Málefni Slippstöðvarinnar á Akureyri
Fimmtudaginn 15. febrúar 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Í 32. gr. þingskapa þar sem talað er um hálftíma umræðu er skýrt og skorinort sagt: ,,Enginn má tala oftar en tvisvar.`` Vegna undanfarinnar umræðu um það að forseti sé til rýmilegur í umræðum sem þessum, þá hyggst forseti nú fara nákvæmlega að lögum.