Frsm. 2. minni hl. allshn. (Salome Þorkelsdóttir):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nál. 2. minni hl. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 73 frá 28. maí 1969, um Stjórnarráð Íslands.
Ég ætla að hefja mál mitt á því að fara yfir nál., með leyfi hæstv. forseta:
Nefndin hefur haft frv. til umfjöllunar. Eins og fram kemur og upp er talið á nál. meiri hl. allshn. komu fjölmargir aðilar til viðræðna um efni frv., auk þess sem nefndin hafði til athugunar þær umsagnir sem bárust neðri deild.
Annar minni hl. harmar að málið hafi verið tekið út úr nefndinni á meðan fylgifrumvarp þess, 128. mál, er enn til umfjöllunar í allshn. neðri deildar. Fylgifrumvarpið kveður á um þær lagabreytingar sem gera þarf svo að unnt sé að færa hin ýmsu verkefni undir umhverfisráðuneyti. Þessi tvö frv. verða því ekki aðskilin, enda hefur það endurspeglast í viðræðum við þá aðila sem komu á fund nefndarinnar.
Umhverfismálin eru flókin og samofin flestum málaflokkum, heyra undir átta ráðuneyti. Það er því brýnt að færa þau undir samræmda yfirstjórn. Vísast í þeim efnum til nál. minni hl. allshn. neðri deildar, þ.e. álit okkar sem undirritum þetta nál. er samhljóða því.
Á sama tíma og vitað er að í undirbúningi er að fækka ráðuneytum og samræma þau skýtur það skökku við að stofna nýtt ráðuneyti og það án þess að fyrir liggi hvaða verkefni eigi að tilheyra því.
Annar minni hl. allshn. telur að farsælla hefði verið að meiri hl. nefndarinnar hefði gefið sér tíma til að vinna þannig að málinu að beðið hefði verið eftir fylgifrumvarpinu, 128. máli, og breið samstaða hefði getað náðst um það. Þannig hefði afgreiðsla málsins orðið með meiri reisn en felst í því að beita minni hl. nefndarinnar ofríki og keyra þetta frv. í gegnum þingið án fylgifrumvarpsins sem er meginþáttur málsins.
Þetta frv. fjallar um nafnið tómt en ekki verkefni. Við leggjum því til að frv. verði fellt.
Undir þetta nál. skrifa Salome Þorkelsdóttir og Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ég tók eftir því að frsm. meiri hl., hv. 5. þm. Reykv., gat um það að ekkert mál hefði fengið jafnvandaða meðferð og mikla umfjöllun og þetta mál hér á hv. Alþingi. Ég tel að það sé mikið of sagt í þeim orðum vegna þess að hér er um svo viðamikið mál að ræða að ég held að það hafi sjaldan gerst að slíkt mál fengi jafnlitla umfjöllun á Alþingi og einmitt þetta mál. Þá hef ég auðvitað fyrst í huga það hvernig að þessu máli hefur verið staðið, þegar aðeins helmingur eða fyrri hluti málsins er tekinn hér til afgreiðslu og á að keyra hann hér út úr þinginu án þess að meginhlutinn, fylgifrumvarpið, sé afgreitt samhliða.
Það kom vel fram í máli hv. 6. þm. Vesturl. að þetta mál fékk meiri umfjöllun í nefndinni en meiri hl. nefndarinnar hafði óskað eftir og var það besta
sönnun þess að það er ekki hægt að afgreiða þetta frv. öðruvísi en að fjalla um verkefnin sem hugsað er að eigi að flytjast undir þetta ráðuneyti þegar og ef það verður sett á laggirnar.
Það eru auðvitað skiptar skoðanir nú sem fyrr um verkefnaflutninginn. Það kom vel fram í máli þeirra sem komu til viðræðna við nefndina. Og það var nokkuð áberandi hjá ýmsum þeim sem komu til viðtals að þeim þótti óþægilegt að þurfa að ræða um þetta frv. ef þeir mættu ekki ræða um fylgifrumvarpið jafnhliða. Þess vegna kom það eins og af sjálfu sér að það var ekki gert og það var ekki hægt að ræða þessi mál öðruvísi en að taka þau bæði fyrir. Ég man ekki eftir einum einasta viðmælanda nefndarinnar sem ekki kom inn á 128. mál, þ.e. fylgifrumvarpið. Það voru hins vegar ýmsir sem hófu mál sitt á því að segja: ,,Það sem ég segi hér segi ég þar sem ég geng út frá því að það eigi að stofna þetta ráðuneyti.`` Menn vildu ekki tjá sig um viðhorfið til þess hluta málsins, gengu út frá því að það væri búið að ákveða það og allt bendir nú til þess að svo verði. Það er því ekki undarlegt þó að minni hl. nefndarinnar, sem hefur talið nauðsynlegt að fjalla um þessi tvö frv. samhliða, ræða þau samhliða og afgreiða þau samhliða, sé ekki sáttur við afgreiðslu málsins eins og málum er nú háttað.
