Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegi forseti. Þetta mál hefur verið til ítarlegrar umfjöllunar í hv. Nd. þannig að það er kannski ekki ástæða til að lengja mjög umræður um það hér í hv. Ed. Þó eru nokkur atriði í þessu frv. til laga um ráðstafanir vegna kjarasamninga sem ég vildi gjarnan fá nánari skýringu á jafnframt því sem ég vil fjalla um nokkur önnur atriði.
    Það sem vekur athygli við lestur þessa frv. er í fyrsta lagi að aðild ríkisstjórnarinnar að þessum kjarasamningum er með þeim hætti að margt er þar óljóst. Þar eru gefin ákveðin fyrirheit um það hvernig ríkisstjórnin hyggist standa að þessum málum. Jafnframt hefur ríkisstjórnin gert ákveðnar skuldbindingar við gerð samninganna eins og birtist hér í frv., undirgengist ákveðnar skuldbindingar, sem ég vildi gjarnan fá betur upplýst um hvað í felst þar sem ég tel að það komi ekki nægilega skýrt fram og ég er ekki viss um að aðilar vinnumarkaðarins hafi allir gert sér grein fyrir því hvernig sum þessara ákvæða muni verða í framkvæmd. Alla vega vildi ég fá það upplýst hjá hæstv. forsrh. hvort hann telji að t.d. fulltrúar Alþýðusambands Íslands hafi gert sér það ljóst, þegar þeir voru að ganga frá samningunum, að þegar verið var að ganga frá ákveðnu samkomulagi í sambandi við breytingu á lögum nr. 29/1963, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins --- ég er ekki viss um það að fulltrúar Alþýðusambandsins hafi gert sér grein fyrir því --- að 1.--3. gr. frv. feli það í sér að bilið breikki á milli lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna annars vegar og þeirra sem taka lífeyri úr lífeyrissjóðum hins almenna vinnumarkaðar hins vegar.
    Ég vil skýra þetta nokkuð nánar, virðulegi forseti. Eins og segir í frv. er gert ráð fyrir, skv. 2. gr., með leyfi forseta, að launagreiðendur greiði ,,6% af föstum launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót, er sjóðfélagi tekur hjá þeim, í iðgjöld til sjóðsins og skal greiða þau sjóðnum samtímis
iðgjöldum sjóðfélaga``. Þetta er sú prósenta sem ríkið borgar til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og í henni felst ákveðin skuldbinding um það að nú skuli tryggja að ellilífeyrisþegar fái hlutdeild í orlofsuppbót samkvæmt kjarasamningi BSRB og fjmrh., enda verði greidd iðgjöld af orlofsuppbótinni á sama hátt og af dagvinnulaunum og persónuuppbót. Þetta er, virðulegi forseti, nýmæli í sambandi við lífeyrisgreiðslur. Ég sé ekki að í samningum verkalýðshreyfingarinnar við Vinnuveitendasambandið og Vinnumálasambandið séu hliðstæð ákvæði eða hliðstæð trygging fyrir ellilífeyrisþega sem taka lífeyri úr lífeyrissjóðum hins almenna vinnumarkaðar eins og ég benti á hér áðan. Þess vegna vildi ég spyrja hæstv. forsrh. að því hvað þetta þýði mikla hækkun í lífeyrisgreiðslum til opinberra starfsmanna vegna þess að þessi ákvæði, þessi lög, virðast vera afturvirk hvað varðar ellilífeyrisþega. Hvað er um háar upphæðir að ræða miðað við núverandi skuldbindingar ríkissjóðs og hvað hækkar raunverulega ellilífeyrir til einstakra lífeyrisþega í það heila tekið, þ.e. hjá þeim sem taka

ellilífeyri frá hinu opinbera?
    Þetta mun breikka bilið á milli lífeyrisþeganna. Það er nú vart á bætandi og þótt ríkisstjórnin gefi fyrirheit um það að leggja hér fram frv. til laga um starfsemi lífeyrissjóða felst ekkert í því fyrirheiti gagnvart hinum almenna verkamanni og verkakonu eða launamanni úti á hinum almenna vinnumarkaði, ekki neitt fyrirheit um það að þótt frv. verði lagt fram tryggi það betur stöðu lífeyrisþega sem taka lífeyri úr hinum almennu sjóðum nema síður sé. Ég vildi því gjarnan heyra hvað hæstv. forsrh. hefur um þetta að segja, að þarna er verið að tryggja enn betur stöðu þeirra sem taka lífeyri úr lífeyrissjóði hins opinbera.
