Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil freista þess að svara hér nokkrum orðum því sem fram hefur komið í umræðunum til þessa og vík fyrst að ræðu hv. 1. þm. Suðurl.
    Hann hélt því m.a. fram í ræðu sinni að í skýrslu minni séu dæmi um rangar upplýsingar. Hann færði þó ekki þessu til stuðnings nema eitt dæmi, þ.e. að hann heldur því fram að það sé rangt sem í skýrslunni segir, að það sé upphaf málsins að á sl. vori hafi að frumkvæði Landsbankans hafist viðræður við forsvarsmenn Sambandsins um kaup á hlutabréfum í Samvinnubankanum. Hv. 18. þm. Reykv. og hv. 1. þm. Reykv. véku einnig nokkuð að þessu í sínum ræðum. Ég fullvissa alla þingmennina þrjá um það að hér liggur engin slík dýpri hyggja að baki orðunum. Þau ber að skoða og skilja eins og þau standa. Það sem í skýrslunni segir er einföld lýsing á staðreyndum. Málið sem hér um ræðir er sá kaupsamningur um hlutabréf sem gerður hefur verið milli Landsbankans og Sambandsins, hvorki meira né minna. Landsbankinn átti frumkvæðið að þeim viðræðum sem á endanum leiddu til kaupanna. Hvar, hvenær og af hverjum hugmyndum kann að hafa verið hreyft um slík kaup fyrr kemur þessu máli ekki við, en eins og allir vita er uppruna- og ættfræði hugmyndanna heldur ótraust fræðigrein. Það sem fyrir liggur er að Sambandið bar ekki upp erindi við ríkisstjórnina um þessi kaup og viðskrn. hafði ekki af þeim afskipti fyrr en eftir 1. sept. 1989.
    Hv. 1. þm. Suðurl. vitnaði í þessu sambandi til þess sem hann kallaði greinargerð um málið sem birst hafi í Morgunblaðinu 17. sept. 1989. Ég vil vekja athygli á því að hér er alls ekki um að ræða neina opinbera greinargerð með tilvitnunum í tilgreindar heimildir heldur er hér um að ræða fréttaskýringu Morgunblaðsins. Nú geta menn haft á því misjafnar skoðanir hvernig fréttaskýringar Morgunblaðsins eru hverju sinni, en því fer fjarri að þær séu stóri sannleikur í þeim málum sem þar eru tekin fyrir þótt margar þeirra séu allra góðra gjalda verðar.
    Hv. 1. þm. Suðurl. og reyndar hv. 1. þm. Reykv. fóru báðir mörgum orðum um það að hér hafi verið um björgunaraðgerðir að ræða en ekki eðlileg bankaviðskipti. Þeir héldu því reyndar fram að ríkisstjórnin hefði farið með málið, eins og hv. 1. þm. Suðurl. orðaði það, ,,inn í bankakerfið í þeim tilgangi að geta tekið á því í skjóli bankaleyndar``. Þessu mótmæli ég harðlega. Ríkisstjórnin átti ekki frumkvæðið að þessu máli. Og það er eins og það hafi ekki hvarflað að hv. þm., þeim fyrsta frá Suðurl. og þeim fyrsta úr Reykv., eins og reyndar hv. 5. þm. Norðurl. e. vék hér að í sínu máli, að hér geti verið um að ræða gagnkvæmt hagkvæm viðskipti.
    Það er nú einu sinni svo að tækifæri til viðskipta verða þannig til að einn vill eða þarf að selja það sem annar vill eða þarf að kaupa. Það hefur lengi verið um það rætt opinberlega á síðustu mánuðum að Sambandið þurfi að minnka skuldir sínar með sölu

eigna. Hlutabréf þess í Samvinnubanka Íslands hf. voru einmitt ein slík eign. Þetta var öllum ljóst og þess vegna þurfti ekki að fara í grafgötur með það hvers vegna tækifæri til viðskipta spratt hér upp. Bæði Landsbankinn og Sambandið geta hagnast á þessum viðskiptum en gagn Landsbankans fer að sjálfsögðu, eins og á hefur verið minnst, eftir því verði og greiðsluskilmálum sem um er að ræða.