Ég vil taka það strax fram að það var ágæt samvinna í sjálfu sér innan nefndarinnar og ástæða er til að þakka fyrir það vegna þess að formaður nefndarinnar hafði skilning á því að það var ekki hægt að ræða þessi mál öðruvísi en að taka þau bæði samhliða. Og mér er ekki grunlaust um að hann sé þeirrar skoðunar að það sé eðlilegasti gangur málsins, að þau væru bæði afgreidd hér nú á þessari stundu en ekki verið með þessi gönuhlaup að afgreiða frv. sem aðeins hljóðar upp á eitt orð, orðið tómt.
Það er því ekki undarlegt þó að ýmsar spurningar séu í huga okkar þegar við erum komin hér til 2. umr. að fjalla um brot af þessu máli, 129. mál, á meðan 128. málið ætti frekar að vera hér á undan til umfjöllunar vegna þess að við getum ekki skilið hvers konar flýtir er á ferðinni. Og nú vildi ég biðja um að hæstv. forsrh. væri hér viðstaddur, hæstv. forseti, því að ég ætlaði að leggja hér fyrir hann eina mikilvæga spurningu, og kannski tvær, áður en ég held
lengra áfram með mál mitt. --- Ég ætla aðeins að skjóta hér einni stuttri spurningu inn til hæstv. forsrh. áður en ég held áfram, þakka honum fyrir að koma hér aftur inn í salinn, og það er þessi brennandi spurning: Hvers vegna liggur svona á að afgreiða þetta mál í þessari viku? Hvers vegna má ekki bíða eftir fylgifrumvarpinu og afgreiða bæði málin héðan úr deildinni samtímis? Hvers vegna, þegar búið er að bíða í tólf ár, eins og hv. 6. þm. Vesturl. benti réttilega á, getum við þá ekki beðið í tvær vikur? Þetta er brennandi spurning sem væri mjög þarft að fá svar við hjá hæstv. forsrh. Ég vil benda á að það er ekki nærri komið að þinglausnum og ég hefði talið það mjög vel við hæfi að ljúka þessu þingi í vor með því að afgreiða svona merkilegt og mikilvægt mál sem
allir þingmenn eru sammála um að þurfi að fá góða umfjöllun og hafa áhuga á að fái sem besta afgreiðslu.
Nú þurfti hv. 5. þm. Reykv. að skjótast fram. Hann er talsmaður meiri hl. allshn. svo það er nú kannski óheppilegt að hann sé ekki hérna við þessa umræðu, hæstv. forseti. Annars er það dálítið athyglisvert hvað hæstv. hagstofuráðherra hefur lítinn áhuga á þessu máli því að hann virðist ekki heldur mega vera að því að sitja hér inni í deildinni. ( Hagstrh.: Ég heyri hvert orð.) Hann segist heyra hvert orð, en hann lætur ekki sjá andlitið á sér hér í deildinni og hann um það. En ég ætlaði bara að taka undir þessi fyrri orð hæstv. hagstofuráðherra þegar hann tjáði sig í sjónvarpsþættinum sem við ræddum hér nokkuð um við 1. umr. Hann taldi það vera við hæfi að þessi tvö frv. yrðu tekin samhliða út úr þessari deild þó að honum þætti það ekki skipta máli. Þó að þetta yrði aðeins á undan hingað inn í deildina þá gætum við gefið okkur tíma til að vinna fyrir fram í málinu sem við reyndar höfum gert. Við höfum allan tímann verið að vinna í nefndinni fyrir bæði þessi frv. Og við tókum það fram á nefndarfundi að við teldum að við værum að flýta fyrir afgreiðslu hins málsins, einmitt með því að fjalla um þau samtímis sem var í raun og veru dálítið skrýtið að þurfa að gera en leiddi af sjálfu sér, eins og ég sagði áðan, að það var ekki nokkur einasta leið að ræða um þetta frv. öðruvísi en að taka fylgifrumvarpið með. Enda kom það nógu skýrt fram hjá aðstoðarmanni hæstv. forsrh., þegar hann mætti á fund nefndarinnar, að hann taldi það vera óheppilegt og skapa réttaróvissu, eins og hér kom fram í máli hv. 6. þm. Vesturl., að afgreiða þetta frv. án fylgifrumvarpsins. Ef fylgifrumvarpið hefði ekki skipt máli hefði það ekki verið lagt fram og flutt. Þá hefði nefndin varla verið að eyða tíma í slíka vinnu ef það hefði verið óþarft.
