Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Virðulegi forseti. Eins og hér hefur komið fram gat ég því miður ekki verið við umræðuna hér sl. fimmtudag. Ég hef orðið mér úti um ræðu hv. 1. þm. Suðurl. og finn þar tvö atriði sem rétt er að ég drepi á hér nú.
Í fyrsta lagi vísar hv. þm. í svar mitt við spurningu fréttamanns Morgunblaðsins frá 17. sept. þar sem ég segist vissulega líta á þessi kaup Landsbankans á Samvinnubankanum sem lið í björgunaraðgerðum til handa Sambandinu. Eins og kemur fram er ég að svara spurningu. Ég get ítrekað það að ég lít svo á og tel reyndar ekkert óeðlilegt við það að viðskiptabanki leiti leiða til að aðstoða stóran viðskiptaaðila. Um það eru að sjálfsögðu ótal dæmi og gerist nánast daglega. Ég held að alveg ljóst sé að erfiðleikar svo stórs viðskiptaaðila hljóta að hafa veruleg áhrif á viðskiptabankann. Og ég get tekið undir það sem kom fram hér áðan hjá hv. þm. Þórhildi Þorleifsdóttur, þar sem hún lýsti því, að mér skildist, sem eðlilegum viðskiptum banka og viðskiptaaðila.
Ég svara einnig þeirri spurningu sem til mín var beint hvort ég liti það ekki alvarlegum augum ef gjaldfelld yrði skuld við Hambros-banka. Ég hafði engar upplýsingar um að slíkt stæði til. Ég svara því eins og ég hygg að hver sjáandi maður hljóti að sjá að ef slík skuld félli, þá hlyti það að hafa hinar verstu afleiðingar fyrir viðskiptabanka og þjóðarbúið og held ég að það þurfi út af fyrir sig ekki að rökræða það. Ég held að hver maður hljóti að sjá að svo er. Ég held líka að hver einasti maður hljóti að sjá að gjaldþrot fyrirtækis eins og Sambandsins, ef um það hefði verið að ræða sem betur fer er alls ekki, þá væri það vitanlega hin mesta þjóðarvá. Þarna var um svör við slíkum spurningum að ræða og get ég endurtekið að það er allt hið alvarlegasta mál. En mér sýnist, eins og reyndar er komið hér fram
í umræðu síðar af reikningum og öðru slíku, sem allir hafa aðgang að, að ekki sé um það að ræða að Sambandið verði gjaldþrota eins og um var spurt.
Í öðru lagi spyr hv. þm. um tvöfalt vaxtasiðferði hæstv. ríkisstjórnar. Ég skal viðurkenna að mér er ekki alveg ljóst við hvað hann á þar, en ég hef ekki metið það hvaða vexti eigi að greiða af þessum kaupum. Ég les hér eftir hv. þm. að þeir muni vera 11%. Er þar átt við nafnvexti, þ.e. vexti umfram verðbólgu? Að sjálfsögðu mun þarna vera átt við nafnvexti. ( ÞP: Raunvexti.) Raunvexti, já. Ég viðurkenni að ég hef ekki hugleitt hvaða vexti er verið að greiða og vil ekki meta það. Ég tel það algerlega vera mál milli viðskiptabankans og viðskiptavinarins. Ég treysti bankastjórum Landsbankans fullkomlega til að ákveða hvaða vexti beri að greiða ef þeir telja rétt að greiða vexti.
Ég hef líka lýst því, það er rétt, að ég teldi ekki óeðlilegt að greiða vexti og vísa þá í þann samning sem var gerður 1. sept. og mætti reyndar hafa um þau mál mörg orð. Skýrslan sem hér er lögð fram er afar fróðleg um marga hluti. Ekki síst þykir mér fróðlegt
ýmislegt sem kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem ég hafði ekki séð fyrr. T.d. segir í II. kafla að fjárhæðin 828 millj. kr. byggist á ákveðnum fyrirvörum, svo sem vantöldum lífeyrisskuldbindingum bankans við starfsmenn og mati á taphættu útlána. Er hér verið að vísa til þess bréfs sem bankastjórarnir rituðu 10. sept. 1989 þar sem þeir segja, með leyfi forseta:
,,Bankaráð Landsbanka Íslands samþykkir að bankinn kaupi hlut Sambands ísl. samvinnufélaga í Samvinnubanka Íslands hf., sem er 52% af hlutafé bankans, fyrir 828 millj. kr.``
Ég sé þessara fyrirvara hvergi getið í bréfinu og veit satt að segja ekki í hvað Ríkisendurskoðun er þarna að vísa. Jafnvel í því sem hér er birt úr samþykkt bankans, sem reyndar var fréttatilkynning, er ekki getið þessara fyrirvara, með leyfi forseta: ,,Af hálfu Landsbankans lúta fyrirvarar m.a. að greiðslukjörum, greiðslutilhögun og aðstoð stjórnvalda, einkum Seðlabanka, við kaupin.`` Þarna er hvergi getið um lífeyrissjóðsskuld við starfsmenn bankans eða mat á taphættu útlána heldur eingöngu rætt um greiðslukjör, greiðslutilhögun og aðstoð Seðlabanka Íslands. Það er engin furða þótt mönnum þyki þetta allfróðlegt og sé ég ekki annað en þetta bréf eða samþykkt stjórnar bankaráðsins sem bréfið frá 10. sept. byggir á sé æðiskuldbindandi fyrir Landsbankann, og reyndar staðfestur þar með samningurinn frá 1. sept. Af þeim sökum hef ég ekki talið óeðlilegt þó vextir væru greiddir og tel að þeir séu raunar viðurkenning á því.