    Það var einmitt þess vegna sem ég óskaði í september l989 eftir upplýsingum um málið og eftir áliti Seðlabanka Íslands, bankaeftirlits og Ríkisendurskoðunar. Ef hægt er að kalla mál sem þannig er með farið markað undirmálum og yfirklóri og klúðri, þá held ég að ég verði að biðja hv. þingmenn, þann fyrsta frá Reykv. og þann fyrsta frá Suðurl., að skýra mál sitt betur.
    Stjórnarfarslega eru línurnar alveg skýrar í þessu máli. Bankaráðið hefur heimild til að kaupa hlutabréf í öðrum fjármálastofnunum innan ramma ákvæða bankalaganna. Bankinn telur sig hagnast á kaupunum og Sambandið telur sig hagnast á sölunni. Hér er ekki um að ræða að réttlæta björgunaraðgerðir fyrir Alþingi, heldur að meta ávinning af kaupunum frá sjónarmiði viðskiptahagsmuna Landsbankans með tilliti til stefnunnar í bankamálum, þeirrar stefnu að rétt sé að stefna að sameiningu banka, að stærri og öflugri bankastofnunum. Það er í hæsta máta eðlilegt að þetta mál sé rætt hér í þinginu. Það er út frá þessu sjónarmiði sem rétt er að ræða það.
    Hv. 1. þm. Suðurl. hélt því fram, og vitnaði til álits Ríkisendurskoðunar í því sambandi, að hið endanlega verð hafi verið í samræmi við hið upphaflega viðmiðunarverð í viljayfirlýsingu þeirra Sverris Hermannssonar og Guðjóns B. Ólafssonar frá 1. sept. Því er haldið fram að lækkun verðsins skýrist af því einu að tekið hafi verið tillit til fyrirvara sem gerðir hafi verið í fyrri viðræðum. Þessi skilningur orkar tvímælis því eins og hv. þm. geta sjálfir séð af lestri þessa plaggs, sem nefnt er minnispunktar og dagsett er 1. sept. af hálfu þeirra Sverris Hermannssonar og Guðjóns B. Ólafssonar, er þar fátt um fyrirvara um verðið. Það er helst hægt að segja að almennur fyrirvari komi fram í bókun bankaráðsmannanna Kristins Finnbogasonar og Jóns Þorgilssonar sem
líka er prentuð í skýrslunni. Sá fyrirvari er þó almenns eðlis og alls ekki sundurgreindur eins og vitnað er til í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Hið endanlega verð í tilboði bankaráðsins frá 29. des. hlýtur a.m.k. í augum þeirra sambandsmanna að hafa verið talið verulega lægra en fyrri hugmyndir. Um það eru óræk vitnin. Það kom reyndar skýrt fram í viðbrögðum stjórnar Sambandsins við þeim breytingum sem urðu frá hugmyndunum 1. sept. til tilboðsins 29. des.
    Mér finnst hins vegar rétt að ítreka það að endanlegt virði bréfanna fyrir kaupanda er háð því hvaða hagnað hann getur haft í framtíðinni af kaupunum. Ríkisendurskoðun miðar í sínu verðmati, sem skilar niðurstöðunni 900 millj. kr., við 8--10%

arðgjafarkröfu, með öðrum orðum 8--10% raunvexti. Ef miðað er við lægra raunvaxtastig, eins og útlit er fyrir að ríki hér á landi á næstu missirum, hækkar virði bréfanna að sjálfsögðu. Þetta vildi ég nefna einnig vegna orða hv. 18. þm. Reykv. um þetta mál. Við þetta bætist svo að greiðslufyrirkomulag er allt annað í endanlegu tilboði en var í upphaflegri viljayfirlýsingu. Kaupverðið gengur nú allt til þess að lækka skuld Sambandsins við Landsbankann en í minnispunktunum, sem títt er til vitnað, var við það miðað að Sambandið fengi umtalsverða fjárhæð greidda út í hönd. Það er misskilningur hjá báðum þingmönnunum, hv. 1. þm. frá Suðurl. og hv. 1. þm. frá Reykv., að hugsanleg aðild Búnaðarbanka að þessum kaupum á einhverju stigi máls