Þess vegna er nú kannski ekki skrýtið þó að okkur liggi þessar mikilvægu spurningar á hjarta. Hvers vegna liggur okkur svona á í þessari viku? Hvers vegna má ekki ljúka þessu máli eftir að þing kemur aftur saman þegar Norðurlandaráðsþinginu er lokið? Ég skil það vel að hæstv. ráðherra Hagstofu Íslands hafi áhuga á að fá þetta mál í gegn en varla getur nú staðið svo illa á fyrir honum því að hann er nú samstarfsráðherra í Norðurlandaráði og fer því með öll þessi samræmingarmál á þeim vettvangi hvort eð er. Ég spyr þess vegna einu sinni enn: Hvers vegna? Vegna hvers?
Það er náttúrlega ýmislegt sem leitar á hugann þegar maður sér fram á að það á að afgreiða málið þrátt fyrir allar þær aðvaranir sem settar hafa verið fram. Þá leitar þetta á huga manns: Hvernig verður starfsemi þessa væntanlega umhverfisráðuneytis? Eins og ég sagði áðan fjallar þetta frv. aðeins um það að breyta einu orði í 1. gr., að á eftir orðinu ,,sjávarútvegsráðuneyti`` í fyrstu mgr. 4. gr. bætist við umhverfisráðuneyti.
Á síðasta þingi lagði ríkisstjórnin --- hún var að vísu svolítið öðruvísi saman sett ... ( Gripið fram í: Það var önnur.) Já, menn vilja kalla það aðra
ríkisstjórn en það var samt sem áður ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, ekki satt? --- Þá lagði hún einnig fram frv. um stjórn umhverfismála og um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands. Það frv. var miklu ítarlegra en frv. sem við erum hér að fjalla um því að þar var gerð grein fyrir ráðningu starfsfólks og ýmislegs annars. Með leyfi hæstv. forseta, ég vona að hann fyrirgefi mér það þó að ég rifji þetta frv. upp en þar stóð í 2. gr. að 7. gr. skyldi orðast svo: ,,Ráðherra kveður á um skiptingu ráðuneytis í skrifstofur og starfsdeildir eftir verkefnum.`` Og í 3. gr. er fjallað um hvað sé heimilt að ráða af starfsfólki og þar stendur að heimilt sé að skipa skrifstofustjóra eða deildarstjóra ráðuneytis aðstoðarráðuneytisstjóra þess ráðuneytis. Aðstoðarráðuneytisstjóri tekur við störfum ráðuneytisstjóra í forföllum hans. Skrifstofu ráðuneytis stýrir skrifstofustjóri og starfsdeild deildarstjóri undir umsjón ráðuneytisstjóra. Nú er starfsmaður ráðuneytis skipaður skrifstofustjóri eða deildarstjóri þess ráðuneytis og þarf þá eigi að gæta ákvæða 5. gr. laga nr. 38/1954. Í lok þessarar 3. gr. segir: ,,Ráðherra setur aðstoðarráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra og deildarstjóra erindisbréf þar sem m.a. skal kveðið á um starfssvið þeirra og starfsskyldur.`` Svo kemur í 4. gr. að auk ráðuneytisstjóra, aðstoðarráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra og deildarstjóra eru starfsmenn ráðuneyta fulltrúar, bókarar og ritarar eftir ákvörðun ráðherra. Þarna er því lýst hve starfsemi í væntanlegu ráðuneyti
verður umfangsmikil. En það er ekki minnst á þessi mál í því frv. sem hér liggur fyrir og manni verður þá spurn: Hvernig á að fara með þessi mál sem þótti nauðsynlegt að hafa í hinu fyrra frv.? --- Það er erfitt að halda talsmanni þessa frv. inni, hæstv. forsrh. Hann mun vera upptekinn. ( Forseti: Hv. 1. þm. Suðurl., formaður Sjálfstfl., mun hafa óskað eftir honum í Nd. og hann hefur verið að skjótast hér á milli af þeim sökum.) Já, það er skiljanlegt. Ætli það sé ekki líka verið að ræða mikilsverð mál í þeirri deild, eftir því sem mér skilst. ( EgJ: Þá verður bara að fresta málinu.) Já, ég bíð bara með þessar spurningar til forsrh. þangað til ég er komin lengra í ræðu minni en ég er rétt að byrja.
