Þorsteinn Pálsson:
Herra forseti. Það lýsir mætavel ráðþroti hæstv. forsrh. þegar hann í þessari umræðu segir sig enn einu sinni frá allri ábyrgð á fyrri ríkisstjórnum sem hann hefur átt sæti í. Það er ekki nýtt af nálinni, alkunnugt í hans málflutningi en lýsir vel ráðþroti hans í þessu máli. Ekki síst í ljósi þess að hæstv. ráðherra hefur setið í ríkisstjórn frá 1978 og flokkur hans í 20 ár samfellt.
Hæstv. forsrh. lýsti því hér yfir að fiskverð yrði ákveðið og ekki voru það mikil tíðindi. Það ber að gera lögum samkvæmt. Hitt hefðu kannski verið tíðindi ef hann hefði lýst því hér yfir að það yrði ekki gert, en það vita allir að það hefur nú dregist að unnt væri lögum samkvæmt að ákveða fiskverð vegna innri ágreinings í hæstv. ríkisstjórn og að hæstv. ríkisstjórn hefur ekki getað svarað aðilum vinnumarkaðarins fyrirheiti sínu frá því fyrir ári síðan um aflamiðlun. Þegar hæstv. forsrh. segir: Ríkisstjórnin mun leysa það mál, þá er það mikill misskilningur. Aðilar að Verðlagsráði sjávarútvegsins hafa með samkomulagi sín á milli nú þegar leyst það mál. Það eina sem tefur að sú lausn komi til framkvæmda er innri vandi hæstv. ríkisstjórnar. Það er staðreyndin í þessu máli.
Það er líka athygli vert þegar hæstv. forsrh. segir að innri vandi ríkisstjórnarinnar verði ekki leystur fyrr en hún nái sambandi við Kristján Ragnarsson. Formaður Verkamannasambandsins hefur nýlega lýst því yfir að sá maður ráði býsna miklu í þjóðfélaginu. Hann muni að vísu ekki geta ráðið yfir Verkamannasambandinu þó hann ráði hugsanlega yfir ríkisstjórninni og nú kemur hæstv. forsrh. og segir: Við getum ekki svarað skilmerkilegu samkomulagi aðilanna í Verðlagsráði fyrr en við höfum náð sambandi við Kristján Ragnarsson. Ég held að meiri geti niðurlæging hæstv. ríkisstjórnar ekki verið. Kjarni málsins er enn og aftur sá að aðilarnir að Verðlagsráðinu hafa náð samkomulagi. Fiskvinnslan hefur í annað skiptið, í erfiðri stöðu, keypt slíkt samkomulag talsverðu verði en enn stendur á því að hæstv. ríkisstjórn komi sér saman til þess að það samkomulag geti orðið að veruleika. Og það er þetta sem hæstv. forsrh. ber ábyrgð á. Auðvitað vonum við að aðilar vinnumarkaðarins knýi fram niðurstöðu og ég hef enga trú á öðru, en vandræðagangur hæstv. ríkisstjórnar og getuleysi hennar er jafnaugljóst eftir sem áður.