spilli því hagræði sem Landsbankinn kann að hafa af kaupunum. Svo er að sjálfsögðu ekki. Ávinningur bankanna tveggja gæti verið í samræmi við þá fjármuni sem þeir verja hvor um sig til kaupanna. Möguleikar á samrunaarði, samrunahagnaði, eru misjafnir eftir stöðum og eftir starfsemi bankanna, þannig að annar getur hagnast þar sem hinn mundi ekki gera það. Ég nefni í þessu sambandi til sögunnar skipulag bankaþjónustu á Suðurlandi sem ég bið hv. 1. þm. Suðurl. að hugleiða hvort gæti komið þessu máli við. Búnaðarbankinn gæti t.d. hagnast á yfirtöku starfsemi frá Samvinnubankanum þar sem Landsbankinn hefði lítinn eða engan hag af því að taka við. Það er að sjálfsögðu málefni bankanna tveggja og fyrst og fremst bankaráðanna að kanna þetta og ræða á sínum vettvangi og sín á milli. Ég hlýt þó að benda á að það er misskilningur hjá þeim þingmönnum sem líta svo á að ábending Ríkisendurskoðunar um það að fullt hagræði, fullur hagur af kaupunum, fáist ekki nema með því að meira sé keypt þannig að hægt sé að standa að yfirtöku eða samruna bankanna. Það breytist ekki þótt Búnaðarbankinn kynni að koma inn í málið. Þvert á móti gæti samrunaarðurinn orðið meiri.
    Þá kem ég að því sem hér hefur oft verið nefnt vaxtaleiðréttingin. Hv. 1. þm. Suðurl. gerir mikið mál úr því eins og hv. 1. þm. Reykv., bankaráðsmaður í Landsbankanum, sem hér gefur okkur glöggar skýrslur um það sem þar fer fram. Hann hefur gert úr þessu mikið mál á opinberum vettvangi, að bankaráðið hafi falið bankastjórn að taka til afgreiðslu beiðni stjórnar Sambandsins um vaxtaleiðréttingu sem fram var sett í bréfi Sambandsins til Landsbankans frá 15. jan. sl. Hugleiðingar um vafasamt vaxtasiðferði og annað í þeim dúr er út í hött í þessu máli. Samkvæmt viðskiptabankalögunum, eins og hv. 1. þm. Reykv. reyndar vitnaði til sjálfur, ákveður bankaráðið meginatriðin í vaxtastefnu bankans og almenn vaxtakjör en bankastjórnin fer með framkvæmd viðskiptanna gagnvart hverjum einstökum viðskiptaaðila. Þar geta ýmis vafaatriði að sjálfsögðu komið upp, ekki síst varðandi dráttarvaxtaútreikning. Í þessu tilfelli er verið að fjalla um framkvæmdaratriði í viðskiptum Sambandsins og Landsbankans sem eru, eins og bankaráðsmaðurinn, hv. 1. þm. Reykv., veit,

bæði mikil og margbrotin.
    Með þessu tel ég að ég hafi að fullu svarað fyrirspurnum hv. 1. þm. Reykv. um þetta mál. ( FrS: Já, ég mun koma að því síðar.)
    Þá kem ég að takmörkunum bankalaga á hlutafjáreign Landsbankans í öðrum fyrirtækjum. Hv. 1. þm. Suðurl. spurði hvers vegna ég segði að Landsbankinn gæti að svo stöddu ekki klárað málið með því að kaupa öll hlutabréfin. Svarið er ofur einfalt, og kemur reyndar fram í skýrslunni á þskj. 583 á bls. 5. Þar segir að samkvæmt bráðabirgðauppgjöri á eigin fé Landsbankans í árslok 1989 geti Landsbankinn að áliti bankaeftirlitsins ekki átt meira en sem svarar tæplega 88% af hlutafé Samvinnubankans ef hlutafjáreign hans á að haldast innan marka sem sett eru í 28. gr. viðskiptabankalaganna, en þar segir að slík eign megi ekki fara fram úr fimmtungi af eigin fé bankans. Nákvæmt mat á þessu er þó ekki unnt að gera nema með endanlega reikninga í höndum og með nánara mati á nokkrum atriðum. Ég tel þetta hins vegar gefa fullnægjandi skýringu og fullnægjandi mynd af því sem hér er um að ræða.
