Fóstureyðingar
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Fyrirspyrjandi (Ásgeir Hannes Eiríksson):
    Hæstv. forseti. Ég þakka ráðherra góð svör og vænti þess að hægt verði síðar undir öðrum liðum hér á hv. Alþingi að ræða þessi mál öllu nánar. Að mörgu leyti get ég tekið undir það sem síðasti hv. ræðumaður sagði. Þjóðfélagið er á margan hátt vanbúið að takast á við mál af þessu tagi. En þegar talað er um slæmar móttökur í þjóðfélaginu þá get ég ekki ímyndað mér neinar verri móttökur en dauðann. ( SighB: Þá fer ég út.) Þá fer hv. formaður fjvn. En ef það eru einhverjar verri móttökur í þjóðfélaginu sem bíða fólks en dauðinn, þá hef ég ekki þær upplýsingar undir höndum.
    Ég vil ítreka þakkir til ráðherra fyrir góð svör.