Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Hæstv. forseti. Ég bið hv. fyrirspyrjanda að leggja enga aðra merkingu í svörin en þau gefa tilefni til, sem sagt nákvæmlega þá að ekki hefur verið tekin afstaða til einstakra tillagna heldur hefur verið valin sú leið að vísa þeim til umsagnar og umfjöllunar í menningarmálanefndinni. Þess vegna ber alls ekki að leggja þann skilning í svör mín að á nokkurn hátt liggi fyrir stuðningur menntmrh. Íslands eða ríkisstjórnar um að leggja þessar stofnanir niður. Þvert á móti hefur engin afstaða verið tekin til slíks.
Sá vandi er uppi að Norðurlandaráð hefur á undanförnum árum fjallað um ýmis mikilvæg menningarverkefni sem hugur manna þar hefur staðið til að hrinda í framkvæmd. Til þess vantar hins vegar peninga og það er sá meinlegi galli á hverri krónu að hún verður ekki notuð til að borga hlutina oft heldur aðeins einu sinni og það á við í þessu tilviki. Menn sjá ekki fram úr því að borga meiri starfsemi en nú er á vegum Norðurlandaráðs með þeim fjárveitingum sem þangað renna til menningarmálanna. Þess vegna, eins og ég sagði áðan, verður annað tveggja að gerast, að til koma auknar fjárveitingar og/eða mönnum takast að spara í núverandi starfsemi ef ný starfsemi af þessum toga á að komast á fót.
Ég held að málsmeðferðin hafi verið fullkomlega eðlileg og ég vona að það sé alveg skýrt að ekki liggur fyrir á nokkurn hátt stuðningur fyrir fram við neinar af þeim tillögum sérstaklega sem hér hefur verið fjallað um né heldur hafa menn tekið þá afstöðu að taka fyrir fram upp andstöðu við þær heldur hefur málið í heild sinni verið sett í skoðun.