Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
Hæstv. forseti. Á þskj. 523 beinir hv. 5. þm. Reykv. til mín fyrirspurnum í fjórum liðum og fyrsta fyrirspurnin hljóðar á þennan veg:
,,1. Hve margir eigendur myndbandaleigufyrirtækja voru ákærðir og hve margir voru dæmdir til refsingar í framhaldi af aðgerðum lögreglu í desember 1986 og janúar 1987?``
Svarið hljóðar á þessa lund: Enginn aðili hefur verið ákærður vegna aðgerða lögreglunnar en einn aðili hefur gengið að dómsátt í sakadómi Reykjavíkur í nóvember 1988 þar sem hann samþykkti að greiða sekt og enn fremur voru allmörg myndbönd gerð upptæk í dómi.
Önnur spurningin var svohljóðandi: ,,Hve mörg myndbönd voru gerð upptæk í áðurnefndum tveimur aðgerðum?`` Í Reykjavík lagði lögreglan hald á 9.198 myndbönd en af þeim var 1.313 skilað aftur eftir skoðun og því eru nú í vörslu lögreglunnar 7.885 myndbönd. Í Kópavogi lagði lögreglan hald á 1.302 myndbönd en af þeim var skilað aftur eftir skoðun 164 myndböndum og því eru nú í vörslu lögreglunnar 1.137 myndbönd. Í Hafnarfirði lagði lögreglan hald á 2.547 myndbönd en eftir fyrstu athugun var 135 myndböndum skilað og eru því 2.412 myndbönd nú í vörslu lögreglunnar. Í Keflavík var lagt hald á 1.915 myndbönd.
Þriðja spurningin var svohljóðandi: ,,Hve mörg myndbandanna hafa verið gerð upptæk með dómi?`` Í áðurnefndri dómsátt fyrir sakadómi Reykjavíkur í nóvember 1988 voru 95 myndbönd gerð upptæk.
Loks er það fjórða spurningin sem hljóðaði svo: ,,Skv. 1. tölul. 81. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 54. gr. höfundalaga, nr. 72 frá 1972, er fyrningartími brota af þessu tagi tvö ár og þar með liðinn. Mun dómsmrh. beita sér fyrir því að myndböndum verði skilað til eigenda í þeim tilvikum þar sem ekkert hefur verið aðhafst? Ef ekki, má þá búast við því að rannsókn verði haldið áfram og krafa gerð um eignaupptöku eina sér af hálfu ákæruvaldsins?``
Svarið: Ráðuneytið er ekki formlegur aðili að þessum málum og mun því ekki hlutast til um hvort myndböndum verður skilað eða ekki. Hins vegar skal upplýst að í sl. viku tók ákæruvaldið ákvörðun að lokinni rannsókn í einu af myndbandamálunum um að ekki yrði krafist frekari aðgerða í því máli. Líta má svo á að afgreiðsla þess máls tákni það að afgreiðsla annarra mála sem eru til meðferðar vegna kæru um brot á höfundarétti verði með sama hætti og myndböndum í hlutaðeigandi málum skilað aftur.