Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 20. febrúar 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Áður en lengra er haldið í þessari umræðu vill forseti taka það mjög skýrt fram að í gær var gert samkomulag á milli forseta og formanna þingflokka um að hér hæfist nýr fundur í deildinni ekki síðar en kl. 4 svo að hefja mætti umræður um frv. ríkisstjórnarinnar um ráðstafanir vegna kjarasamninga. Verði þessari umræðu ekki lokið fyrir kl. 4 mun forseti fresta henni enn á ný og hefði þó kosið að reyna að koma þessu máli áfram til 2. umr. og nefndar.