    Síðan er það annað atriði í þessum samningum í sambandi við lífeyrismál þar sem ég er að tala um þau núna. Þar segir að frv. til laga um starfsemi lífeyrissjóða verði lagt fram á vorþingi og milliþinganefnd skipuð til að fjalla um málið í sumar. Gert er ráð fyrir afgreiðslu frv. um lífeyrissjóði á næsta þingi.
    Ég vildi þess vegna að gefnu tilefni spyrja hæstv. forsrh. hvort hæstv. ríkisstjórn sé búin að skuldbinda sig með óbeinum hætti að standa að því frv., sem vísað er til, óbreyttu eða hvort það sé tilgangur þessarar yfirlýsingar að hæstv. ríkisstjórn ætli að tryggja öðrum lífeyrisþegum en opinberum starfsmönnum sambærileg kjör og opinberir starfsmenn hafa. Við vitum það sem hér erum inni og höfum fjallað um þessi mál að það er mikið bil þarna á milli. Ég hlýt að leggja áherslu á það að í slíkri yfirlýsingu felist það að lífeyriskjör hins almenna launamanns, þ.e. þeirra sem taka lífeyri frá hinum almennu sjóðum, batni til muna og hæstv. ríkisstjórn sé þess vegna að vinna að því, m.a. með því að undirrita yfirlýsingu sem þessa í bréfi til Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins og Vinnumálasambandsins að það sé tilgangurinn. Annars er þetta bara orðaleikur eða, ég vil ekki segja blekkingar, heldur er verið að gefa til kynna hluti sem menn hafa svo ekki hugsað sér að standa við. Ég legg sem sagt, virðulegi forseti, áherslu á það og þann skilning að með þessu eigi að bæta verulega lífseyriskjör hins almenna
launamanns.
    Þá vildi ég gjarnan, virðulegi forseti, fá betur upplýst hjá hæstv. forsrh. í hverju hinar félagslegu hugmyndir eru fólgnar í sambandi við húsnæðiskerfið. Í bréfi ríkisstjórnarinnar til Alþýðusambandsins, sem er dags. 1. febr., segir svo, með leyfi forseta:
    ,,Nefnd félmrh. sem fjallar um félagslega húsnæðiskerfið mun skila niðurstöðum á næstu dögum. Nefndin mun leggja fram tillögur um endurbætta tilhögun lánveitinga til félagslegra íbúðabygginga og ráðstafanir og leiðir til að auka framboð leiguhúsnæðis. Með hliðsjón af þeim áformum um félagslegt húsnæði sem kynnt hafa verið lýsir ríkisstjórnin sig reiðubúna til að kanna hvaða leiðir til úrbóta eru færar þannig að félagslega húsnæðiskerfið geti leyst úr brýnustu þörf.``
    Ég vildi gjarnan fá að heyra hjá hæstv. forsrh.

hvort þessar tillögur liggja fyrir og hvort hann geti kynnt þær hér, svona í meginatriðum.
    Þá vil ég, virðulegi forseti, víkja að öðru atriði sem er auðvitað grundvallaratriðið í þessu máli en það er yfirlýstur tilgangur þessara samninga, bæði af hálfu aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar, að samningarnir feli það í sér að launakjör skuli vera með samræmdum hætti, bæði á grundvelli þess samnings sem hér er verið að fjalla um og þeirra ráðstafana sem tengdar eru samningnum þannig að aðrir aðilar fari ekki út fyrir þann ramma sem hér er starfað samkvæmt. Ég vildi þess vegna, virðulegi forseti, gjarnan fá það upplýst hjá hæstv. forsrh. hvort hann geti skýrt okkur frá því hvað líði ákvörðun um fiskverð. Það hefur nú dregist of lengi að ákveða fiskverð. Raunverulega hefði átt að vera búið að ákveða fiskverð 1. febr., en það hefur nú dregist úr hömlu eins og þingmenn vita. Í sambandi við ákvörðun fiskverðs og stöðu útgerðar og fiskvinnslu almennt er mjög veigamikið mál enn þá óútkljáð sem lýtur að aflamiðlun, en eins og hv. þm. vita er það meginatriði að komið verði á fót aflamiðlun til þess að stýra útflutningi á óunnum fiski með þeim hætti að aðeins fari úr landi sá fiskur sem segja má að fari beint á borð neytenda en ekki verði fluttur út fiskur sem fari í vinnslu í erlendum höfnum. Þetta mál er ekki enn komið í höfn, aflamiðlunin, þ.e. það er ekki búið að ganga frá því sem skyldi að aflamiðlun komist til framkvæmda með þeim hætti að atvinnuástand verði tryggt betur en nú er og ekki heldur tryggt að ekki sé fluttur út fiskur sem síðan keppi við okkur á erlendum mörkuðum.
