Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
Hæstv. forseti. Þessi umræða öll sem hér hefur orðið hefur náttúrlega lotið að því fyrst og fremst að hrinda þessu þarfa máli áfram. Ég vil aðeins endurtaka hér í lokin það sem ég áðan sagði. Ég hef ákveðið að eiga að því frumkvæði, eins og ég raunar vék að að hefði þegar verið gert í ríkisstjórninni af hálfu þeirra fjögurra ráðherra sem ég minntist á í þessu sambandi. Varðandi þær ræður aðrar sem hér voru fluttar af hv. 5. og hv. 11. þm. Reykv. þá þakka ég líka þær ábendingar sem þar komu fram. Hv. 5. þm. Reykv. minntist á það að endurskoða þyrfti lögin um meðferð opinberra mála. Það hafði raunar fyrr fram komið í mínu svari og verður vitaskuld gert.
En ég endurtek eins og ég fyrr sagði, ég vil fá álit réttarfarsnefndar á þeim atriðum áður en til þeirrar endurskoðunar kemur.