Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):
Virðulegur forseti. Á þskj. 556 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. félmrh. Fyrirspurnin hljóðar svo:
,,Hvað líður framkvæmd á samþykkt Alþingis frá 10. apríl 1986 um skipulag svæðisins umhverfis Gullfoss og Geysi?``
Hinn 10. apríl 1986 samþykkti Alþingi svohljóðandi ályktun, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta skipuleggja svæðið umhverfis Gullfoss og Geysi í samræmi við ákvæði skipulagslaga. Verði Skipulagi ríkisins falin framkvæmd málsins í samvinnu við viðkomandi sveitarstjórnir, Náttúruverndarráð og Geysisnefnd.
Skipulagið miðist við að tryggja að umhverfi Gullfoss og Geysis verði ekki raskað með mannvirkjagerð, að nauðsynleg ferðamannaþjónusta verði byggð upp á einum stað á svæðinu og að byggingar og samgönguleiðir falli sem best að umhverfinu.``
Þessi tillaga var samþykkt í framhaldi af tillögu sem sá er þetta mælir flutti ásamt tveimur öðrum hv. þm., þeim Kjartani Jóhannssyni og Jóhönnu Sigurðardóttur, og var samþykkt svolítið breytt en í upphaflegu tillögunni var gert ráð fyrir að frv. til laga um þjóðgarð við Gullfoss og Geysi yrði lagt fyrir næsta reglulegt Alþingi. Það var hins vegar ekki tekið upp í þá tillögu sem endanlega var samþykkt.
Nú er liðinn alllangur tími síðan þessi samþykkt var gerð hér á hinu háa Alþingi og leikur mér því nokkur forvitni á að vita hvað líði framkvæmdinni og hvað dvelji málið og hef því beint þessari fsp. til hæstv. félmrh.