Frsm. allshn. (Jón Helgason):
Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breyting á almennum hegningarlögum frá allshn.
Aðdragandi frv. er sá að árið 1971 var gerður alþjóðasamningur um að koma í veg fyrir ólögmætar aðgerðir gegn öryggi flugsamgangna. Samkvæmt samningnum ber aðildarríkjum hans að uppfylla ákveðnar skyldur. Þau skuldbinda sig m.a. til að hafa þung refsiviðurlög í hegningarlögum við ofbeldi í loftfari á flugi, skemmdarverk á loftförum o.fl. og hafa sérstök ákvæði um refsilögsögu í slíkum málum.
Í febrúar 1988 var gerð viðbótarbókun við þennan samning á þá leið að hann næði einnig yfir ofbeldisverk í flughöfnum sem notaðar eru fyrir alþjóðlega flugumferð. Áður en framangreind bókun er fullgild af Íslands hálfu er nauðsynlegt að breyta nokkrum greinum almennra hegningarlaga til þess að tryggja að unnt sé að standa við þær skuldbindingar er af fullgildingu bókunarinnar leiða. Þetta ákvæði kemur í 1. gr. frv. Þá er einnig annað atriði að í 4. gr. frv. er ákvæði um að sambærilegri refsingu fyrir þetta skuli sá sæta og sá sem valdur er að sambærilegum verknaði í flugfari.
Á fund nefndarinnar komu Þorsteinn A. Jónsson, deildarstjóri í dómsmrn., Valtýr Sigurðsson, borgarfógeti og fulltrúi Dómarafélags Íslands, og Unnur Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Lögmannafélags Íslands. Þau gerðu grein fyrir sínum viðhorfum og bentu á nokkur atriði til athugunar. En að fengnum skýringum við þau varð nefndin sammála um að mæla með að frv. verði samþykkt óbreytt.
Undir nefndarálitið rita allir nefndarmenn.