Norræna sjóréttarstofnunin
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Hagstofuráðherra (Júlíus Sólnes):
    Virðulegi forseti. Mig langar bara rétt aðeins að koma því á framfæri að ég hugðist taka upp þetta mál í umfjöllun um skýrslu samstarfsráðherra sem er á dagskrá á eftir, en þetta mál hefur töluvert borið á góma á fundum okkar samstarfsráðherra.