Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Forseti (Jón Helgason):
    Það eru enn nokkrir á mælendaskrá svo að ljóst er að þessi umræða stendur enn nokkurn tíma. Síðan eru tvö mál önnur á dagskrá svo óvíst er hvort þeim lýkur fyrir kvöldmat, en að sjálfsögðu er það ekki útilokað enn. Ég vildi koma því hér á framfæri að ef svo tekst ekki, þá mundi verða óhjákvæmilegt að halda fundi áfram að honum loknum.