Fyrirspyrjandi (Friðrik Sophusson):
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að hafa upplýst hér á hinu háa Alþingi að sú ákvörðun verði tekin á þessu ári að þetta gjald verði fellt niður. Það kom fram í ræðu hæstv. ráðherra og ég er honum auðvitað þakklátur fyrir að segja það hér og nú þótt það hefði verið fróðlegra að fá að heyra hvenær nákvæmlega það mundi gerast.
Ástæðan fyrir því, virðulegur forseti, að ég bið um að fá að gera hér örstutta athugasemd er ekki þær skoðanir sem hæstv. ráðherra reifaði, sem ég er ósammála og við höfum rætt áður hér, ég tel að íslenskir hagsmunir og fríverslun fari saman, heldur hitt að hæstv. ráðherra sagði að áhrifin vegna uppsafnaðs söluskatts væru ekki úr sögunni og þess vegna óeðlilegt að leggja gjaldið af strax. Þá er eðlilegt að spurt sé og nú getur hæstv. ráðherra gefið alveg skýr svör: Er þeim fjármunum sem nú innheimtast með jöfnunargjaldi, 5% frá áramótum, varið til þess að greiða uppsafnaðan söluskatt af framleiðslu iðnvarnings frá síðasta ári?