Öryggi í óbyggðaferðum
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Frsm. allshn. (Guðni Ágústsson):
    Hæstv. forseti. Allshn. Sþ. varð sammála um að samþykkja þessa till. til þál. sem ályktun Alþingis, ekki síst í ljósi þess að nú þegar liggur fyrir að samgrh. og dómsmrh. ætla að skipa nefnd í þetta mál. Nefndin er sammála um að þál. eigi erindi sem gagn í þá vinnu sem fram þarf að fara.
    Undir þetta skrifa allir nefndarmenn allshn. nema hv. þm. Ingi Björn Albertsson sem var fjarverandi.