Ég tek það fram að ég er ekkert að meta hvort verðið er rétt, 828 millj. eða 605 millj. Ég hef engin gögn til að meta slíkt, enda, eins og kemur fram mjög greinilega í skýrslu Ríkisendurskoðunar, er það bankaráðs bankans að meta þá hluti. Afskipti viðskrh. varða fyrst og fremst eiginfjárstöðu, hvernig hún verður eftir slík kaup en hins vegar ekki mat á upphæðinni.
Hér hefur verið nokkuð fjallað um þau ummæli hæstv. viðskrh. að breyta eigi ríkisbönkunum í hlutafjárbanka, hlutafélög, en um það er ekkert samkomulag og ekkert um það getið í stjórnarsáttmálanum. Ég vil, með leyfi forseta, lesa það
sem segir í stjórnarsáttmála um hagræðingu í bankakerfinu:
,,Stefnt verður að samruna og stækkun banka, m.a. með endurskipulagningu á viðskiptabönkum í eigu ríkisins. Markmiðið er að ná aukinni hagkvæmni og rekstraröryggi í bankakerfinu, draga úr vaxtamun og tryggja eðlilega samkeppni viðskiptabanka og bæta þjónustu.``
Þarna er tekið fram að stefna eigi að hagræðingu og endurskipulagningu banka í eigu ríkisins. Ekkert er gefið undir fótinn með að breyta þeim í hlutafélög og verður ekki gert af þessum stjórnarflokkum. Um það hefur ekki verið samið þannig að hæstv. viðskrh. er að sjálfsögðu að lýsa sínum eigin skoðunum þar. Út af fyrir sig er það rétt að það kann að vera nokkrum
vandkvæðum bundið að reka ríkisbanka ef ríkisvaldið er ekki í stöðu til að bæta eiginfjárstöðu þeirra. Hins vegar held ég að mjög mikilvægt sé að hér sé a.m.k. einn öflugur ríkisbanki sem geti notið bestu kjara í lántökum sem fáanleg eru erlendis. Það hefur sýnt sig og er margviðurkennt að ríkisbankarnir hafa notið betri kjara en einkabankar, enda ekki óeðlilegt því að á bak við þá stendur ríkisábyrgð. Sömuleiðis tel ég mikilvægt að hér sé öflugur ríkisbanki sem geti í ýmsum tilfellum hlaupið undir bagga þegar um efnahagsaðgerðir er að ræða. Að sjálfsögðu er slíkt að eigin mati en ekki að ákvörðun stjórnvalda, eins og t.d. Landsbankinn hefur gert nú mjög mikið. Landsbankinn hefur tekið mikinn þátt í því að breyta skuldum fyrirtækja við bankann í hlutafé, eitthvað nálægt einum milljarði. Það hefur verið afar mikilvægt í aðgerðum í þágu útflutningsatvinnuveganna. Sömuleiðis hygg ég að í þessu dvergþjóðfélagi okkar kunni að vera afar mikilvægt að hér sé a.m.k. einn öflugur innlendur banki ef og þegar erlendir bankar hefja starfsemi sína hér. En það er engin launung að í þeim viðræðum sem við eigum í um aðlögun að því sem er að gerast í Evrópu stefnir í þá átt. Hvenær sem það verður held ég að mikilvægt sé, til að halda góðum hluta viðskipta í innlendum höndum, að hér sé öflugur banki. Og mér sýnist að sá banki verði varla öflugur nema með ríkisvaldið að bakhjarli.
Ég hef ekki sett á mig aðrar beinar spurningar til mín í þessari umræðu og ætla því ekki að lengja hana og læt máli mínu lokið.