    Það er svo aftur önnur spurning hversu stóran hlut af heildarhlutafénu í Samvinnubankanum Landsbankinn eða aðrir hugsanlegir kaupendur þurfi að komast yfir til þess að af samruna eða yfirtöku á Samvinnubankanum geti orðið. Samkvæmt hlutafélagalögum og samþykktum Samvinnubanka Íslands, sem hér skipta máli, mun bankinn þurfa, eða sá sem kaupa vill, að fara með a.m.k. 2 / 3 hluta atkvæðanna til þess að geta ráðið slíku máli. Til þess að hluthafafundur samþykki slíkan samruna eða yfirtöku, með öðrum orðum. Við samruna eða
yfirtöku, sem ég tel réttara að nota hér vegna þess að hér er ekki um það að tefla að tvær sams konar einingar renni saman í eina heldur að eitt rekstrarform taki við af öðru, þarf að sjálfsögðu að leysa öll hlutabréfin til kaupandans, en það eru þau kaup, þ.e. að leysa öll hlutabréfin til hins væntanlega kaupanda, sem Landsbankinn ræður ekki við samkvæmt ákvæðum viðskiptabankalaga eins og nú stendur á í hans fjárhag.
    Ég hef þegar vikið að því sem ég taldi misskilning í máli hv. 1. þm. Suðurl., þ.e. þar sem hann fer um það orðum að hugsanleg aðild Búnaðarbankans að kaupunum mundi breyta þeim í einhvern óskapnað. Þetta hlýtur að vera mikill misskilningur. Sama máli gegnir þegar að því kemur hvernig sé háttað lagaheimildum til þess að ríkisbanki yfirtaki aðra innlánsstofnun. Það er alveg á hreinu að til þess þarf samþykki viðskrh. Hvort slíkt samþykki yrði veitt í einstöku tilfelli finnst mér ekki ráðlegt eða hyggilegt að gefa um yfirlýsingar fyrir fram. Með þessum orðum svara ég fyrirspurnum sem þeir hafa beint til mín bæði hv. 1. þm. Suðurl. og hv. 1. þm. Reykv., um einhvers konar fyrirframsamþykki við óframkomnum gerningi af þessu tagi. Slíkt fyrirframsamþykki eða yfirlýsingu mun ég ekki gefa. Það verður að meta hvert slíkt mál þegar það kemur

til ákvörðunar.
    Í áliti Ríkisendurskoðunar var á það minnst að þörf kunni að vera á því að kanna lagagrundvöll vegna yfirtöku ríkisbanka á Samvinnubankanum. Nauðsynlegt sé að eyða hugsanlegri óvissu í þessu efni. Viðskrn. mun láta kanna þetta nánar, en ég tel það þó engum vafa undirorpið að ekki þurfi til sérstaka lagaheimild í hvert sinn sem til yfirtöku ríkisbanka á sparisjóði eða hlutafélagsbanka kæmi. Að því tilskildu að sjálfsögðu að ákvæða hlutafélagalaga, viðskiptabankalaga og sparisjóðalaga sé gætt. Fyrirvarinn sem fylgdi í grg. með frv. til viðskiptabankalaga á sínum tíma og til er vitnað um þetta efni virðist mér eiga við um samruna ríkisviðskiptabanka innbyrðis og um samruna ríkisviðskiptabanka og hlutafélagsbanka með því móti að eigendur hlutafélagsbankans eignuðust hlut í hinum sameinaða banka. Það er auðvitað eðlilegt að löggjafinn fjalli um slík mál ef upp kynnu að koma. Þetta verður kannað nánar eins og ég hef þegar skýrt frá í skýrslu minni.
    Hv. 1. þm. Suðurl. ræddi um tryggingar fyrir lánum til Sambandsins. Eins og kemur fram í skýrslunni hefur Landsbankinn unnið að því með Sambandinu að koma öllum tryggingum vegna útlána til Sambandsins í viðunandi horf og samkvæmt upplýsingum forsvarsmanna Landsbankans er það verk vel á vegi. Það er rétt hjá hv. 1. þm. Suðurl. að ég hef beitt mér fyrir því að bankar setji sér reglur um hámark lána til einstakra lántakenda og að bankaeftirlit Seðlabanka Íslands fjalli um slíkar reglur. Ég vil leyfa mér að benda á að sameining banka auðveldar að sjálfsögðu bönkunum að fylgja slíkum reglum sem ætlað er að auka öryggi í lánastarfseminni.
