Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Miðvikudaginn 21. febrúar 1990


     Þorsteinn Pálsson:
    Herra forseti. Ég óskaði eftir því að hæstv. forsrh. yrði viðstaddur þessa umræðu en eins og sakir standa hefur hann gefið hinu málinu forgang, þ.e. umræðum um stofnun ráðuneytis án verkefna og er það ekki í fyrsta sinn sem hæstv. ríkisstjórn lítur fremur til þess verkefnis en hins að huga hér að stöðu kjaramála og þeim efnahagsgrundvelli sem aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt.
    Það hefur vakið athygli hér á hinu háa Alþingi að hæstv. ríkisstjórn hefur ekki getað gefið skýr svör við því enn hvort hún ætlar að falla frá ákvörðunum um skattheimtu af ýmsu tagi. Þar á meðal hefur hún ekki getað gefið skýr svör um orkuskattinn sem sýnt hefur verið fram á að getur leitt til 30% hækkunar á orkureikningum heimilanna. Hún hefur engin skýr svör getað gefið um það hvað á að verða um áform hennar um 90% hækkun á bifreiðagjöldum.
    Það vakti athygli strax og kjarasamningarnir voru undirritaðir að hæstv. ríkisstjórn hafði engin svör við þessu. Það vekur enn athygli að þegar hún flytur staðfestingarfrumvarp sitt við það að hún hefur samþykkt hinn nýja efnahagsgrundvöll aðila vinnumarkaðarins, þá eru engin svör við þessum spurningum heldur. Og það vekur sérstaka athygli í þessari umræðu að enn á hæstv. ríkisstjórn eftir að uppfylla fyrirheit sem hún gaf aðilum vinnumarkaðarins í fyrra í tengslum við fiskverðsákvarðanir og kjarasamninga á sl. ári. Er nema von að fólkið í landinu hafi misst trú á hæstv. ríkisstjórn þegar hún getur ekki einu sinni sýnt fram á að hún uppfylli fyrirheit sem hún gefur í ársgömlum kjarasamningum? Það hefur verið vakin á því athygli hér að hæstv. forsrh. hefur engin svör getað gefið um það hvenær falla á frá jöfnunargjaldinu. Þar stendur hann með loforð frá síðustu kjarasamningum. Kemur svo hér þegar aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt nýjan efnahagsgrundvöll fyrir hæstv. ríkisstjórn og segir: Loforðið frá því síðast,
ég veit ekkert um það hvenær ég get efnt það, um það hef ég engin svör, þar hef ég engin úrræði.
    Og það vakti sérstaka athygli í gær að hæstv. forsrh. gat engin svör gefið um það hvernig ríkisstjórnin ætlaði að koma til móts við þá aðila sem eiga fulltrúa í Verðlagsráði sjávarútvegsins varðandi aflamiðlun. Hæstv. forsrh. stóð hér berskjaldaður í umræðum um ráðstafanir í kjölfar kjarasamninga og átti engin svör við þessum spurninum. Er þó heilt ár síðan hæstv. ríkisstjórn gaf fyrirheit um að koma til móts við aðila í þessi efni. Enn eru engin svör. Meira niðurlag er varla hægt að sýna, meiri getur auðmýking hæstv. ríkisstjórnar varla orðið. Fyrir ári síðan gerðu aðilar í Verðlagsráði með sér samkomulag og fiskkaupendur gengu þá til samkomulags um hærra fiskverð en ella hefði orðið vegna þess að hæstv. ríkisstjórn gaf fyrirheit um að koma á aflamiðlun. Fiskvinnslan, í þeirri erfiðu stöðu sem hún var þá, gaf þetta eftir, færði þessa fórn, greiddi þetta í þeim tilgangi að ná samkomulagi um aflamiðlun --- og

þegar þetta er rifjað upp þá gengur hæstv. forsrh. úr hliðarherbergi og óska ég eftir því, herra forseti, að hæstv. forsrh. geri upp við sig hvort er forgangsmál hjá hæstv. ríkisstjórn ráðstafanir vegna kjarasamninga eða frv. um stofnun ráðuneytis án verkefna. Ef hitt atriðið er forgangsatriði þá tel ég eðlilegt að þessari umræðu sé frestað. --- Hæstv. forsrh. gengur nú á ný til hliðarherbergis.
