Eyjólfur Konráð Jónsson (um þingsköp) :
Hæstv. forseti. Ég vil einungis geta þess að að því er varðar ellefta málið, samningaviðræður við Evrópubandalagið, veit ég til þess að hæstv. utanrrh. ætlaði að tala í því máli þegar það var síðast á dagskrá en þá vannst ekki tími til að taka það mál til umræðu. Þetta mál hefur verið á dagskrá nokkrum sinnum og ég er hæstv. forseta þakklátur fyrir það, en mér finnst ekki við hæfi að ræða málið að honum fjarstöddum enda er hann veikur í dag. Það tengist þar að auki tólfta málinu, þannig að þó ég sé að sjálfsögðu tilbúinn til að mæla fyrir þeirri þáltill. tel ég eðlilegra að láta það bíða þangað til ráðherrann mætir.