Stjórnarráð Íslands
Föstudaginn 23. febrúar 1990


     Egill Jónsson:
    Herra forseti. Ég var nú búinn að orða það við fyrri hluta þessarar umræðu að rökstyðja enn þá betur það mál sem ég flutti þá um þátt náttúruaflanna í því að breyta ásjónu þessa lands. Auðvitað liggur það fyrir að hér hefur búsetan að sjálfsögðu átt hlut að máli, enda eru nú engar spurnir fyrir því í heiminum að búseta hafi ekki breytt ásjónu landanna frá því að þau voru óbyggð, og skárra væri það. Ég leiddi hins vegar rök að því hver þáttur náttúruaflanna hefur verið í því að eyða hér gróðri. Og ég stend við það sem ég sagði, að það er mér mikið undrunarefni hvað einmitt sá þáttur í útliti landsins er stórkostlega vanmetinn. Og fyrri ræða hv. 6. þm. Vesturl. bar gróflega mikinn keim af þeim skýringum í umræðum um útlit landsins. Ég tek hins vegar undir það sem hv. þm. sagði hér í fyrri ræðu sinni og er gífurlega mikilvægt mál. Það er að varið verði meiri tíma í skólum landsins hér eftir en hingað til hefur verið gert til þess að uppfræða æsku landsins um það hvernig náttúrufarið er í þessu landi.
    Hv. þm. hafði orð á því í fyrri ræðu sinni að þróunin í gróðureyðingunni væri sú að enn væri ekki græddur upp nema 1 / 3 þess lands, held ég að þingmaðurinn hafi sagt, sem eyddist. Þetta er nú einn sleggjudómurinn um þessi mál. Það voru heimildir fyrir þessu sem ég var að biðja um, en það er út af fyrir sig kannski gott að geta þeirra hér. Menn hafa nefnilega verið að giska á það, án þess að hafa nokkra hugmynd um það, hvað gróðurfar í landinu hefur verið í upphafi landnáms og síðan hafa menn jafnað gróðureyðingunni niður á það tímabil sem hér hefur verið búið og fundið út að á hverju ári eyddust 3000 hektarar, að því er ég hygg. Árleg landgræðsla á vegum Landgræðslu ríkisins hefur hins vegar numið 1000 hekturum og þannig hefur dæmið verið sett upp. Það hefur ekki verið tekið inn í þetta dæmi t.d. hver sjálf uppgræðslan í landinu hefur orðið á þessu tímabili.
    Nú vill t.d. svo til, og ég trúi því að hv. þm. hafi ekki komist hjá því að virða þær staðreyndir fyrir sér, að hér með allri suðurströndinni á sér stað gífurlega mikil uppgræðsla. Eyðisandar sem áður voru eru nú mjög víða að verða algrónir og gróður er þar alls staðar á uppleið. Ég geri ráð fyrir að það megi áætla að sjálfgræðslan að þessu leyti sé um það bil 4--5%, kannski 5%, af því landi sem gróður getur vaxið á á Íslandi, þ.e. þá eru dregnir frá jöklarnir og hæstu fjöllin. Hér er sem sagt um að ræða gífurlega mikla breytingu í þessum efnum. Og þegar Kvennalistinn breiðir úr sér hér í ræðustól og ber sér á brjóst, segir frá því hvað þessi þróun sé skelfileg, þá er ekki minnst á staðreyndir af þessum toga, ekki minnst einu einasta orði á staðreyndir af þessum toga. Þetta fannst mér nauðsynlegt að kæmi fram við þessa umræðu, en aðrir þættir málsins verða að bíða betri tíma því væntanlega gefst tóm til að fara nákvæmar yfir þessi mál öll hér við síðari umræður málsins á Alþingi. Hér hefur hins vegar gefist kostur á því að hrekja mestu

og stærstu og ónákvæmustu staðhæfingar Kvennalistans um þróun þessara mála og það er grundvallaratriði að menn geti talað og tekist á um þennan vanda án þess að vera yfirhlaðnir fordómum eins og Kvennalistinn hefur á margan hátt verið í málflutningi sínum. Það er óumdeilanlegt að við stöndum frammi fyrir miklum verkefnum til að græða og bæta og fegra landið okkar. Það er líka óumdeilanlegt að fyrir því er mjög mikill vilji, bæði til sveita og líka meðal þeirra sem búa í þéttbýlinu, að græða og bæta landið. Margt þéttbýlisfólk vinnur mikið að uppgræðslumálum, t.d. yfir sumartímann og ver miklum tíma í það að fegra kringum sig þar sem það hefur sumardvöl. Þetta er allt af hinu góða og þannig eigum við að rækta garðinn okkar í því að bæta og breyta landinu okkar en láta fordómana lönd og leið.