Guðmundur H. Garðarsson (um þingsköp) :
Virðulegi forseti. Ég fagna því að hæstv. forsrh. skuli vera kominn í salinn en ég ítreka að það er útilokað að ræða þetta án þess að hæstv. fjmrh. sé einnig viðstaddur vegna þess að hér hefur verið talað um, ekki aðeins viðskipti Landsbankans og kaup Landsbankans á Samvinnubanka Íslands, heldur ræddi hv. 5. þm. Norðurl. e. einnig um samvinnuhreyfinguna, samvinnulög og annað skylt. Þess vegna er óhjákvæmilegt að hæstv. fjmrh. verði viðstaddur því að það hefur verið boðað að breyta eigi Kaupfélagi Reykjavíkur og nágrennis í hlutafélag eða sameina það Miklagarði hf. en það snertir þetta mál mjög mikið þar sem bæði þessi fyrirtæki eru í tengslum við Samband ísl. samvinnufélaga. Þetta tengist samvinnulögunum í sambandi við stofnsjóði, sameignarsjóði og öllu er lýtur að uppgjöri samvinnufélags, bæði slit og breytingar á rekstri félagsins. Þetta tengist einnig því sem hæstv. forsrh. kom inn á þegar hann boðaði að á borði ríkisstjórnarinnar væri hugsanlega frv. til laga um breytingu á stöðu stofnsjóða samvinnufélaganna. Forsrh. hæstv. kom eitthvað inn á eitthvert frv. sem sneri að samvinnulöggjöfinni. ( Gripið fram í: Það var viðskrh.) Nú það var viðskrh., það er sama, það er þó alla vega komið inn á borð hjá hæstv. ríkisstjórn eða er þá á leiðinni.
Þetta er þýðingarmikið atriði vegna þess að það tengist eignarstöðu þeirra aðila sem hér um ræðir sem eru Samband ísl. samvinnufélaga og Samvinnubanki Íslands hf.
Ég ætla ekki að fara út í efnislegar umræður fyrr en hæstv. fjmrh. kemur, þannig að bæði hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh. verði viðstaddir þegar við fjöllum um málið.