Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Mánudaginn 19. febrúar 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseta hefur borist eftirfarandi bréf frá forseta Nd.:

    ,,Kristín Einarsdóttir, 12. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég vegna veikinda get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að vegna anna 1. varamanns taki 2. varamaður Kvennalista í Reykjavík, Sigríður Lillý Baldursdóttir eðlisfræðingur, sæti á Alþingi í forföllum mínum.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.

Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Þá hefur forseta borist eftirfarandi bréf:

    ,,Það tilkynnist yður hér með að vegna anna sér undirrituð sér ekki fært að taka sæti á Alþingi nú í fjarveru Kristínar Einarsdóttur alþm.

Guðrún Halldórsdóttir,

1. varaþm. Kvennalista í Reykjavík.``


    Sigríður Lillý Baldursdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hana velkomna til starfa.