Ríkisstyrkir til sjávarútvegs í Noregi
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Fyrirspyrjandi (Þorsteinn Pálsson):
    Frú forseti. Í Oslóaryfirlýsingu Fríverslunarsamtakanna frá því í fyrra kemur fram að samkomulag hafði tekist á milli aðildarríkja samtakanna um að koma á fríverslun með fisk. Sú niðurstaða hefur verið grundvöllur fyrir viðræðum EFTA-ríkjanna við Evrópubandalagið að því er varðar útflutning á sjávarafurðum inn á markað Evrópubandalagsins.
    Nú hafa borist af því fréttir að Norðmenn eru að auka mjög styrki sína til sjávarútvegs. Fyrir því eru sérstakar ástæður vegna þeirra miklu áfalla sem norskur sjávarútvegur hefur orðið fyrir og þeirra miklu erfiðleika sem Norðmenn þurfa að horfast í augu við. Eigi að síður liggur fyrir að Norðmenn munu á næstunni auka styrki til sjávarútvegs en ekki draga úr þeim og falla með öllu frá þeim. Með því sýnast litlar horfur á að raunveruleg fríverslun með fisk verði að veruleika innan Fríverslunarsamtakanna eins og áður hafði verið stefnt að.
    Því hef ég talið rétt að spyrja hæstv. utanrrh. hvort hann telji að þessir auknu styrkir samrýmist þeirri samþykkt sem Fríverslunarsamtökin hafa gert um þetta efni eða hvort hann hefur gert þar um athugasemdir á ráðherrafundum samtakanna.