Frumvarp um stjórn fiskveiða
Föstudaginn 23. febrúar 1990


     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ég vil taka undir þau orð sem hér hafa fallið um að auðvitað er mjög bagalegt að ekki skuli vera unnt að halda uppi eðlilegum umræðum um mál hér í deildinni, halda uppi eðlilegri málafylgju um þau lagafrv. sem hér liggja fyrir. En það sýnir betur en annað þann glundroða sem störf þingsins eru í og sýnir betur en annað hversu litla stjórn hæstv. forsrh. hefur á sínum mönnum í ríkisstjórninni, að ég ekki tali um þingliðið. Ég skal ekki segja hvort það muni koma áfram í fréttum að stjórnarandstaðan haldi uppi málþófi í deildinni. Það hefur auðvitað ekkert málþóf verið í þessari deild það sem af er þessu þingi. En á hinn bóginn hafa þingmenn stjórnarandstöðunnar verið önnum kafnir við að greiða fyrir því að mál kæmust áleiðis svo að allt endaði ekki hér í hringavitleysu.
    En ég tek undir með hv. 3. þm. Vestf. að það er auðvitað fróðlegt að fá um það upplýsingar frá ráðherrum Borgfl. hvort þeir hafa vitað um það að búið er að leggja fram frv. um stjórn fiskveiða.