    Þá er það einnig mjög þýðingarmikið atriði í sambandi við alla aflamiðlun að upplýsingar um ásetning manna í sambandi við útflutning liggi fyrir þannig að þau skipti geti átt sér stað á fiski á milli útflytjenda og framleiðenda sem hámarka þann hagnað sem við þurfum að hafa af fiskframleiðslu og útgerð. Ég vildi þess vegna óska eftir því að hæstv. forsrh. upplýsti okkur um það hvernig þetta mál stendur nú. Eins og þingmenn vita hafði náðst samkomulag á milli aðila í útgerð og fiskvinnslu, þar á ég við útgerðarmenn, fiskframleiðendur og sjómenn, um tilhögun þessara mála, en það mun stranda á hæstv. utanrrh. að þetta komist til framkvæmda. Ég óska þess vegna eftir þvi að hæstv. forsrh. skýri frá því hér í þessari umræðu hvernig þetta mál stendur og einnig með hvaða hætti ríkisstjórnin hyggst stuðla að því að fiskverð verði ákveðið.
    Þá vildi ég einnig, virðulegi forseti, fá það upplýst hvort hæstv. ríkisstjórn ætli virkilega að láta stranda á einhverjum ágreiningi á milli einstakra ráðherra um það hvernig framkvæmd þessara mála verður háttað og einnig hlýt ég að óska eftir því að fá upplýsingar um það hvort hæstv. forsrh. ætli ekki að leysa þá deilu sem upp mun vera komin um skipan þeirrar nefndar sem á að fjalla um þetta mál.
    Varðandi frítekjumarkið sem hæstv. forsrh. fjallaði hér um áðan verð ég að segja það sem mína skoðun að mér finnst það vera of lágt. Frítekjumarkið hefði

þurft að vera mun hærra og það hefði þurft að tryggja það að sú skattlagning sem á sér stað á lífeyrisþegum væri raunverulega þurrkuð út. Það hefur ekki gerst í þessum samningum, því miður. Hins vegar lofar ríkisstjórnin að hún muni halda áfram athugun á samræmingu skattlagningar og frítekjumarks allra tekna gagnvart tekjutryggingu almannatrygginga. Þetta er almennt fyrirheit en eftir sem áður munu margir lífeyrisþegar því miður þurfa að greiða skatta af sínum lágu lífeyristekjum og er um tvísköttun að ræða í mörgum tilvikum.
    Eitt er það atriði í sambandi við þetta samkomulag allt sem mér finnst að menn þurfi að huga að sem er dálítið óvanalegt og öðruvísi en menn hafa átt að venjast. --- Ég skil það að formaður og varaformaður Framsfl. þurfi að ræða saman ( Forsrh.: Forsrh. og sjútvrh.) Já, ég leit nú fyrst og fremst á samflokksmenn en auðvitað átti ég að segja hæstv. forsrh. og hæstv. sjútvrh. Það er nú ekki svo oft sem maður sér þá sitja saman hér í þingsölum. ( Gripið fram í: Það er sjaldgæft.) Maður á helst ekki að vera að trufla þá í þeirra viðræðum. Ég skil það vel að þegar verið er að tala um aflamiðlun þurfi þeir að bera saman bækur sínar og þetta er ekki einfalt mál. Það hafa örugglega farið fram miklar bréfaskriftir á milli málsaðila og hæstv. forsrh. um
aflamiðlun og nú mun formaður Verkamannasambandsins, Guðmundur J. Guðmundsson, einnig hafa blandast í leikinn og hefur sínar skoðanir á því hvernig þetta eigi að gerast, en það mun nú ekki breyta því að aðilar atvinnulífsins munu geta komið sér saman um að starfa saman í fimm manna nefnd.