    Fiskvinnslan gekk til þessara samninga á sl. ári, fyrir heilu ári síðan. Hún féllst á að greiða hærra fiskverð til þess að ná samningum af þessu tagi í trausti þess að það væri eitthvað að marka yfirlýsingar hæstv. ríkisstjórnar. Nú er heilt ár liðið og á þessum grundvelli hefur enginn árangur orðið --- og enn á ný gengur hæstv. forsrh. úr hliðarsal til þess að taka þátt í umræðum um forgangsverkefni og beini ég því enn til forseta að fá úr því skorið hvort sé forgangsmál hæstv. ríkisstjórnar, hvort hæstv. forsrh. getur ekki tekið þátt í þessum umræðum sem hér fara fram. ( Forseti: Forseti skal gera ráðstafanir til þess að fá forsrh. í salinn.) Hæstv. forsrh. gengur nú í þriðja eða fjórða sinn í salinn. Það er ljóst að hann þolir illa við undir þeim umræðum sem hér fara fram og kýs heldur að koma forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar fram en að taka þátt í umræðum sem snúast um grundvöll efnahagslífsins, þann grundvöll sem aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt fyrir hæstv. ríkisstjórn.
    Ég var að rifja það upp, hæstv. forsrh., hvernig fiskvinnslan teygði sig til samkomulags í erfiðri stöðu fyrir ári síðan og treysti á að hæstv. ríkisstjórn aðhefðist eitthvað í málinu. Það kom þegar í ljós að lítið hald var í yfirlýsingum hæstv. ríkisstjórnar. Vegna innri ágreinings gat hún ekkert aðhafst og þrátt fyrir góðan vilja hæstv. sjútvrh. sem vildi þoka málinu fram og lýsti því margsinnis yfir þá gerðist ekkert að því er virðist vegna þvergirðings hæstv. utanrrh. Og svo virðist sem hæstv. forsrh. hafi heldur hallast á sveif með hæstv. utanrrh. fremur en hæstv. sjútvrh., varla væri málið í þeirri sjálfheldu sem það er í dag ef hann hefði, hæstv. forsrh., séð ástæðu til þess að styðja viðleitni sjútvrh.
    Ríkisstjórnin brást við á þann veg vegna innri ágreinings að segja við
aðilana sem hlut eiga að máli í Verðlagsráði sjávarútvegsins: Komið þið ykkur saman. Við getum ekkert gert, við getum ekki uppfyllt þau loforð sem við höfum gefið nema þið komið ykkur saman. --- Svo gerist það í kjölfar nýgerðra kjarasamninga þar sem allir þessir aðilar vilja leggja sitt af mörkum til þess að fiskverð verði ákveðið í samræmi við þá niðurstöðu, að þeir ná samkomulagi sín á milli og segja: Svona getum við staðið að málum, svona getum við komist að niðurstöðu. Það liggur í loftinu að það er hægt að ná samkomulagi í Verðlagsráði um fiskverð, einungis ef hæstv. ríkisstjórn getur komið sér saman um að fallast á það samkomulag sem hún er búin að biðja aðilana í Verðlagsráði að komast að. --- En þá kemur hæstv. forsrh. hér í gær og segir: Ég get ekkert gert, ég er úrræðalaus. Jafnvel þó að þessir aðilar hafa komið sér saman, þá getur ríkisstjórnin

ekki uppfyllt loforðið frá í fyrra, hún getur ekki uppfyllt loforðið frá því fyrir nokkrum dögum. Og hæstv. ríkisstjórn reynir að skjóta sér á bak við bréfaskriftir frá Verkamannasambandi Íslands í þessu efni.
    En gerir hæstv. forsrh. sér ekki grein fyrir því hvaða vandi er á höndum? Ef þessi aumingjaskapur í hæstv. ríkisstjórn heldur áfram þá gæti svo farið að það samkomulag sem liggur í loftinu í Verðlagsráði færi út um þúfur. Heldur hæstv. forsrh. að það séu meiri líkur ef svo fer að það verði unnt í samningum út um allt land að fylgja þeirri línu eftir sem lögð var í kjarasamningunum?