    Hv. 1. þm. Suðurl. og hv. 18. þm. Reykv. vöktu bæði máls á því að því kynni að fylgja nokkur vandi eftir að Landsbankinn er orðinn ráðandi hluthafi í Samvinnubankanum að í 22. gr. viðskiptabankalaganna eru ákvæði sem banna samráð milli lánastofnana við ákvörðun vaxta og þjónustugjalda. Viðskrn. hefur rætt þetta mál við seðlabankastjórn og forsvarsmenn Landsbankans og það liggur fyrir að hvorki bankastjórar né bankaráðsmenn í Landsbankanum muni eiga sæti í bankaráði Samvinnubankans fyrir tilstilli Landsbankans. Eftir því verður litið að ákvæðisins í 22. gr. viðskiptabankalaganna verði gætt meðan Samvinnubankinn er rekinn sem sjálfstæð bankastofnun. Hitt er jafnljóst að æskilegt er að yfirtaka á Samvinnubankanum fari sem fyrst fram til þess að eyða vanda af þessu tagi sem upp kynni að koma.
    Hv. 1. þm. Suðurl. leyfði sér í lok ræðu sinnar að halda því fram að ríkisstjórnin hefði staðið þannig að framgangi málsins að það hafi fremur skaðað stöðu Landsbankans sem viðskiptabanka en hitt, eins og hann komst svo einkennilega að orði. Ekkert gæti verið fjær sanni. Þvert á móti hef ég sem viðskrh. beitt mér fyrir því að hagsmuna Landsbankans verði sem best gætt í þessu máli. Ég tel það ótvírætt að þær breytingar sem orðið hafa á málinu frá því á sl. hausti

hafi verið Landsbankanum og þar með almenningi til hagsbóta.
    Ég mun að lokum, virðulegi forseti, víkja að nokkrum sérstökum fsp. sem hv. 1. þm. Reykv. beindi hér til mín og snerta ekki beinlínis málefni skýrslunnar sem hér er til umræðu. Hér á ég einkum við þrjár spurningar sem hann beindi til mín, hinni fyrstu um afstöðu ríkisstjórnarinnar til starfsemi erlendra banka hér á landi. Í öðru lagi um myndun hlutafélaga um bankarekstur ríkisins og í þriðja lagi um breytingar á samvinnufélagalöggjöfinni til að auðvelda samvinnufélögum að afla sér eigin fjár. Mér finnst heppilegt, virðulegi forseti, að nota það sem inngang að svörum um þessi þrjú málefni, og til þess að lýsa almennri afstöðu ríkisstjórnarinnar til breytinga á skipulagi á fjármagnsmarkaði, að lesa brot úr málefnasamningi ríkisstjórnarinnar frá 10. sept. sl. til viðbótar við það sem fram kom hjá hæstv. forsrh. í máli hans áðan um skipulag viðskiptabanka í eigu ríkisins. Með leyfi forseta hljóðar þetta svo:
    ,,Í því skyni að auka sparnað og lækka vexti og fjármagnskostnað verður áfram
unnið að umbótum á skipulagi innlends fjármagnsmarkaðar. Áhersla verður lögð á að auka eiginfjármyndun í fyrirtækjum og viðskipti með hlutabréf og að endurskoða skipulag fjárfestingarlánasjóða. Verður m.a. lögð áhersla á eftirfarandi:
    1. Íslenski fjármagnsmarkaðurinn verður aðlagaður breyttum aðstæðum í Evrópu, m.a. með því að rýmka heimildir innlendra aðila til að eiga viðskipti við erlenda banka án ríkisábyrgðar og njóta fjármagnsþjónustu þannig að innlendar lánastofnanir fái aðhald. Markmið þessarar aðlögunar er að lækka fjármagnskostnað fjölskyldna og fyrirtækja, enda verði þess vandlega gætt að ekki skapist óstöðugleiki á innlendum fjármagns- og gjaldeyrismörkuðum.``
