Forkönnun á hagkvæmni varaflugvallar
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Halldór Blöndal (um þingsköp):
    Hæstv. forseti. Ég tók eftir því þegar hæstv. utanrrh. talaði síðast að hann fékk orðið án þess að hann væri áminntur um að það væri til þess að bera af sér sakir þó á hinn bóginn aðrir þm. verði undir því að sitja sem er eftirtektarvert. Og hann notaði tækifærið til þess að hafa uppi sömu dylgjur og áður um að það hefði staðið á Sjálfstfl. að leyfa forkönnun og er með því að afsaka aðgerðarleysi sitt. Staðreyndin er sú, eins og kom fram í máli hv. 1. þm. Suðurl., að fyrir því voru málefnaleg rök að ekki var hægt að heimila forkönnun á þeim tíma sem dylgjur hæstv. utanrrh. ná til. En ég vil þakka hæstv. forseta fyrir röggsemi hans.