    Spursmálið er bara það hvort pólitíkusarnir í ríkisstjórninni, hæstv. utanrrh., geti sætt sig við það að þessi mál verði flutt í sjútvrn. sem er auðvitað eðlilegra þar sem hér er um útflutning á vöru að ræða sem eru sjávarvörur. (Gripið fram í.) Þetta snýst ekki um völd, hv. þm. Þetta snýst um það hvaða tilhögun gæti verið best og æskilegust í sambandi við framkvæmd þessara mála. ( KSG: Viðskiptamál.) Ja, viðskiptamál, það fer eftir því hvernig á það er litið. Við skulum snúa okkur að því ef það eru viðskiptamál, og það er verið að tala um völd. Fyrst hv. þm. Karl Steinar, varaformaður Verkamannasambandsins, fór að grípa hér fram í vildi ég óska eftir því að hv. þm. tæki þátt í með mér, ég skal semja tillöguna, till. til þál. um það að hæstv. utanrrh. birti skýrslu um þau útflutningsleyfi sem hafa verið veitt á vegum utanrrn. sl. tvö ár. (Gripið fram í.) Það hefur verið reynt að fá slíka skýrslu. Því miður hefur hún ekki fengist en það væri mjög æskilegt að fá að sjá það hvernig hæstv. utanrrh. eða starfsmenn utanrrn. hafi metið það hvernig eigi að haga útflutningsmálum þjóðarinnar. Það væri mjög þýðingarmikið að fá að sjá hvernig þeir meta það hverjir eigi að fjalla um ... (Gripið fram í.) Hv. þm. Karvel Pálmason vill vera meðflm. þessarar tillögu. ( KP: Vitanlega.) Ég þakka honum fyrir það. Ekki er það lakara. Það er þess vegna ekki alveg sama hverjir

fjalla um þetta. Við sem erum í tengslum við sjávarútveginn höfum átt ágætt samstarf við hæstv. sjútvrh. Hins vegar hefur það verið dálítið flóknara og erfiðara í sambandi við hæstv. utanrrh. En eins og ég sagði áðan munu þeir aðilar sem eru starfandi í atvinnugreininni ekki láta stranda á því hvernig nefndarskipun verður. Hins vegar gerum við kröfu til þess að hæstv. ráðherrar komi sér saman um það þannig að hægt sé að koma aflamiðlun á fót og það sem fyrst. Þetta er hagsmunamál verkafólks. Það er hagsmunamál þeirra sem starfa í frystihúsunum að þetta sé ekki dregið og að það sé ekki verið að flytja hér út ferskan fisk sem fer beint í fiskvinnslustöðvar í Grimsby og Bremerhaven og keppir svo við íslenskan fisk á mörkuðum Vestur-Evrópu.
    Þá er það eitt atriði til viðbótar sem ég vildi gjarnan fá að fjalla um. Ég segi það, virðulegi forseti, að ég held að hæstv. forsrh. ætti að hætta að halda fundi ... ( Forsrh.: Ég heyri vel í þér. Ég heyri nógu vel í þér.) Það er ég ekki viss um. Ég er ekki viss um að hæstv. forsrh. heyri nægilega vel það sem ég ... ( Forsrh.: Ég má ekki við meiru.) (Gripið fram í.) Já, ég skil það vel, en vera með hæstv. fjmrh. við vinstra eyrað --- það er svo mikið álag að ég vil forða hæstv. forsrh. undan því. ( Forsrh.: Það gæti verið ágætt ...) Já, einhvern tíma var sagt um íhaldið og kommana að þeir gætu nálgast hverjir aðra, en nú er bara hæstv. fjmrh. búinn að afneita kommúnismanum ( Forsrh.: Nú er hann farinn svo að þér er óhætt að halda áfram.) þannig að ég er ekki viss um að jafnvægið verði með sama hætti og áður. ( HBl: Markaðshyggjukommúnisti.) Já, það er hæstv. fjmrh. Hann er sósíalmarkaðshyggjukommúnisti. ( KP: Hver?) Hæstv. fjmrh. Hann sagði hér í ræðu ... ( KP: Ólafur Ragnar?) Er hann ekki enn þá fjmrh.? Jú.
