Þorsteinn Pálsson (um þingsköp) :
    Frú forseti. Ræður hæstv. forsrh. og hæstv. viðskrh. gefa tilefni til þess að bæði hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh., formaður Alþb., verði viðstaddir þessa umræðu og ég óska eftir því að þeir verði það. A.m.k. tel ég nauðsynlegt að beina til þeirra tveggja máli mínu og óska fyrir mitt leyti eftir því að umræðunni verði frestað þar til þeir geta verið viðstaddir frekari umfjöllun málsins hér.