Það er frétt í Dagblaðinu í dag sem einnig vekur upp spurningar, vekur sjálfsagt athygli margra. Með leyfi hæstv. forseta langar mig að lesa þessa frétt. Hún er undir fyrirsögn: ,,Umhverfisráðuneyti, óánægja með afgreiðslu málsins eykst.`` Og svo kemur: ,,"Mér hefur fundist eðlilegt að þessi frumvörp fylgdust að og þegar gengið væri frá umhverfisráðuneyti væri þar allur pakkinn, þannig að við vissum hvað við værum að samþykkja í raun og veru,,, sagði Margrét Frímannsdóttir, þingflokksformaður Alþb. En meðal margra þingmanna stjórnarinnar má greina óánægju með hvernig ætlunin er að standa að samþykkt frv. um breytingu á Stjórnarráði Íslands og stofnun umhverfisráðuneytis. Ætlunin er að fá fyrst í gegn stofnun ráðuneytisins, en geyma til næsta þings hvernig málum verður skipað í hinu nýja ráðuneyti,
enda er ljóst að mikill ágreiningur er um þau mál. Margrét sagði að þetta væri eins og margt annað, samþykkt ríkisstjórnarinnar sem síðan stjórnarþingmönnum væri gert að staðfesta.``
Síðan kemur: ,,"Mér hefði þótt eðlilegt að þessi frumvörp fylgdust að. Því sé ég ekki tilganginn í því að stofna umhverfisráðuneyti án þess að verkefnin séu komin þangað um leið,,, sagði Margrét Frímannsdóttir.`` Ég vil svo sannarlega taka undir þessi orð hv. 4. þm. Suðurl., formanns þingflokks Alþb. Í sjálfu sér kemur þetta mér ekki á óvart því þessi þingmaður hefur svo oft sannað okkur það að hún er málefnalegri en margir aðrir þingmenn hér á hv. Alþingi þegar um ýmis mál er að ræða þar sem ríkisstjórnir ætla að taka ráðin af þingmönnum um hvaða afstöðu þeir taka. Hún hefur margsýnt að hún er ekkert hrædd við að styðja jafnvel þingmenn úr liði stjórnarandstöðunnar ef henni finnst málið vera gott og ber að virða hana fyrir það. ( KP: Það eru fleiri.) Það eru fleiri, það er alveg rétt, hv. 3. þm. Vestf. Ég get alveg tekið undir það og hann er meira að segja einn í þeim hópi og á hann heiður skilið fyrir það. En ég get ekki látið hjá líða að beina þeirri fyrirspurn til hv. 4. þm. Suðurl. hvernig þingflokkur Alþfl. ætlar að afgreiða þessi mál. ( Gripið fram í: Alþb.) Afsakið, ég ætlaði að segja Alþb. Ég mismælti mig þarna. En að undanförnu hafa nú sumir verið að sameina þessa tvo flokka. Það eru ekki allir sammála um það held ég, en það eru margir í Alþb. sem endilega vilja innlima Alþfl. eða öfugt. ( KP: Nei.) Ekki það? Þá kemur hv. 3. þm. Vestf. hér á eftir og skýrir það nánar en mér hefur heyrst á fréttum að mikill áhugi væri fyrir þessu. Ég tala nú ekki um formennina tvo sem voru komnir af stað á mýrarljósi hérna um daginn og voru á rauða ljósinu í fyrra. Það hefur að vísu farið hljótt um þá að undanförnu. ( KP: Þeir ráða nú litlu.) Þeir ráða litlu, sagði hv. 3. þm. Vestf. Þetta voru góðar upplýsingar og fróðlegar og taki menn eftir þeim. En hver það er sem ræður í Alþb. hlýtur að koma í ljós þegar þetta mál verður afgreitt hér úr deildinni. Þegar atkvæðagreiðslan fer fram hlýtur að koma fram hver það er sem ræður, en formaður þingflokksins