Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Hæstv. forseti. Fyrirspyrjandi hreyfir hér mikilsverðu máli þar sem er staða skipasmíðaiðnaðarins og verkefnastaða Slippstöðvarinnar. Um það vil ég segja að þar er einfaldlega á ferðinni mál sem verður að leysa og hlýtur að leysast á næstu dögum eða vikum, um annað er ekki að ræða. Það er upplýst að um 10 skip eru í smíðum erlendis og ekki hefur verið greint frá sérstökum erfiðleikum við fjármögnun þeirra. Þess vegna er það einfaldlega niðurstaða sem við getum ekki sætt okkur við að ekki sé unnt að tryggja fjármögnun þess skips, sem þó er í smíðum hér innan lands, með fullnægjandi hætti. Þess vegna segi ég það að það er einfaldlega hlutur sem hlýtur að leysast, því held ég að menn megi treysta að það verði gert. Og þegar það liggur fyrir að Byggðastofnun hefur þegar tryggt fjármögnun á 40% af smíðaverðinu er mér illskiljanlegt að aðrir aðilar finnist þá ekki sem geta tryggt það sem á vantar. En það þarf að gerast og það þarf að gerast fljótt vegna þess að sú staða sem nú er uppi hjá Slippstöðinni hindrar það að stöðin geti í framhaldi af þessu verki tekið við öðrum sem hún verður auðvitað að afla sér. Og í því sambandi vil ég segja fyrir mitt leyti að það er auðvitað mikilvægt að haga þannig málum að verkefnum sé beint til innlendu skipasmíðastöðvanna. Þar á ekki síst að horfa til opinberra aðila, opinbera skipaflotans og ráðstafanir hafa verið gerðar á undanförnum mánuðum einmitt til þess að beina verkefnum af því tagi til innlendra skipasmíðastöðva. Ég nefni þar endurbyggingu Árna Friðrikssonar í skipasmíðastöð á Akranesi og ég nefni viðgerðir á skipum Skipaútgerðar ríkisins, en eins og kunnugt er er Hekla nýkomin úr mikilli viðgerð í Slippstöðinni á Akureyri og það verkefni lagfærði talsvert stöðuna þar nú í svartasta skammdeginu. Ég vil enn fremur upplýsa það að innan fárra vikna verða gögn tilbúin til að afla endanlegra tilboða í smíði Vestmannaeyjaferju og ég geri mér vonir um að fyrir apríllok verði unnt að taka ákvörðun um það hvar það skip verður byggt og auðvitað vonum við að innlendar skipasmíðastöðvar verði það vel samkeppnisfærar í því sambandi að menn geti tekið þar innlendu tilboði.