    Fiskvinnslan hefur í þessum umræðum enn á ný ákveðið að ganga lengra en efnahagslegar forsendur eru fyrir, í annað skipti á einu ári, til þess að kaupa sér samkomulag um aflamiðlun og samkomulag um það hvernig ráðstafa á óunnum afla. Í annað skipti á einu ári gengur fiskvinnslan lengra til þess að kaupa slíkt samkomulag, í trausti þess að ríkisstjórnin aðhafist eitthvað af sinni hálfu. Og enn situr hæstv. forsrh. hér og hefur engin svör.
    Menn voru býsna undrandi á því í umræðunni í gærdag að hæstv. forsrh. gat ekki svarað. En ég hygg að enginn hafi trúað því að kvöldið mundi líða án þess að nokkuð gerðist og að morgunn þessa dags mundi líða án þess að nokkuð gerðist og sólarhring seinna stæði hæstv. forsrh. enn í þeim sporum að geta ekki svarað skýru samkomulagi aðila að Verðlagsráði sjávarútvegsins, þeirra aðila sem ríkisstjórnin er búin að henda sínum eigin vanda í fangið á. Treystir hæstv. ríkisstjórn sér til þess að taka ábyrgð á því með úrræðaleysi sínu og getuleysi í þessu efni að hugsanlega náist bara ekkert samkomulag í Verðlagsráði sjávarútvegsins? Telur hæstv. ríkisstjórn að það verði auðvelt fyrir ýmsa af forustumönnum verkalýðsfélaganna sem staðið hafa að hófsömum kjarasamningum að fara með þau mál út um allt land í samningum í einstökum félögum? Það liggur í loftinu vegna sérstöðu þessa máls að í Verðlagsráði er hægt að ná samkomulagi um sérstakt jöfnunarálag vegna heimalöndunar á fiski. Það þýðir að í sumum tilvikum getur fiskverð hækkað um 15%. Ég held að flestir líti á þetta sem mjög eðlilegan hlut í stöðunni. En það hlýtur að verða erfitt fyrir ýmsa forustumenn verkalýðshreyfingarinnar að takast á við þetta í einstökum verkalýðsfélögum úti um landið í ljósi þeirra samninga sem þeir sjálfir hafa gert fyrir verkamenn. Ætlar hæstv. ríkisstjórn að nota bréf Verkamannasambandsins til þess að koma forustumönnum verkalýðsfélaganna úti um land í þessa stöðu? Treystir hæstv. ríkisstjórn sér til þess að bera ábyrgð á því að þessi mál lendi í útideyfu og þeirri upplausn sem gæti orðið ef engin niðurstaða fæst? Hún hefur sjálf, hæstv. ríkisstjórn, óskað eftir því að þetta samkomulag yrði gert á milli aðila að Verðlagsráði sjávarútvegsins. Hún hefur fengið það samkomulag og getur ekki brugðist við því af sinni hálfu.
    Það er sérstök ástæða til að óska eftir því hér enn

einu sinni að hæstv. forsrh. gefi skýr svör í þessu efni. Það verður auðvitað ekki þolað að einn sólarhringur líði enn án þess að ríkisstjórnin svari aðilum vinnumarkaðarins hér um. Fiskvinnslan er í sérlega erfiðri stöðu í þessu máli. Ekki síst í ljósi þess að útgerðin hefur með þeirri fiskveiðistefnu sem hér er fylgt aflahlutinn á sinni hendi. Rekstrarstaða fiskvinnslunnar er mjög erfið og hún er í annað sinn á einu ári að kaupa sér samkomulag við ríkisstjórnina án þess að fá viðbrögð. Og það er útilokað að einn sólarhringur líði enn án þess að ríkisstjórnin hæstv. gefi hér skýr svör um.
    Helst hefði ég viljað að á þessum fundi og fyrir lok þessarar umræðu kæmu þessi svör, yrði fiskverkendum, fiskverkafólki og útgerðarmönnum og sjómönnum færður sá boðskapur að ríkisstjórnin treysti sér til að samþykkja það samkomulag sem gert hefur verið. Að hún léti ekki innri ágreining innan ríkisstjórnarinnar hindra þá samstöðu sem getur orðið í þessu máli. Það er mikill ábyrgðarhluti.