Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Hv. 2. þm. Norðurl. e. bað um svar við einni spurningu. Hann vildi fá að vita hvort ríkisstjórnin ráðgerði að lögfesta þá samninga sem nýlega hafa verið gerðir. Svo er alls ekki og hefur engin áætlun um það verið gerð og engar viðræður farið fram á milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins um það.