    Í samræmi við þessa almennu stefnuyfirlýsingu hef ég unnið að því að semja tímasetta áætlun um heimildir fyrir erlendar lánastofnanir til að starfa hér á landi. Þessar tillögur eru til umræðu á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Ég tel mikilvægt vegna aðlögunar íslenska þjóðarbúsins að breyttum aðstæðum í viðskipta- og efnahagsmálum í Evrópu að leggja fram slíkar tillögur. Stækkun banka hér á landi er reyndar forsenda slíkrar aðlögunar. Að því hefur sannarlega verið unnið undanfarin missiri. Þessar tillögur munu koma fram. Ég ætla ekki á þessari stundu að tímasetja þær en bendi á að það er nauðsynlegt að slík afstaða verði mótuð á þessu ári vegna þeirra samningaviðræðna sem standa yfir milli EFTA-ríkjanna annars vegar og Evrópubandalagsins hins vegar. Þetta mál er þáttur í því máli öllu og dráttur í hinni stærri mynd af því hvernig við búum okkur best undir breyttar viðskiptaaðstæður í Evrópu frá og með 1. jan. 1993. Hér verður bæði fjallað um heimildir fyrir fjármálastofnanir sem eru að öllu leyti í eigu erlendra aðila að starfa hér á landi samkvæmt íslenskum lögum, einnig um heimildir fyrir erlendar lánastofnanir að eiga hér og starfrækja útibú og í

þriðja lagi um heimildir fyrir innlendar fjármálastofnanir til þess að eiga hluti í innlendum lánastofnunum.
    Í öðru lagi og reyndar má kannski segja að þarna fari það saman sem um var spurt, bæði um breytingar á rekstrarfyrirkomulagi ríkisbanka sem hugsanlegar eru og á rekstrarfyrirkomulagi samvinnufélaga, vegna þess að bankarnir í eigu ríkisins og sparisjóðirnir og samvinnufélögin eru að sumu leyti á sama báti hvað það varðar að þau geta ekki aflað sér aukins eigin fjár á annan hátt en með stöðugum rekstrarafgangi þegar skilyrði jákvæðra raunvaxta ríkja og við skilyrði tiltölulega stöðugs verðlags sem vonandi fer í hönd. Það var alveg rétt ábending hjá hv. 5. þm. Norðurl. e. að þær aðstæður eru aðrar en verið hafa um langt árabil. Ég hlýt því að leggja áherslu á að við breytum löggjöf varðandi rekstrarform og skipulag og aðgang þessara fyrirtækja að fjármagni, því að allt eru þetta fyrirtæki, til þess að efla sína eiginfjárstöðu og gera bæði ríkisbönkum, sparisjóðum og samvinnufélögum kleift að selja hlutabréf eða ígildi þeirra á hlutabréfamarkaði. Þetta þarf alls ekki að fela það í sér að ríkið eigi ekki lengur ríkisbankana. Ég varpa hér einfaldlega fram þeirri spurningu: Telja menn líkur til að ríkið muni reiða fram af skattfé þær stóru fjárhæðir sem kynni að þurfa að koma til til að tryggja það að ríkisbankarnir standi við eiginfjárhlutföllin sem almennt verður gerð krafa um samkvæmt alþjóðasamkomulagi? Hér er ekki um það að tefla hvort ríkið á eða ekki á bankana, hvort ríkiseign vekur traust eða ekki. Það verður einfaldlega litið á fjárhagslegan grundvöll þeirrar starfsemi sem um er að tefla hverju sinni.
    Ég fagna því sem kom fram hjá hv. 5. þm. Norðurl. e. og var vitnisburður um skilning á því hvernig komið er fjárhagslegri uppbyggingu samvinnuhreyfingarinnar. Það var ósköp einföld frásögn sem ég fór með að margir af forsvarsmönnum samvinnuhreyfingarinnar hefðu ekki sýnt þessu máli mikinn áhuga. Frá því eru undantekningar og reyndar nefndi ég í minni ræðu að hugmyndir sem fram hefðu komið um breytingar á fjárhagslegu skipulagi Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis væru til vitnis um það að augu manna væru að opnast fyrir því að þarna þyrftu til að koma breytingar. Ég held að það sé alveg rétt ábending hjá hv. 5. þm. Norðurl. e. að mörkin á milli samvinnufélaga og almenningshlutafélaga muni breytast og í framtíðinni kynnu þau að hverfa alveg.