Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Till. sem liggur hér frammi til þál., um uppskurð og hagræðingu í ríkiskerfinu, og er flutt af hv. þm. Framsfl. er góðra gjalda verð og ætti að njóta hér meiri athygli að því leyti til að kominn er tími til að setja hemil á útgjöld ríkisins. Það sem er athygli vert er hins vegar það að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa lítinn áhuga á þessari tillögu þrátt fyrir það að þessa dagana séu þeir að leggja fram niðurskurðartillögu í ríkiskerfinu og eftir því sem fregnir herma eru þær í allt aðra veru og gerðar með þeim hætti að þær vekja þá hugsun hjá manni að þeir viti ekkert um fjármál yfir höfuð eða hvernig þeir ætli að skera niður.
Ég heyrði það í fregnum að það átti auðvitað að skera niður aðila sem eru ekki tengdir ríkiskerfinu og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. En það er ekki farið í þau verkefni sem liggur fyrir að hægt væri að skera niður og bæta.
Það er nú svo að þessi tillaga stefnir í það að laga ríkisreksturinn og er á margan hátt ágæt, ég tek undir margt af því sem þar segir, en á meðan ríkisstjórnin vinnur á allt annan hátt að fjármálunum er þessi tillaga alveg marklaus, jafnvel þó að þetta séu stjórnarþingmenn sem flytja hana. Það er ekki björgulegt til þess að hugsa að ef þær fregnir sem voru í fjölmiðlum eru réttar, og virðast tillögur ríkisstjórnarinnar vera á sveimi í fjölmiðlum áður en þingmenn stjórnarandstöðunnar fá að sjá nokkuð um það, að enn þá eigi að sauma að húsbyggjendum í landinu, þ.e. þeim sem njóta ekki náðar hæstv. félmrh., þeim húsbyggjendum sem eru eftir gamla kerfinu, þeim sem hafa sótt um í Byggingarsjóð ríkisins, eru það nú ekki gleðifregnir. Hins vegar eiga allir þeir sem síðar og hafa núna sótt um í einhverjum nýjum kerfum sem hæstv. félmrh. hefur sett á laggirnar að fá alveg óskerta fyrirgreiðslu. Það eru slík vinnubrögð sem vekja upp hjá manni efasemdir um að þeir menn sem standa að þeirri ríkisstjórn sem núna ræður ríkjum séu færir um að taka þetta verkefni að sér.
Ég vil líka minna á eina af þeim fregnum sem bárust í sambandi við þennan niðurskurð sem nú átti að gera, auðvitað það lúsaframlag sem á að leggja til íþróttahreyfingarinnar og var nú ekki á það bætandi svo lítið sem það er enda eru það frjáls félagasamtök sem áttu að fá það og var því vafalaust hægur vandi að skera hann niður án mótmæla eins og þeir hafa orðið fyrir í ríkiskerfinu. Hins vegar er verið að ana út í framkvæmdir fyrir milljarða á vegum ríkisins sem liggur ekkert fyrir um að séu nauðsynlegar eða væri ekki hægt að gera með hagkvæmari og betri hætti. Ég ætla að minnast hér á Þjóðleikhúsið. Þær tölur sem eru á kreiki varðandi það eru ógnvekjandi og þær minna mann á það að eitthvað hlýtur að vera að í þessu ágæta ríkiskerfi. Ég vil líka koma hér inn á það sem stjórnandi fyrirtækis sem hefur notið fjárframlaga frá ríkinu í fjölda ára að það er alveg ljóst að stjórni maður vel er fyrirtækinu refsað. Ég get nefnt dæmi
um það að ég hef horft á það að fyrirtæki hafa farið langt fram úr fjárlögum ár eftir ár. Það hefur endanlega orðið þannig að menn hafa sagt: Þetta fyrirtæki verður að fá meiri fjárframlög. Það verður að fá hærri fjárframlög. Það er aldrei tekið á hinum raunverulega rekstrarvanda og hvernig hægt er að reka fyrirtækin betur. Það er ekki litið á það í raun hvort fyrirtækin eru vel rekin eða ekki. Það er þessi stóri vandi sem þjáir það fjármálakerfi sem núna er uppi hjá ríkinu. Núverandi ríkisstjórn hefur aukið ríkissjóði útgjöldin, hefur ráðið sér nýja starfsmenn upp á marga milljarða og ég tala nú ekki um sérfræðingastóðið sem hleypur í kringum ráðherrana. Það er með þeim hætti að það setur að manni ótta, að slíkir menn skuli ráða ferðinni í fjármálastjórn ríkisins.
Ég vil hins vegar lýsa því yfir, eins og kom glögglega fram við umræðu fjárlaga hér í haust þegar hv. 5. þm. Vesturl. flutti sína fjárlagaræðu og lagði fram ýmsar hugmyndir um sparnað í ríkiskerfinu og nefndi það jafnframt um leið að við hefðum lagt mikla vinnu í að skoða það, og ég get sagt það hér að við höfðum þá hugmyndir um það að hugsanlegt væri spara upp á 10--12 milljarða í ríkiskerfinu þó það yrði ekki gert í einum áfanga. Og ég segi það enn að það er hægt að hagræða og spara í ríkiskerfinu, en það verður ekki gert með þeim hætti sem nú er gert að ætla eitthvert flatt sparnaðarhlutfall og höggva af eftir tilviljunum og ráðast helst á þá sem geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér.