Bifreiðagjald
Föstudaginn 23. febrúar 1990


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson):
    Virðulegi forseti. Eftir 1. umr. málsins kom fjh.- og viðskn. saman til fundar og ræddi frv. Nefndin klofnaði í afstöðu sinni til frv. Meiri hl. nefndarinnar lagði fram nál. á þskj. 662 þar sem lagt er til að frv. verði samþykkt. Undir nál. rita Guðmundur Ágústsson, Jóhann Einvarðsson, Skúli Alexandersson og Eiður Guðnason og Guðrún Agnarsdóttir með fyrirvara.