Aðgerðir vegna tillagna nauðgunarmálanefndar
Fimmtudaginn 15. febrúar 1990


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir hefur hér borið fram til mín fsp. um aðgerðir vegna tillagna nauðgunarmálanefndar í þremur liðum og undirliðum, ítarlega fyrirspurn.
    Og það er sannast sagna, eins og reyndar fram kom í máli hv. fyrirspyrjanda, að þessi skýrsla hefur lítið verið til umfjöllunar. Nauðgunarmálanefnd var sett á laggirnar í júlí 1984 eftir samþykkt Alþingis á þáltill. þess eðlis að dómsmrh. yrði falið að skipa nefnd fimm manna sem kannaði hvernig háttað væri rannsókn á meðferð nauðgunarmála og gera tillögur til úrbóta í þeim efnum. Nefndin mun hafa skilað áliti til dómsmrh. á árinu 1988 og nál. var gefið út sem skýrsla á vegum dómsmrn. 1989. Heilbrrn. átti engan fulltrúa í þessari nefnd.
    Tillögur nauðgunarmálanefndar hafa það ég best veit lítið verið til umfjöllunar og engin formleg ákvörðun verið tekin um hvernig og að hve miklu leyti skuli framfylgja þeim en þeim fylgja á ýmsum sviðum veruleg útgjöld. Þær fyrirspurnir sem bornar eru hér fram um framkvæmd þessara tillagna eru auðsjáanlega byggðar á því að ákvörðun hafi verið tekin um að framfylgja tillögunum. Í heilbrrn. hefur enn sem komið er lítil sem engin umræða farið fram um þann hluta tillagnanna sem að því ráðuneyti snúa og við gerð fjárhagsáætlana fyrir árið 1990 var þess vegna af hálfu ráðuneytisins ekki gerð nein tillaga sem snertir framkvæmd málsins.
    Hins vegar hefur það komið fram að við meðferð frv. til fjárlaga á sl. hausti gerði fjmrh. tillögu um stöðuheimild á Borgarspítala fyrir hjúkrunarfræðing vegna þessa máls en stjórn Borgarspítala mun aldrei hafa um málið fjallað og hefur eftir því sem best er vitað ekki tekið neina afstöðu til tillagna nauðgunarmálanefndar. Með vísun til þessa sem sagt hefur verið hér að framan verða svör við fyrirspurn hv. þm. svohljóðandi:
    Í fyrsta lagi er spurt: ,,Hvað hefur verið gert til að auka fræðslu í grunnnámi heilbrigðisstétta um kynferðisbrot, áhrif þeirra á brotaþola og meðferð þeirra?`` Í þeim skólum sem heilbrrn. hefur afskipti af hefur fræðsla í grunnnámi ekki verið aukin um kynferðisafbrot en ráðuneytið getur ekki svarað fyrir meginhluta skóla heilbrigðisstétta því að þeir heyra og falla undir menntmrn.
    Í öðru lagi er spurt: ,,Hafa verið haldin sérstök námskeið um kynferðisbrot fyrir starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar og hefur slík fræðsla verið tekin upp sem hluti af reglubundinni endurmenntun heilbrigðisstarfsfólks?`` Svar við þessari fsp. er að engin sérstök námskeið um kynferðisafbrot hafa verið haldin fyrir starfsfólk í heilbrigðisþjónustu og engar ákvarðanir verið teknar um að taka slíka kennslu upp sem hluta af reglubundinni endurmenntun.
    Í þriðja lagi er síðan spurt: ,,Hvað hefur verið gert til að koma á fót neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb nauðgana og annarra kynferðisafbrota eins og

nauðgunarmálanefnd lagði til í skýrslu sinni er skilað var í október 1988?`` Í undirliðum er spurt: ,,a. Hvar hefur neyðarmóttökunni verið valinn staður? b. Hefur starfsfólk verið ráðið sérstaklega að neyðarmóttöku og það undirbúið undir starf sitt þar? c. Hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar til að tengja starf neyðarmóttökunnar starfi annarra þeirra sem annast brotaþola í nauðgunarmálum og öðrum kynferðisbrotamálum?`` Og sem svar við þessari ítarlegu spurningu er nú því miður svo að afstaðan til þess hvort og hvar neyðarmóttakan fyrir fórnarlömb nauðgana og annarra kynferðisafbrota verði hefur ekki verið tekin. Svo sem fyrr sagði er ein stöðuheimild í fjárlögum til Borgarspítala vegna slíkrar móttöku en sú stöðuheimild hefur enn ekki verið notuð.
    Það verður að segjast að það er reyndar slæmt að svo ítarlegt nefndarstarf og svo ítarleg skýrsla skuli ekki hafa fengið ítarlegri og betri umfjöllun heldur en þessi svör bera með sér. Málið hefur hins vegar nýlega verið tekið upp í ríkisstjórninni að frumkvæði hæstv. dómsmrh. og þar falið fjórum ráðherrum að taka til frekari meðferðar og umfjöllunar. Við hæstv. dómsmrh. höfum síðan átt fund um málin sem að okkar ráðuneytum lúta sérstaklega og hvernig framfylgja megi eða koma af stað a.m.k. vinnu til þess að framfylgja ýmsum góðum tillögum sem fram koma í þessari skýrslu og ég vænti þess að þessu sögðu að frekari ákvarðana um framkvæmd mála í samræmi við skýrsluna og þetta mikla og ítarlega nefndarstarf sé því að vænta innan tíðar, en umræða hefur verið lítil og ákvarðanir engar fyrirliggjandi.