er ekki feiminn við að láta í ljósi hvaða afstöðu hún hefur til málsins. Ég vænti þess að hún upplýsi okkur nánar um þetta vegna þess að ég hefði haldið að ef svona er komið, að frv. sem hæstv. hagstofuráðherra hefur viðurkennt að sé mikilvægt líka, fylgifrv. margumrædda, fær afgreiðslu, þá eigum við eftir að sjá hvernig hægt er að afgreiða það ef stjórnarliðið er ekki sammála um afgreiðslu þess frv. Ég hefði haldið að þá yrðum við bara að fresta þessu máli, hæstv. forseti. Er ekki bara komið að því að fresta verði frekari umræðu um þetta mál svo að stjórnarliðar geti haldið fundi og gefið sér góðan tíma og reynt að ná samstöðu um málið? Því ef þeir hafa ekki samstöðu um þetta mál, þá er ég hrædd um að atkvæðagreiðslan geti orðið eitthvað erfið. ( SkA: Það gæti komið eitthvað frá Sjálfstfl.) Það er nú hætt við því, í þessu máli er afstaða Sjálfstfl. alveg á hreinu eins og í svo mörgum öðrum málum.
En svona er þetta, hæstv. forseti. Það er von að maður sé farinn að hugsa til þess með kvíða fyrir hönd meiri hlutans hér á Alþingi að þetta mikilvæga mál, sem hv. 5. þm. Reykv. sagði um að aldrei hefði neitt mál fengið aðra eins umfjöllun, það nái bara alls ekki í gegnum þingið og hvað verður þá? Hvað eiga ráðuneytisstjórarnir og aðstoðarmenn ráðherra og fulltrúar og deildarstjórar og bókarar og guð má vita hvað að gera í ráðuneytinu ef ekki verður hægt að afgreiða þetta mál? Það er nokkuð sem okkur langar til að fá svör við og skyldi engan undra.
Það fer ekki hjá því að þegar maður er að fjalla um svona alvarlegt mál og mikilvægt, eins og hv. 5. þm. Reykv. og ég erum sammála um að sé, þá vill
hugurinn leita á svolítið víðara svið, fara svolítið út fyrir þetta eina orð sem hér er verið að fjalla um vegna þess að mér finnst stundum að talað sé um þetta mál eins og það sé eitthvert sáluhjálparatriði, stjórnunarþátturinn. Það skipti engu máli hvað eigi að vera þarna, bara fá þetta ráðuneyti. Þá séu öll mál leyst.
Mér hefur stundum heyrst á mönnum að aldrei hafi verið gert neitt í umhverfismálum hér áður. Það er mikill misskilningur og við getum lagt fram mörg gögn því til sönnunar. Mér dettur bara í hug þetta fallega, litla rit sem við fengum á fund nefndarinnar hjá landgræðslustjóra, Gróðurvernd, markmið og leiðir. Það var lagt fram af sjálfum landgræðslustjóranum og ég verð að segja að mér finnst þetta vera til mikillar fyrirmyndar. Það kemur í ljós í formálsorðum í þessu fallega, myndskreytta riti að ágætt samstarf fleiri aðila hefur verið þar. Og ég ætla, með leyfi forseta, að lesa þessi formálsorð hérna. En þar stendur:
,,Lengi hefur verið til umræðu hjá Landgræðslu ríkisins, Skógrækt ríkisins og landbrn. að aðkallandi væri að marka opinbera stefnu í gróðurverndarmálum. Hlutverk Skógræktar ríkisins og Landgræðslu ríkisins er skilgreint í lögum um landgræðslu og skógrækt, en þar sem þessi málefni hafa verið mikið til umfjöllunar var ákveðið að marka þessum stofnunum sameiginlega stefnu og birta í greinargerð.
