Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Umræðu verður nú frestað, svo og fundinum til kl. 2, en þá verður áfram hlé á þessari umræðu um stund þar eð lofað hefur verið að hálftíma umræða fari fram um málefni Slippstöðvarinnar á Akureyri. Síðan verður 1. mál tekið á dagskrá en þar á eftir verður þessari umræðu haldið áfram. Það eru ástæður fyrir því að forseti hefur orðið að haga þessu svo til sem ég er sannfærð um að allir hv. þm. skilji. Fundi er nú frestað.