Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Halldór Blöndal (um þingsköp):
    Herra forseti. Ég hef kannski heyrt vitlaust. Í gær var tilkynnt úr forsetastóli að fundur yrði í dag en ekki talað neitt um kvöldfund í því sambandi. Og ég skildi það áreiðanlega rétt að við það verði staðið að ekki verði kvöldfundur. Ber svo að skilja að forseti hafi verið að boða kvöldfund með óljósum hætti? ( Fjmrh.: Það fer eftir því hvað menn tala mikið.) Ja, forseti vill ekki svara. ( Forseti: Ég sagði að ef umræðu um málið lyki ekki fyrir kvöldmat yrði óhjákvæmilegt að hafa fund eftir kvöldmat. Í gærkvöldi lýsti ég því yfir að fundur yrði í dag og á morgun. Þá kom líka fram að ég hafði fyrir rúmri viku síðan rætt við formenn þingflokka á fundi forseta þar sem hann undirstrikaði að búast mætti við kvöldfundum í þessari viku. Hið sama hef ég tjáð formönnum þingflokka síðan og þá einnig í kvöld.) Hæstv. forseti hafði þetta orð í eintölu í gær og er auðvelt að fletta því upp. Hann sagði að þá hefði hann tilkynnt að búast mætti við kvöldfundi í þessari viku.
    Nú þekkir hæstv. forseti það jafn vel og ég að það er ekki vel séð í þinginu að kvöldfundur sé tvö kvöld í röð. Ég minnist þess m.a. þegar Lúðvík Jósepsson átti sæti á Alþingi að hann gekk mjög hart fram í því að þessi regla yrði ekki brotin. Ég minnist þess ekki að öðruvísi hafi verið farið að og ég minnist ekki annars en að forsetar hafi tekið tillit til þess, bæði vegna starfsfólks þingsins og þingmanna, að þessi regla yrði í heiðri höfð. Ég vil vekja athygli á því að fundi í Sþ. var haldið áfram þangað til, ja, ætli klukkan hafi ekki verið langt gengin í þrjú eða orðin þrjú þegar fundi lauk í Sþ. og ljóst að þar voru ekki á dagskrá jafnknýjandi mál og það sem við erum að ræða hér. Ég get á hinn bóginn ekki skilið ummæli hæstv. forseta svo að hann telji að það mál sem nú er til umræðu sé ekki svo þýðingarmikið að nauðsynlegt sé að þingmenn ræði um það.
    Ég vil beina því til forseta að hann virði þá reglu að ekki séu haldnir kvöldfundir tvö kvöld í röð. Það er auðvitað á valdi þingsins eða forseta þingsins að ganga fram með hörku í þessum efnum og ég veit að við þingmenn stjórnarandstöðu getum lítið við því gert ef sú er skoðun forseta að virða að engu gamlar og góðar þingvenjur. En ég vil sem sagt beina því til hæstv. forseta að hann í lengstu lög reyni að virða þessa reglu og falli frá þeirri ákvörðun sinni að efna til kvöldfundar nú.