Stefnumörkun sú, sem hér kemur fyrir almenningssjónir, er afrakstur starfs sem hófst í mars í fyrra með reglubundnum fundum fulltrúa frá umræddum stofnunum. Þeir skiluðu greinargerð um gróðurvernd, markmið og leiðir til landbrh. í ágúst sama ár, 1988. Í framhaldi af því var sömu aðilum falið að skýra nánar einstaka þætti efnisins. Starfshópurinn skilaði síðan áliti til landbrh. í janúar 1989 og var hópnum þá falið að ganga frá þeirri greinargerð sem hér birtist. Í framhaldi af þessu starfi hafa verið ákveðin sérstök verkefni sem stofnanirnar ætla að leysa á næstu fimm árum. Gert er ráð fyrir að sú áætlun verði endurskoðuð árlega.
Með þessari vinnu hafa skapast aukin tengsl á milli Landgræðslu og Skógræktar sem eru til þess fallin að efla samvinnu stofnananna.``
Undir þetta skrifa Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Steingrímur J. Sigfússon landbrh. og Sigurður Blöndal skógræktarstjóri. Ég tel að þarna sé
um fyrirmyndarbækling að ræða og þar er verið að setja fram markmið og leiðir. Þetta er m.a. eitt af því sem hefur verið gert þrátt fyrir að ekki væri búið að stofna umhverfisráðuneyti. Og eins og ég sagði áðan er ekki hægt að komast hjá því að hugleiða nokkuð á breiðari grundvelli og í víðara samhengi hvað við erum í raun og veru að fjalla um hér. Það er hvort við höfum látið þessi mál afskiptalaus á undanförnum árum, hvort við höfum ekki sinnt þeim, hvort við höfum gengið áfram með lokuð augu. Það er staðreynd að umræða um mengun og umhverfisvernd hefur verið á dagskrá víða um heim, einkum á seinni árum, og fer vaxandi. Mengun virðir engin landamæri og verndun náttúrulegra auðlinda varðar oft sameiginlega hagsmuni margra þjóða. Það er því óhætt að segja að umhverfismál séu í eðli sínu alþjóðleg.
Við lifum í tæknivæddri veröld og afleiðingar þess að menn hafa ekki verið á varðbergi til að bregðast nógu skjótt við áhrifum mengunar í lofti, láði og legi blasa við víða um heim. Fyrir liggja margháttaðar mælingar og rannsóknir um jarðvegs- og gróðureyðingu, ofnýtingu auðlinda, mengun í lofti, vatni og sjó sem stefnir öllu lífi í voða. Við höfum heyrt um afleiðingar af völdum brennisteins- og köfnunarefnisoxíða í andrúmsloftinu á tilteknum svæðum í Evrópu, svo sem súrt regn sem veldur eyðingu skóga, eyðingu ósonlagsins og loftslagsbreytingar vegna aukins koltvísýrings í andrúmsloftinu. Jafnframt mengun hafsvæða af úrgangi og eiturefnum. En við vitum hvað það þýðir fyrir okkur Íslendinga ef ekki er stemmt stigu við mengun hafsins í kringum landið. Það á ekki lengur við, máltækið góða: ,,Lengi tekur sjórinn við`` heldur væri kannski betra að segja að sjórinn tekur ekki lengur við.
Þjóðir heims, eins og við Íslendingar, eru nú óðum að vakna til meðvitundar um að mengun virðir engin landamæri og því hefur samstarf um umhverfismál verið tekið upp á alþjóðlegum vettvangi. Ég ætla aðeins að fara inn á þann þátt til að það komi fram að þessum málum hafi eitthvað verið sinnt, t.d. á vegum Sameinuðu þjóðanna og ýmissa alþjóðastofnana og ríkja sem eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta. Ég veit ekki betur en Ísland hafi gerst aðili að tveimur alþjóðasamningum; um verndun ósonlags jarðarinnar og um aðgerðir til að draga úr notkun klórflúorsambanda og halóna sem eru talin valda eyðingu ósonlagsins. Ísland hefur einnig tekið þátt í alþjóðasamstarfi til að koma í veg fyrir mengun sjávar og er aðili að alþjóðasamningum um varnir gegn mengun sjávar frá skipum, um bann við losun úrgangsefna í hafið og samnings ef olíuslys ber að höndum, svo að eitthvað sé nefnt. Og svo má minna hér aftur á Norðurlandaráð. Þar er náið samstarf norrænt um umhverfismál og það fer vaxandi. Sérstakt aukaþing Norðurlandaráðs var haldið fyrir ekki löngu síðan um umhverfismál. Ég held að það hafi verið fyrir liðlega ári síðan. Á því þingi sem fram undan er verða umhverfismálin á dagskrá. Á þessu aukaþingi voru
afgreiddar tvær samstarfsáætlanir Norðurlanda um umhverfismál. Annars vegar almenn umhverfisáætlun og hins vegar framkvæmdaáætlun um aðgerðir gegn mengun hafsvæða. En sú áætlun var m.a. til orðin vegna mikillar mengunar í Kattegat og Skagerak á Norðursjó sem talin er helsta orsök hins mikla þörungablóma sumarið 1988 sem olli tjóni á fiskeldi og á náttúrulegum fiskstofnum í hafinu. Fiskeldið er orðinn einn stór þáttur í okkar atvinnulífi og skiptir ekki litlu máli að við séum þar vel á varðbergi.
