Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Hér er verið að ræða um frv. um ráðstafanir vegna kjarasamninga. Þegar slík frumvörp hafa verið til umræðu á undanförnum árum hafa þau á máli þingmanna gengið undir nafninu bandormur. Flestir fagna því að þessir kjarasamningar komust á þó meiningar muni vera deildar um ýmsar verkanir sem þeir hafa í þjóðfélaginu og síðasti hv. ræðumaður kom að verulegu leyti inn á.
Ég get þó ekki tekið undir það að það sé út af fyrir sig alvarlegt þó að Atvinnuleysistryggingasjóður sé skertur vegna þess að hvað sem líður fjármagni í þeim sjóði er ríkið á hverjum tíma ábyrgt fyrir því að greiða allar bætur sem á hann falla. Ég held að ýmislegt annað sé miklu alvarlegra.
Mér hafa ekki borist þær tillögur sem ríkisstjórnin hefur verið með til umfjöllunar um niðurskurð og sennilega á ekki að hafa mig neitt í samráði um þann niðurskurð. Má segja að það sé kannski gott fyrir þann sem hér stendur, en ég verð að leggja fyrir hæstv. forsrh. í því sambandi nokkrar spurningar. Þegar ríkisstjórn hans var mynduð ræddum við um það, og það er í málefnasamningnum, að stefnt yrði að því að leggja tekjuskatt á fjármagnstekjur. Mér finnst það a.m.k. frekar í samræmi við nafnið, málefnasamningur ríkisstjórnarinnar var kenndur við jafnrétti og félagshyggju, en að skera niður ýmislegt og ekki síst hjá Húsnæðisstofnun ríkisins eins og ástandið er í þjóðfélaginu.
Það var líka rætt um það, og ég man ekki betur en það hafi verið tekið inn í málefnasamninginn, að setja á hátekjuþrep og það var gert að kröfu minna samtaka. Að vísu var rætt um að stefna að því, ef ég man þetta rétt. En hvernig stendur á því að þessi félagshyggjustjórn grípur frekar til þeirra úrræða að skera niður en að afla tekna miðað við þær vonir og ég vil segja fyrirheit sem gefin voru í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar?
Það var verið að hafa það eftir hæstv. fjmrh. að hann væri ánægður með það að við værum að færast í hóp siðaðra þjóða. Ég ætla að minna hæstv. forsrh. á það að þessar siðuðu þjóðir leggja yfirleitt allar, nema kannski ein, skatt á fjármagnstekjur. Ég hugsa að það sé aðeins ein af þessum Evrópuþjóðum sem er ekki með þann skatt, þannig að ekki er það til að hindra hæstv. ríkisstjórn í að taka á því máli frekar en stunda niðurskurð.
Það vekur ugg í brjósti að heyra niðurstöður Þjóðhagsstofnunar um verðbólgustigið, ekki síst vegna þess að ég hef ekki orðið var við það að hæstv. ríkisstjórn reyndi að gera ráðstafanir til þess sem að var stefnt, að lækka raunvexti ofan í a.m.k. 6%.
Ég var að sjá rukkun fólks sem tók lán í Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda í janúar 1984 og þá með 4% vöxtum. Nú í janúar í ár þegar það á að borga eru vextirnir á áttunda prósent. Þetta er þó lífeyrissjóður þessa fólks. Kjörin á þessum lánum eru það mismunandi að mér er tjáð að það séu til sjóðir sem lána með vöxtum allt ofan í 3%. Og mér er
kunnugt um að sumir sjóðir eru með 4--5% þannig að við sjáum hver munurinn er á þessum vöxtum. Ég mun koma með fyrirspurn út af þessu máli við hentugleika, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, eða hvernig á þessari vaxtatöku stendur.
Það er líka eitt sem ég vil fá svar við hjá hæstv. forsrh. Þó ég hafi ekki fylgst mikið með undirbúningi þessa máls, þá hefur verið haft í blöðum eftir framkvæmdastjóra Áburðarverksmiðju ríkisins að miðað við að áburður verði hækkaður um 12% á næsta vori þýði það að Áburðarverksmiðjan verði rekin með eitthvað á annað hundrað millj. halla. Hvernig verður farið með það? Verður það niðurgreitt eða verður því ýtt á undan sér, sem mun hafa komið fyrir hér áður fyrr? Þá er auðvitað verið að ýta því á undan sér og það kemur á bændur síðar. Við þessari spurningu vil ég fá svar og ég sakna þess að hæstv. landbrh. er ekki hér staddur.
Það er auðvitað margt fleira sem ég ætti að gera athugasemdir við. Ég geri ekki athugasemdir við það að ríkisstjórnin sé að reyna að standa við þann þátt sem vinnumarkaðnum var heitið, en ég geri athugasemdir við það hvernig á að taka á því máli. Og þegar ég fæ betri upplýsingar um það mun ég ræða það hér úr þessum stól.
Ég vil bara endurtaka að ég vænti þess að það komi hér fram hjá hæstv. forsrh. hvort hann sjái sér ekki fært að leggja til að staðið verði við það að lækka raunvexti, að leggja heldur skatt á fjármagnstekjur en að skera niður og, þó að ég viti að það verður ekki gert í einni svipan, að setja á hátekjuþrep, hvort það verði ekki undirbúið og gert síðar. Og hvaða leið hæstv. forsrh. sér til þess að verðbólgustigið fari niður í þau mörk sem stefnt er að því ég sé ekki betur en að öll teikn séu á lofti um að þessum mörkum verði ekki náð, því miður.