Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson):
Virðulegur forseti. Það er liðið meira en mánuður síðan þessi fsp. var lögð hér fram á hæstv. Alþingi. En ástæðan fyrir því að hún var lögð fram er sú að það fóru fram kjarasamningar og það var krafa aðila vinnumarkaðarins að einn þátturinn í því að slíkir samningar næðust sem að var stefnt væri það að lækka verulega vexti. En þá kemur auglýsing í blöðum frá Verðbréfamarkaði Íslandsbanka þar sem heitið er 8% vöxtum ofan á verðbólgu ef viðskiptavinirnir geymi þar fjármagn og allt upp í 10,5% vöxtum af hlutabréfum sem þar eru í sölu. Allt upp í 10,5%. Af þessari ástæðu lagði ég fram eftirfarandi spurningar til hæstv. forsrh.:
,,1. Hvaða ráðstafanir hyggst ríkisstjórnin gera til þess að vextir og þar með verðbólga lækki verulega?
2. Í auglýsingu Verðbréfamarkaðar Íslandsbanka hf. er fjármagnseigendum boðin ávöxtun allt að 10,5% yfir lánskjaravísitölu. Telur forsrh. líklegt að vextir lækki eftir slík yfirboð?
3. Mun ríkisstjórnin gera ráðstafanir til að hindra að innlánsvextir verði á uppboði eins og þeir voru á árinu 1987 og nú virðist eiga að endurtaka?
4. Ef vextir standa í stað --- og hvað þá ef þeir hækka --- er þá nokkur von að skynsamlegir kjarasamningar verði gerðir?``
Síðan hafa verið gerðir kjarasamningar. Nafnvextir hafa að vísu lækkað ögn en raunvextir ekkert og eru nú á bilinu 7,5% og eins og sést á þessu auglýstir yfir 8% og munu vera í mörgum tilfellum enn hærri.