Alexander Stefánsson:
Virðulegi forseti. Ég hefði gjarnan viljað vera mættur hér fyrr en ég festist því miður á öðrum fundi sem verður að teljast jafnvel mikilvægari en þessi hér um það mál sem við erum að ræða á þskj. 386 sem er till. um uppskurð og hagræðingu í ríkiskerfinu.
Í sjálfu sér þarf ég ekki að halda hér langa ræðu miðað við þá framsögu sem var haldin fyrir þessu máli, en það sem kom mér fyrst og fremst til að taka til máls var það að þegar þetta mál var til 1. umr. hér á fyrri fundi tóku margir til máls og m.a. hv. 1. þm. Reykv. sem er því miður ekki hér í salnum. Hann tók svo til orða að í fyrsta lagi væri svo um okkur sem erum flm. að þessu að við værum sérstakir uppreisnarmenn innan Framsfl. og það væru örlög okkar að vera settir út í horn, eins og hann orðaði það um leið og hann fagnaði þessari till. og lýsti yfir stuðningi við þá þáltill. sem hér er og við þær tillögur í efnahagsmálum sem við flm. þessarar till. höfum barist fyrir og lagt fram í okkar flokki. Ég skil auðvitað hv. þm. þannig að hann vill gjarnan setja okkur í sömu spor og hann er sjálfur í í sínum flokki þar sem hann varð að þola þau örlög að vera settur út, í fyrsta lagi úr ráðherradómi eftir stuttan tíma og síðan út úr því embætti sem hann hafði, að vera varaformaður síns flokks. Þetta er náttúrlega mál sem hefur vakið athygli, en ég ætlaði bara aðeins að segja honum það að svo er ekki með okkur, þessa fjórmenninga. Við vorum settir í þessa efnahagsnefnd flokksins til þess að móta ákveðnar tillögur og skiluðum þeim af okkur til þingflokksins í október 1989. Þessar tillögur hafa verið kynntar mjög meðal þjóðarinnar og eitt af því sem er í þessum tillögum er það sem við leggjum hér til að hluta til í þáltill.
Okkar flokkur, Framsfl., hefur fagnað tillögum þessara fjórmenninga. M.a. var þetta eitt af aðalmálum á síðasta miðstjórnarfundi. Fundurinn fagnaði
þessu framtaki og þessum merku efnahagstillögum, eins og orðað var, og gerði þær að verulegu leyti að sínum samþykktum, miðstjórnarsamþykktum, um efnahagsmál, og þess vegna er langt bil á milli þess og þess sem hv. 1. þm. Reykv. vildi meina hér, að við værum einhver hornreka í flokknum. Það er eitthvað annað. Það er tekið meira tillit til okkar tillagna en áður hefur tíðkast um tillögur fárra aðila í þingflokknum sem eru settir í það að marka stefnu í efnahagsmálum. Og af því að ég fór að minnast á þetta vil ég aðeins nefna þessa stefnumótun sem kemur fram í okkar tillögum og miðstjórnarfundur flokksins samþykkti að verulegu leyti sem sínar, að þær ganga það langt og hafa þegar haft þau áhrif í meðferð ýmissa mála hér á landi að það gengur langt fram yfir það sem við, eftir þessa miklu vinnu sem við lögðum í þetta, gerðum okkur vonir um. Ég minni bara á núna, í sambandi við síðustu kjarasamninga, að þá er alveg ljóst að aðilar vinnumarkaðarins voru með þessar tillögur í höndunum og þeir tóku fullt tillit til þeirra sjónarmiða sem við leggjum fram í sambandi við lausnir í atvinnu- og efnahagsmálum.
Eitt af því sem er náttúrlega eitt stærsta málið í þessu öllu saman er í sambandi við ríkisfjármálin. Við bendum á það í þessari þáltill. að hér er um mjög stórt og alvarlegt mál í okkar stjórnskipulagi að ræða sem verður að finna nýjan flöt á og við bendum á ýmsar leiðir, bæði í efnahagstillögunum og eins í þessari þáltill., sem þarf að fara til þess að ná því markmiði.
Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að eyða löngum tíma í upptalningu á þessu hér, en ég vil aðeins benda á það að fjvn. Alþingis hefur m.a. öll, einróma, lagt fram frv. til laga á Alþingi sem er eftir að ræða, um fjárgreiðslur úr ríkissjóði og fleira, og þessar tillögur eru í mörgum veigamiklum atriðum nákvæmlega í sama stíl og sú efnahagsstefna sem við lögðum til í þessum málum og kemur raunar fram að hluta til í þessari þáltill.
Hér er þess vegna um mjög stórt mál að ræða sem Alþingi á eftir að fjalla um og ég þarf ekki að fara mörgum orðum um það að í sambandi við þennan uppskurð og hagræðingu í ríkiskerfinu, hvað hann er mikilvægur, það eru alltaf að berast inn í Alþingi núna á hverjum degi og meira að segja núna í sambandi við aðgerðir í framhaldi af kjarasamningum, þá er alveg ljóst að þarna stöndum við strax frammi fyrir málum sem hefði átt að vera búið að leysa fyrir löngu, löngu síðan, þessa sjálfvirkni í ríkiskerfinu sem hefur verið svo erfitt að fást við og hefur leitt af sér útgjöld ríkisins sem enginn hefur vitað fyrir fram. Ég held að kominn sé tími til að menn fari að taka á þessu máli í alvöru, en það verður ekki gert nema slíkur uppskurður fari fram, sem við erum hér að benda á, og slíkar lagaákvarðanir verði teknar sem felast m.a. í frv. til laga frá hv. fjvn. sem hér liggur fyrir þinginu.
Ég vil t.d. nefna, af því að það er svo nálægt mér í nútímanum, að við erum núna að fjalla um ýmsa þætti í sambandi við kjaramál sem samið hefur verið um, bæði á sl. ári og einnig á þessu ári sem varða réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Þetta leiðir af sér það að það verður að fara að stokka upp kerfið. Þeir sem voru lausráðnir eða verkefnaráðnir öðlast allt í einu í gegnum þessa sérsamninga réttindi til ráðningar sem fastir starfsmenn
ríkisins. Hér er um að ræða 600--700 starfsmenn sem eiga þá að koma inn sem fastráðnir ríkisstarfsmenn sem ekki hefur verið gert ráð fyrir í fjárhagskerfinu sjálfu. Þetta er lítið dæmi af hundruðum dæma um það hvernig nauðsynlegt er að breyta þessu ríkiskerfi og taka það til uppskurðar og gera ákveðna hagræðingu í kerfinu.
Virðulegi forseti. Ég er búinn með minn tíma, en ég vil aðeins undirstrika þýðingu þessarar þáltill., hvað sem menn að öðru leyti segja um umgjörðina o.s.frv., en alla vega er nauðsynlegt að taka hér fastar á málum.