Á vettvangi Evrópubandalagsins hefur samstarf um umhverfismál aukist á undanförnum árum og hlotið aukinn forgang, m.a. vegna þrýstings frá almenningi og ýmissa umhverfisslysa sem hafa opnað augu manna fyrir mikilvægi þessa máls. Þar getum við rifjað upp Tsjernobíl-slysið árið 1986 og eiturefnaslysið í Sviss árið 1987. Og góðu heilli kemur einnig til breyttur tíðarandi og breytt lífsviðhorf fólks með aukinni áherslu á heilbrigði, hollustu og heilnæmt umhverfi.
Þó enn þá gæti staðbundinnar mengunar á Íslandi minna en annars staðar í Evrópu vegna legu landsins gegnir öðru máli um áhrif loftmengunar, svo sem eyðingar ósonlagsins, breytinga á loftslagi og hugsanlegrar mengunar og geislavirkni. Slíkar breytingar gætu haft meiri áhrif hér á landi en víða annars staðar einmitt vegna áhrifa á vatnsbúskap og fiskstofna. Það er því mikilvægt fyrir Íslendinga að taka þátt í samstarfi um rannsóknir og undirbúning aðgerða til úrbóta. Ekki hvað síst er það mikilvægt að komið verði í veg fyrir mengun hafsvæðanna umhverfis landið. Undir því er lífsafkoma íslensku þjóðarinnar m.a. komin í framtíðinni, þ.e. ef við getum haldið rétt á málum í sambandi við fiskinn okkar og lífið í sjónum, eins og var til umfjöllunar í gær í þessari hv. deild, frv. um stjórnun fiskveiða. Þeirri umræðu er ekki lokið og veit ég ekki af hverju það mál er ekki á dagskrá í dag, það mikilvæga mál sem skiptir lífsafkomu okkar einnig eins og þetta mál sem hér er verið að fjalla um.
Við þurfum sem sagt bæði að taka þátt í samstarfi á alþjóðavettvangi og hafa frumkvæði og ganga á undan með góðu fordæmi með því að gera þær ráðstafanir sem tök eru á innan lands til að fyrirbyggja mengun sjávarins. Við Íslendingar stærum okkur oft af hreinu lofti, ómenguðu vatni og mikilli og sérstæðri náttúrufegurð og ekki að ástæðulausu. Vissulega er loftið enn hreint og tært og vatnið sömuleiðis og hin stórbrotna og sérstæða náttúrufegurð verður vart dregin í efa og hefur margan ferðamanninn laðað til landsins, eins og hv. 6. þm. Vesturl. kom svo ítarlega inn á í sinni ræðu. Var mjög athyglisvert að heyra frá þeirri ráðstefnu sem hún var að skýra okkur frá.
