Uppskurður og hagræðing í ríkiskerfinu
Fimmtudaginn 15. febrúar 1990


     Flm. (Stefán Guðmundsson):
    Virðulegur forseti. Ég hélt að síðasti ræðumaður ætlaði að fara að biðja um það að hér yrði rauða spjaldinu beitt, en sem betur fór varð það ekki. Því miður er tími minn liðinn svo ég get ekki átt orðastað við hæstv. samgrh. og landbrh., því miður. Ég hefði einnig haft gaman af því að eiga orðastað við annan fyrrv. ráðherra, Matthías Bjarnason, sem vék að þessum till. okkar og bara aðeins að fá að vita hver hefði verið ráðherra þegar heilbr.- og trmrn. var flutt inn á Laugaveg og hver hefði verið samgrh. þegar samgrn. var flutt niður í Hafnarhús? Ég hefði haft gaman af því að spyrja þessa ráðherra hvernig væri umhorfs núna uppi í Arnarhvoli, hvað væru mörg ráðuneyti þar. Mér finnst þeir vera býsna hvumpnir þessir fyrrv. og núv. ráðherrar.
    Ég mótmæli því mjög kröftuglega að þessi till. sé flutt sem einhver sýndarmennska. Ég mótmæli því mjög kröftuglega fyrir hönd okkar flm. Þetta er ekki till. sem er flutt sem sýndarmennskutillaga, þetta er mjög góð till., merk og bráðnauðsynleg. Við flm. munum örugglega beita áhrifum okkar til þess að þessi till. verði virk. Ég ber það mikið traust til þingmanna að ég trúi því að þeir muni samþykkja hana hér og við munum reyna að sjá til þess að ríkisstjórnin komi henni í framkvæmd.