    En það er þetta atriði í bréfi forsrh. sem mér finnst vera mjög sérkennilegt svo að ekki sé meira sagt. Ég vil taka það fram áður en ég vík að þessu atriði að ég er þess mjög fýsandi að gott samstarf sé á milli aðila vinnumarkaðarins annars vegar og ríkisstjórna hins vegar. En ég er ekki alveg viss um það að ég sé sammála því, þótt ég hafi hér áður fyrr verið virkur þátttakandi í forustu verkalýðshreyfingarinnar, að æskilegt sé að gera það með þeim hætti sem kemur fram í bréfi forsrh. 1. febr. með tilliti til þeirrar skyldu sem hið háa Alþingi hefur og ríkisstjórnin varðandi stjórn landsins. Ég er ekki viss um að það sé rétt gagnvart lýðræðinu og þingræðinu í landinu að njörva niður með þeim hætti sem hér birtist í þessu bréfi samkomulag á milli ákveðinna hagsmunaaðila því að við skulum ekki gleyma því að þó að Vinnuveitendasambandið og Vinnumálasambandið og Alþýðusambandið og verkalýðshreyfingin séu fjölmennar og sterkar fjöldahreyfingar á Íslandi, þá eiga þær raunverulega ekki að stjórna landinu þótt mikilvægt sé að samningar náist á milli þessara aðila og friður haldist á vinnumarkaðnum. En í bréfi hæstv. forsrh. til þessara aðila segir m.a., með leyfi forseta:
    ,,Til þess að greiða fyrir að sameiginleg markmið náist mun ríkisstjórnin fela sérstakri nefnd

embættismanna að eiga reglulega fundi minnst einu sinni í mánuði með launanefnd ASÍ og VSÍ og VMS. Á fundunum skal farið yfir þróun helstu hagstærða, peningamála og ríkisfjármála og munu aðilar í sameiningu leita leiða til að ná fram því jafnvægi sem nauðsynlegt er til að markmið kjarasamninganna náist.``
    Ég hefði nú haldið að það væri hlutverk og skylda stjórnvalda, og þá sérstaklega ríkisstjórna á hverjum tíma, að annast þetta verkefni. En í þessu finnst mér felast ákveðið framsal á skyldum og hlutverki Alþingis og ríkisstjórnar, í vissum skilningi. Við skulum vona að þessir aðilar kunni að
fara með þetta umboð sitt sem felst í þessu sem fram kemur í bréfi hæstv. forsrh. til þeirra, en mér finnst vera nokkuð langt gengið þegar ákveðnir hagsmunaaðilar, þó svo að ég virði stöðu þeirra og rétt í íslensku þjóðfélagi, í samræmi við stöðu þeirra, eiga að fá, ég vil segja þessi ákveðnu forréttindi til að fjalla um þessi veigamiklu mál með þeim hætti sem birtist þarna í bréfinu. Ég neita því ekki. Ég vildi gjarnan fá nánari skýringu hæstv. forsrh. á því hvernig hann hugsar sér að framkvæma þetta og hvert verður þá hlutverk t.d. Alþingis í sambandi við afskipti af þessum málum. Verður ríkisstjórnin í samráði við þessa aðila búin að koma sér saman um það hvernig þessu skuli hagað þannig að Alþingi komi eftir á, eftir að sá meiri hluti sem stendur að baki núv. ríkisstjórn og þessir aðilar koma sér saman um það? Er ekki hæstv. forsrh. búinn að ganga nokku langt í framsali á ákveðnu frumkvæði?
    Ég mun ekki, virðulegi forseti, orðlengja þetta frekar, en ég legg áherslu á að fá það upplýst hér á eftir hvort það fyrirheit sem ríkisstjórnin hefur gefið í sambandi við aflamiðlun fari ekki að koma til framkvæmda. Ég treysti því að hæstv. forsrh. skýri betur það sem ég legg áherslu á að fá fram, hvað felst í fyrstu greinum þessa frv. varðandi ellilífeyrisgreiðslur til opinberra starfsmanna og hvernig það snýr að hinum almenna lífeyrisþega sem tekur lífeyrisgreiðslur úr almennum sjóði.