En einmitt vegna þessa verðum við að spyrna við fótum ef við ætlum að halda þessum sérkennum okkar, hreinleika og náttúrufegurð. Við viljum selja ferðamönnum þessa vöru, ef við getum orðað það svo, en við viljum hreint ekki að þeir flytji fjöllin með sér úr landi, fari með grjótið eins og nokkuð hefur borið á. Það var einmitt, ef ég man rétt, viðtal við formann
Leiðsögumannafélagsins að ég held, í útvarpinu annaðhvort í morgun eða í gær þar sem hún var að lýsa áhyggjum stéttarfélags síns vegna þess hversu útlendingar eru farnir að gera út og selja ferðir til Íslands þar sem þeir beinlínis flytja allt með sér inn í landið og bjóða þess vegna ódýrari ferðir. Einmitt þessi þáttur átti að vera ein af framtíðaratvinnugreinum okkar og er reyndar orðinn það að vissum hluta. Við verðum að taka landið í fóstur í þess orðs fyllstu merkingu. Við verðum að hafa það hugfast að við höfum landið aðeins að láni og við verðum að leitast við að viðhalda og skila kostum þess og gæðum til komandi kynslóða. --- Ég vildi aðeins spyrja, hæstv. forseti, hvað þessi fundur eigi að standa lengi. ( Forseti: Hann verður fram að því að þingflokksfundir hefjast en hv. Nd. er enn að funda. Þingflokksfundir hefjast víst ekki fyrr en Nd. lýkur sínum fundi en ég mundi óska eftir því að hv. þm. frestaði sinni ræðu þegar að því kemur.) Það er alveg sjálfsagt, hæstv. forseti.
Nú er svo komið að umhverfismálin eru málaflokkur sem allir stjórnmálaflokkar taka til umfjöllunar í einhverri mynd. Þannig hafa verið fluttar fjölmargar þáltill. um umhverfismál á Alþingi og frv. sem varða umhverfismál á einhvern hátt. Eins og ég gat um hér við 1. umr. hefur Sjálfstfl. árum saman látið umhverfismálin til sín taka og ályktað um þau, m.a. á landsfundum sínum, jafnframt því að hafa frumkvæði um flutning frv. um umhverfismál hér á hv. Alþingi.
Ég veit ekki hvort ég á að fara að rifja upp aftur öll þau frv. sem við höfum flutt hér en það var gert við 1. umr., bæði af mér og hæstv. forsrh., svo það er kannski óþarfi að endurtaka það. En það má þá fara aðeins skemmra aftur í tímann en allar götur til 1975 og minna á að í ríkisstjórnartíð Þorsteins Pálssonar var sérstök ályktun um umhverfismál í stjórnarsáttmálanum. Í samræmi við það skipaði Þorsteinn Pálsson, þáv. hæstv. forsrh., nefnd sem falið var að semja drög að frv. til laga um samræmda yfirstjórn umhverfismála. Formaður þeirrar nefndar var Sigurður M. Magnússon og ég held að óhætt sé að segja að nefndin hafi unnið mjög ítarlega að þessu frv. Við þá vinnu var haft
samráð við fjölmarga hagsmunaaðila, því eins og margoft hefur komið fram er hér um mjög viðkvæmt mál að ræða og vandmeðfarið. Þess vegna lagði sú nefnd áherslu á að ná sem víðtækastri samstöðu við hagsmunaaðilana. En því er nú ekki að heilsa við það frv. sem við höfum verið að fjalla um því komið hefur fram í viðræðum við ýmsa sem komu á fund nefndarinnar að ekkert samráð var haft við hagsmunaaðilana við samningu þess. Þetta kom m.a. fram hjá formanni Sambands ísl. sveitarfélaga og hann tók fram að álit það sem stjórn sambandsins sendi allshn. Nd., þ.e. umsögn um frv., var samhljóða álit allrar stjórnarinnar og byggðist á tvennu. Fyrst og fremst því að aldrei var haft samráð við þá aðila um gerð frv. og svo hinu að stjórnin taldi óeðlilegt að samþykkja frv. um Stjórnarráð Íslands á meðan ekki
lægi fyrir hver verkefnin ættu að vera. Og á sama tíma, og ekki var minni áhersla lögð á það, væri verið að fjalla um tillögur innan ráðuneytanna um hvernig hægt væri að fækka, stækka og samræma ráðuneytin frá því sem nú er. Sem sagt að fækka þeim í staðinn fyrir að fjölga þeim.
Ég er aðeins að hugsa um það, hæstv. forseti, að ég er eiginlega komin þar í minni ræðu að heppilegt væri að gera hlé núna. Úr því að hvort eð er þarf að fresta þessum umræðum og ég að fresta minni ræðu, þá þætti mér, með leyfi hæstv. forseta, heppilegt að gera það nú.