Forseti (Jón Helgason):
Samkvæmt samkomulagi við forseta Sþ. var gert ráð fyrir að deildafundir hæfust í síðasta lagi kl. 3, kl. 2--3. Vegna orða hv. þm. að öðru leyti vil ég ítreka það sem ég sagði hér fyrr á fundinum, að í síðustu viku var um það rætt að annir mundu verða í þinginu í þessari viku og rætt við þingflokksformenn á fundi með forsetum að það mundi þurfa a.m.k. fund annan hvorn föstudaginn og einhverja kvöldfundi í þessari viku.