Félagslegar aðgerðir fyrir fanga
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Vesturl. þetta innlegg hans og vil svara honum fáeinum orðum. Þessi kostur sem hann nefnir, grunnurinn sem til er hér í Reykjavík og er nú raunar kjallari undir hálfu húsinu, málið stendur sem sagt nákvæmlega eins og það hefur gert í mörg ár, er einn af þeim sem verið er að athuga varðandi varanlega lausn fyrir fangelsishúsið á Skólavörðustíg, einn þeirra sem eru í skoðun.