsa það að svo er ekki. Allir þeir þættir eru tengdir húsnæðismálum og það var eingöngu þess vegna sem við töldum okkur fært að gera þetta samkomulag, að með því töldum við að við kæmum til móts við það fólk sem færi verst út úr þeirri breytingu sem þar var verið að gera. Það er hins vegar alveg rétt hjá hv. 17. þm. Reykv. að það ekki hefur ekki nema að óverulegu leyti verið staðið við það samkomulag sem þá var gert.