Flm. (Kristín Einarsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 2. þm. Vesturl. Friðjóni Þórðarsyni fyrir undirtektirnar, enda er hann meðflm. að tillögunni og hefur með því lýst stuðningi sínum við málið. Ég vil einnig þakka hæstv. samgrh. fyrir undirtektir við þetta mál. Ég ítreka og vil taka undir hans síðustu orð þar sem hann segir að fara þurfi mjög varlega í því að hefta ferðir manna og boð og bönn séu ekki það sem leysir þessi mál.
Ég er hins vegar sammála því að einhverjar heimildir þurfi að vera til til að koma í veg fyrir að fólk ani út í óvissuna. Og e.t.v. er ástæða til að setja aðrar reglur um ferðir erlendra aðila en Íslendinga þar sem útlendingar þekkja óhjákvæmilega minna til landsins og þeirra veðra sem er von á hér. Ég vil benda á það að þó svo það geti verið hættulegt að fara upp á hálendið á veturna, sérstaklega um miðjan vetur, þá geti það líka verið hættulegt á sumrin. Það er ekki einhlítt að banna ferðir á einhverjum ákveðnum árstímum. Það getur verið hættulegt allt árið um kring og þess vegna verður að fara mjög varlega í þessum efnum.
Ég vil aðeins benda á að margar tillögur hafa komið fram um það hvernig slíkar reglur gætu litið út um ferðir aðila um hálendið, bæði að sumri og vetri til. Ég hef undir höndum tillögur sem voru unnar af fulltrúum Slysavarnafélags Íslands, Landssambands flugbjörgunarsveita og Landssambands hjálparsveita skáta. Þær voru unnar í samvinnu við Ferðamálaráð Íslands og eru reyndar frá 1984. Það var ákaflega lítið gert með þær tillögur en gjarnan má dusta rykið af þeim og athuga hvort hægt er að nýta þær. Árið 1988 beitti Landssamband hjálparsveita skáta sér fyrir því að koma með tillögur um hvernig þessum málum gæti verið fyrir komið. Það er einmitt mjög mikilvægt að byggja á þeim hugmyndum sem fram hafa komið og vera í góðri samvinnu við þessa aðila,
flugbjörgunarsveitir, slysavarnafélög og hjálparsveitir skáta um land allt.
Ég er mjög ánægð með að eitthvað skuli hafa verið hreyft við þessu máli og vona að við getum afgreitt það fljótt og vel, sérstaklega eftir þær góðu undirtektir við þetta mál sem komu fram í máli hæstv. ráðherra.