Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Vegna ummæla hv. 1. þm. Reykv. og síðan hv. staðgengils fyrirspyrjanda vil ég geta þess að það er meira en sjálfsagt að hafa samráð og samvinnu við einstaka þingmenn um flutning frv. sem felur í sér breytingar á þessu ákvæði. Ég taldi nauðsynlegt að afla upplýsinga um það hvernig skattstjórar hefðu beitt heimildinni í 66. gr. núgildandi laga vegna þess að eins og eðlilegt er er það kannski nokkuð misjafnt eftir umdæmum hvernig slíkum heimildum er beitt í reynd. Einnig þarf að skoða hvort á að hafa hana nákvæmari eða setja sérstakar reglur um framkvæmd hennar til að tryggja að samræmi sé milli einstakra umdæma og til viðbótar tryggja það að einstaklingum sé ljóst að það séu heimildir í skattalögum til að leita eftir sérstöku mati þegar óvæntar aðstæður ber að hendi.
Þessa skoðun vildi ég láta framkvæma áður en frv. væri flutt vegna þess að það gæti verið nauðsynlegt að orða í leiðinni breytingar á 66. gr. um leið og þetta afmarkaða atriði, sem snertir tímasetningu persónuafsláttar og fráfall maka, væri tekið til skoðunar.