Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Hæstv. forseti. Hinn 22. maí 1984 samþykkti Alþingi svohljóðandi þáltill.:
,,Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að skipa fimm manna nefnd er kanni hvernig háttað er rannsókn og meðferð nauðgunarmála og geri tillögur til úrbóta í þeim efnum.``
Þessa till. höfðu þingkonur Kvennalistans lagt fram í kjölfar fsp. frá Kvennalistanum en svör við þeirri fsp. gáfu til kynna að úrbóta væri sannanlega þörf í þessum efnum, sérstaklega hvað varðar rannsókn og meðferð nauðgunarmála en einnig og ekki síður hvað varðaði alla meðferð brotaþola.
Eftir samþykkt till. skipaði þáv. dómsmrh. Jón Helgason nefnd í júlí 1984. Í henni sátu Jónatan Þórmundsson prófessor, sem jafnframt var formaður nefndarinnar, Ásdís J. Rafnar lögfræðingur, Hildigunnur Ólafsdóttir afbrotafræðingur, Sigrún Júlíusdóttir félagsráðgjafi og sú sem hér stendur.
Nefndin vann af alúð að því verkefni sem henni var gefið og skilaði rannsóknarskýrslum ásamt ítarlegum tillögum til úrbóta í október 1988 í skýrslu sinni sem prentuð var í byrjun árs 1989. Þetta er viðamikil skýrsla upp á 361 síðu, og ég veit ekki til þess að henni hafi t.d. verið dreift til þingmanna enn. Síðan er liðið um eitt ár og fjórir mánuðir og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að ýta á eftir málinu utan þings hefur litlu þokað. Á meðan verður ekkert lát á brotum og vandi brotaþola í kynferðisafbrotamálum er jafnbrýnn og áður og ekki er hægt að bíða lengur eftir úrbótum. Ég hef því kosið að bera fram fyrirspurnir til fjögurra ráðherra til þess að krefja þá svara því framkvæmd málsins er svo sannarlega nú á ábyrgð þeirra og verður ekki lengur unað við aðgerðarleysi. Í dag munu tveir ráðherrar svara fyrirspurn um málið, þ.e. hæstv. heilbrrh. og hæstv. dómsmrh. en hæstv. forsrh. og hæstv. menntmrh. munu svara síðar.
Í tillögum nefndarinnar var lögð mikil áhersla á mikilvægi þess að fræða allt það starfsfólk sem þarf að annast brotaþola í nauðgunarmálum. Er það ekki síst vegna sérstöðu kynferðisbrota og alvarlegra áhrifa þeirra á tilfinningar og sálarlíf þeirra sem fyrir verða. Enn fremur gerði nefndin ítarlegar tillögur um neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðisbrota, líkamsárása og annarra ofbeldisbrota í stað þeirrar ófullkomnu og lítt samræmdu þjónustu sem nú er að fá. Tillögur nefndarinnar voru sniðnar eftir óskum sem komu fram í viðtalskönnun við brotaþola og einnig að fyrirmyndum erlendis frá, en þar hafa víða verið gerðar róttækar breytingar á sl. áratug.
Ég hef því leyft mér að bera fram fyrirspurnir til hæstv. heilbrrh. um aðgerðir vegna tillagna nauðgunarmálanefndar á þskj. 559, sem ég mun ekki lesa upp nú en vænti góðra svara frá hæstv. ráðherra.